Framsóknarfélag

Skagafjarðar

Tenglar:

 

Skagafjörður.com

 

Skagafjörður.is

 

Félag ungra framsóknarmanna í  Skagafirði

 

Framsóknarflokkur

 

Samband ungra framsóknarmanna

 

Landssamband framsóknarkvenna

 

Hriflan málgagn framsóknarmanna í Reykjavík

 

Einar Gíslason stjórnarformaður Skagafjarðarveitna

 

Gunnar Bragi Sveinsson oddviti framsóknarmanna í Skagafirði

 

Sigurður Árnason sveitarstjórnarfulltrúi í Skagafirði

 

Birkir Jónsson alþingismaður

 

Bjarni Harðarson alþingismaður

 

Magnús Stefánsson alþingismaður

 

Siv Friðleifsdóttir alþingismaður

 

Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður

 

Björn Ingi Hrafnsson borgarfulltrúi

 

Ritstjóri og ábyrgðarmaður er Sigurður Árnason

 

Stjórn Framsóknar-félags Skagafjarðar skipa:

Viggó Jónsson formaður

Ásdís Sigurjónsdóttir, Gunnar Valgarðsson, Hafdís Steinarsdóttir og Ólafur Sigmarsson.

 

Sveitarfélagið Skagafjörður

 

Fundargerðir:

 

20. desember

Skipulags- og byggingarnefnd

 

19. desember

Byggðarráð

 

18. desember

Sveitarstjórn

 

17. desember

Atvinnu- og ferðamálanefnd

Byggðarráð

 

14. desemeber

Umhverfis- og samgöngunefnd

 

13. desember

Byggðarráð

 

11. desember

Félags- og tómstundanefnd

Sveitarstjórn

 

10. desember

Menningar- og kynningarnefnd

 

6. desember

Skipulags- og byggingarnefnd

 

5. desember

Byggðarráð

Landbúnaðarnefnd

Umhverfis- og samgöngunefnd

 

4. desember

Atvinnu- og ferðamálanefnd

Félags- og tómstundanefnd

 

3. desember

Fræðslunefnd

18. desember 2007. Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkt með atkvæðum meirihlutans og Sjálfstæðisflokks. Á sveitarstjórnarfundi nú síðdegis var samþykkt fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar eftir seinni umræðu með átta samhljóða atkvæðum en fulltrúi VG sat hjá.  Áætlunin gerir ráð fyrir afgangi upp á 6,7 milljónir kr. en fram til þessa hafa allar áætlanir gert ráð fyrir verulegum rekstarhalla.

Niðurstöðutölur fjárhagsáætlunar fyrir aðalsjóð eru rekstrartekjur 2.402.008 þús.kr. og rekstrargjöld 2.395.735 þús.kr., fjármagnsliðir jákvæðir um 73.523 þús.kr.Rekstrarniðurstaða 79.796 þús.kr. rekstrarafgangur.
Niðurstöðutölur A hluta:
Tekjur 2.381.132 þús.kr., gjöld 2.270.935 þús.kr., fjármagnsliðir neikvæðir um 89.590 þús.kr. Rekstrarniðurstaða A hluta er jákvæð um 20.607 þús.kr. Fjárfesting A hluta er áætluð 189.500 þús.kr.
Niðurstöðutölur B hluta:
Tekjur 295.383 þús.kr., gjöld 217.411 þús.kr., fjármagnsliðir neikvæðir um 91.883 þús.kr. Rekstrarniðurstaða B hluta er neikvæð um 13.912 þús.kr. Nettó fjárfesting B hluta er áætluð 59.715 þús.kr.
Áætluð rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins og stofnana á árinu 2008 er jákvæð um 6.695 þús.kr. Handbært fé frá rekstri 361.850 þús.kr. Fjárfestingarhreyfingar samtals 245.418 þús.kr. Afborganir og breytingar lána og skuldbindinga 191.977 þús.kr. Nýjar lántökur 100.000 þús. kr. Handbært fé í árslok 387.354 þús.kr.
Að þessu tilefni lögðu fulltrúar meirihlutans fram svohljóðandi bókun:

 

„Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar ber merki um nýja tíma. Jafnvægi er að nást í rekstri sveitarfélagsins og svigrúm til framkvæmda og viðhalds eigna hefur aukist. Áætlunin ber vott um þá staðfestu sveitarstjórnar að Skagfirskt samfélag skuli vera í fremstu röð á hverjum tíma. Áhersla er lögð á þjónustu og umhverfi barna og unglinga, ungs barnafólks og eldri borgara og mörgum brýnum verkefnum hrundið af stað. Gert er ráð fyrir rekstrarafgangi af Aðalsjóði að fjárhæð um 80 millj. króna og í fyrsta sinn í langan tíma er lögð fram áætlun sem gerir ráð fyrir hagnaði af heildarrekstri sveitarfélagsins (A og B hluta) sem nemur um 7 millj. króna. sem verða að teljast ánægjuleg umskipti. Áætlunin gerir ráð fyrir framkvæmdum hjá Eignasjóði fyrir 225 millj. króna og fjárframlög til brýnna stærri viðhaldsverkefna á eignum sveitarfélagsins eru ríflega tvöfölduð milli ára og verða yfir 40 millj. króna á árinu. Þá er gert ráð fyrir að handbært fé verði í árslok um 387 millj.króna.
Umskiptin í rekstri sveitarfélagsins eru ánægjuleg en ljóst að betur er hægt að gera og verður áfram unnið að því. Þá er mikilvægt að fyrirhugað er að framkvæma fyrir meira fé en sést hefur um langt skeið. Það kemur atvinnulífi og samfélaginu öllu til góða.
Sveitarstjóra og starfsmönnum sveitarfélagsins, sveitarstjórnarfulltrúum og nefndafólki, eru færðar þakkir fyrir ánægjulegt samstarf við gerð þessarar áætlunar og mikinn vilja til að bæta rekstur og gera þjónustu sveitarfélagsins enn betri og markvissari.„
 

8. desember 2007 Jólasamkoma Framsóknarmanna í Skagafirði næsta laugardag. Laugardagskvöldið 15. desember n.k. verður jólasamkoma framsóknarmanna í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki og hefst hún kl.20:00. Á boðstólnum verður hangikjöt og meðlæti. Sérstakur gestur kvöldsins verður Guðni Ágústsson formaður flokksins. Miðaverð er 3000 kr. og skal tilkynna þátttöku fyrir 12. desember til Hafdísar Steinarsdóttur í síma 691-4084.

5. desember 2007 Þjóðlendukröfur á leiðinni.  Búast má við kröfum fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins vegna þjóðlenda á næstu dögum þar sem að frestur til að lýsa kröfum ríkisins rennur út um næstu áramót. Ljóst er að nokkur kvíði er í mönnum vegna framgöngu ríkisins í fyrri kröfugerðum. Af þessu tilefni samþykkti byggðarráð einróma eftirfarandi ályktun: "Fyrir síðustu alþingiskosningar töluðu forsvarsmenn og frambjóðendur allra flokka um mikilvægi þess að breyta vinnulagi óbyggðanefndar og fjármálaráðuneytis við kröfugerð varðandi þjóðlendur. Byggðarráð telur afar mikilvægt að staðið verði við gefin fyrirheit og vinnulagið endurskoðað.

Byggðarráð samþykkir að hafa forystu um að gæta hagsmuna sveitarfélagsins og íbúa þess varðandi hugsanlegar kröfur í þjóðlendur og felur sveitarstjóra að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum."
4. desember 2007 Auglýst verður eftir rekstraraðila á tjaldstæðunum í Varmahlíð. Á fundi Atvinnu- og ferðamálanefndar var  sviðsstjóra falið að auglýsa eftir aðilum til að taka að sér rekstur nýrra tjaldstæða sunnan Reykjarhólsskógar í Varmahlíð.

 13. nóvember 2007 Athugun á netþjónabúi. Á fundi Atvinnu- og ferðamálanefndar var lagt fram erindi frá Fjárfestingarstofu, dags. 31.10.2007 þar sem sveitarfélaginu Skagafirði er boðið að vera þátttakandi í athugun á aðstæðum fyrir rekstri og uppsetningu netþjónabúa í völdum sveitarfélögum.

 3. október 2007 Birkir bloggar. Birkir Jón Jónsson alþingismaður hefur opnað bloggsíðu á moggablogginu. Hægt er að skoða síðuna hér.

2. október 2007 Tillaga til þingsályktunar um aukna hlutdeild sveitarfélaga í skatttekjum. Fjórir þingmenn Framsóknarflokksins, Magnús Stefánsson, Birkir Jón Jónsson, Guðni Ágústsson og Bjarni Harðarson hafa lagt fram þingsályktunartillögu þar sem segir: "Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að taka hið fyrsta upp viðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga um aukna hlutdeild sveitarfélaganna í innheimtum skatttekjum. " Tillagan ásamt greinargerð.

1. október 2007 Alþingi sett í dag.  Í dag verður Alþingi sett. Dagskrá er eins og hér segir á vef Alþingis.

28. september 2007 Þingflokkurinn kynnir tillögur að mótvægisaðgerðum. Þingflokkur Framsóknarflokksins kynnti í dag tillögur flokksins að mótvægisaðgerðum vegna minnkandi aflaheimilda. Sjá heimasíðu Framsóknarflokksins.

27. september 2007 Hönnun sundlaugar í Hofsósi kynnt á fundi með íbúum á morgun. Á morgun föstudaginn 28. verður haldinn kynningarfundur í Höfðaborg Hofsósi með íbúum svæðisins. Á fundinum munu arkitekt, fulltrúar sveitarfélagsins og gefendur kynna hugmyndir að staðsetningu og útliti sundlaugarinnar. Eins og kunnugt er eru það þær Lilja Pálmadóttir og Steinunn Jónsdóttir sem gefa fjármagn til byggingar sundlaugarinnar en gert er ráð fyrir að hún verði tekin í notkun á næsta ári.

24. september 2007 Tillaga að sumarlokun leikskóla sumarið 2008 samþykkt í Fræðslunefnd. Á fundi fræðslunefndar í dag var samþykkt tillaga frá leikskólastjórum um að lokun leikskóla verði með óbreyttu sniði. Þá var á fundinum yfirfarin hönnunarteikning að nýjum leikskóla á Sauðárkróki.

21. september 2007 Skagafjörður fyrsti valkostur fyrir staðsetningu koltrefjaverksmiðju. Á stjórnarfundir Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem haldinn var 19. september sl. var ákveðið að Skagafjörður verði fyrsti valkostur fyrir koltrefjaverksmiðju ef af verður. Stjórnin samþykkti einnig að forræði verkefnisins verði flutt yfir til Atvinnumálanefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

20. september 2007 Aðalfundur Framsóknarfélags Skagafjarðar. Í kvöld var haldinn aðalfundur Framsóknarfélags Skagafjarðar. Á fundinum voru almenn aðalfundarstörf auk umræðna um sveitarstjórnarmál og stjórnmálin almennt. Stjórn félagsins fyrir næsta starfsár skipa þau Viggó Jónsson formaður, Ásdís Sigurjónsdóttir, Gunnar Valgarðsson , Hafdís Steinarsdóttir og Ólafur Sigmarsson.

18. september 2007 Sveinn Allan Morthens í Félags- og tómstundanefnd í stað Vöndu. Á sveitarstjórnarfundi í dag var samþykkt ósk Vöndu Sigurgeirsdóttur um ársleyfi og skipað á ný í nefndir sem hún hefur verið í. Sveinn Allan Morthens kom inn sem aðalmaður í Félags- og tómstundanefnd. Guðrún Helgadóttir færðist upp sem 1. varamaður S-lista í Sveitarstjórn og  varð 1. varamaður S-lista í Byggðarráði.

17. september 2007 Sveitarstjórnarfundur á morgun. Á morgun er fundur í sveitarstjórn Skagafjarðar í Safnahúsinu á Sauðárkróki og hefst fundurinn kl.16:00. Á fundinum verða teknar fyrir fundargerðir frá 6.-13. september auk þess sem að fyrir fundinum liggur beiðni frá Vöndu Sigurgeirsdóttur varasveitarstjórnarfulltrúa Samfylkingarinnar um ársleyfi vegna doktorsnáms.  Dagskrá fundarins.

 

14. september 2007 Auglýst eftir slökkviliðsstjóra, skipulagsfulltrúa og slökkviliðs- & sjúkraflutningamanni.  Nánari upplýsingar eru á heimasíðu sveitarfélagsins.

Auglýsing um starf slökkviliðsstjóra.

Auglýsing um starf skipulagsfulltrúa. 

Auglýsing um starf slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanns.

13. september 2007 Hagsmunagæsla í úrgangsmálum.  Samband íslenskra sveitarfélaga er að athuga þessa dagana hvort það eigi að leggja í 3 ára verkefni er snýr að hagsmunagæslu sveitarfélaga í úrgangsmálum. Áætlaður kostnaður á ári er 10 milljónir króna og skiptist í hlutfalli við íbúafjölda. Byggðarráð samþykkti á fundi sínum að taka þátt í verkefninu að því tilskyldu að öll stærri sveitarfélög í landinu tækju þátt í því.

11. september 2007 Norsku kosningarnar og vinabærinn Kongsberg. Í norsku sveitarstjórnarkosningunum í gær urðu helstu úrslit þau í Kongsberg Kommune,  vinabæ Skagafjarðar, að Verkamannaflokkurinn, undir forystu Vidars Lande, vann sigur bætti við sig 7% atkvæða og 3 fulltrúum. Eins og annars staðar var það Sósíalíski vinstri flokkurinn (Vinstri grænir) sem tapaði mestu eða 7.8% og 3 fulltrúum. Úrslit kosninganna má sjá hér á vef norska ríkisútvarpsins.

07. september 2007 Nýtt pósthús á leiðinni. Á fundi Skipulags- og byggingarnefndar i gær lá fyrir umsókn frá Íslandspósti um byggingarleyfi á lóðinni austan Ábæjar (N1). Nefndin samþykkti staðsetningu hússins á lóðinni og samþykkti að senda til umsagnar.

06. september 2007 Sótt um lóð undir hestaspítala í hesthúsahverfinu á Sauðárkróki. Í fundargerð Skipulags- og byggingarnefndar í dag kemur fram að Stefán Friðriksson dýralæknir sækir um lóð og byggingarleyfi fyrir  dýraspítala að Flæðargerði í hesthúsahverfinu. Nefndin samþykkti lóðarúthlutunina en sendi byggingarleyfið til umsagnar til hlutaðeigandi aðila, eins það er orðað í fundargerðinni.

05. september 2007 Miðstjórnarfundur SUF á Sauðárkróki um helgina. Miðstjórnarfundur SUF verður haldinn í Skagafirði helgina 8.-9. september 2007.  Fundurinn verður undirbúningur fyrir Þing unga fólksins sem haldið verður í lok september. Á fundinum verður einnig kosið í þrjár fastanefndir SUF, Fræðslu- og kynningarnefnd, Utanríkismálanefnd og Þjóðmálanefnd. Auk þess verður starfsáætlun stjórnar SUF lögð fram. Nánar.

04.september 2007 Oddviti Sjálfstæðisflokksins stýrir sveitarstjórnarfundi.  Á sveitarstjórnarfundi í dag stýrði Páll Dagbjartsson 2. varaforseti sveitarstjórnar fundi í fjarveru forseta og 1. varaforseta. Er þetta líklega í fyrsta skipti sem sveitarstjórnarmaður úr minnihlutaflokki í sveitarstjórn Skagafjarðar stýrir heilum fundi sveitarstjórnar. 

03. september 2007 Sveitarstjórnarfundur á morgun. Fundur hefur verið boðaður í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar á morgun kl.16 í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Dagskrá fundarins er að finna hér.

01. september 2007 Guðni Ágústsson krefur forsætisráðherra svara um breytingar á Stjórnarráðinu. Síðastliðinn miðvikudag ritaði Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins Geir H. Haarde forsætisráðherra bréf þar sem hann fer fram á að samningur forystumanna stjórnarflokkanna um breytingar á Stjórnarráðinu verði gerður opinber. Í bréfinu segir m.a.:  "Hér skal það tekið fram að það er ekki einkamál Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að ganga til breytinga á verkefnum Stjórnarráðsins. Framsóknarflokkurinn lýsir sig reiðubúinn til samstarfs um endurskoðun á Stjórnarráðinu og verkaskiptingu þess. Í raun er það lýðræðislegur réttur Alþingis, allra alþingismanna, stofnana og hagsmunaaðila í þjóðfélaginu að fá upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar" Frétt um málið..

30. ágúst 2007 Ósamræmi í stefnuskrám ríkisstjórnarflokkanna og stefnu ráðherrana. Í fréttum Rúv 19. ágúst sl. sagði: "Félagsmálaráðherra segir ekki heppilegustu tekjuöflunina fyrir sveitarfélög að fá hlutdeild í fjármagnstekjuskatti. Margar aðrar leiðir væru heppilegri. Forsætisráðherra, utanríkisráðherra og félagsmálaráðherra og funduðu í stjórnarráðinu í dag og voru ríkisfjármálin til umræðu. Hvort fjármagnstekjuskatturinn var til umræðu, fékkst ekki uppgefið en sveitarfélögin hafa óskað eftir því að fá hluta hans enda skilar fjármagnstekjuskatturinn sífellt meiri tekjum í ríkiskassann. Fjármálaráðherra hefur hafnað þessum hugmyndum. Félagsmálaráðherra og ráðherra sveitarstjórnarmála segir þetta ekki heppilegustu tekjuöflunina fyrir sveitarfélögin. "

Í kosningastefnuskrá Samfylkingarinnar frá í vor segir: "Endurskoða tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga með það að markmiði að efla sveitarfélögin og færa til þeirra ný verkefni svo sem framhaldsskólann, málefni fatlaðra og aldraðra og nýja tekjustofna svo sem hlutdeild í fjármagnstekjuskatti."

Í landsfundarsamþykkt Sjálfstæðisflokksins frá í vor segir: "Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á efnahagslegan styrk og sjálfsforræði sveitarfélaga svo þeim sé unnt að takast á við stærri hlutverk í opinberri stjórnsýslu. Til þess þurfa tekjustofnar sveitarfélaga að vera áreiðanlegir og í takt við þá tekjuþróun og skattkerfisbreytingar sem hafa átt sér stað í samfélaginu.

Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að hluti nýrra tekjustofna á borð við fjármagnstekjuskatt og skatta einkahlutafélaga fari í að styrkja stöðu sveitarfélaga. Lækkun skulda sveitarfélaga er mikið hagsmunamál og mikilvægur liður í því að gera þau hæfari til að takast á við hagstjórn í þjóðfélaginu í samstarfi við ríkið."

Því virðist stefna beggja ríkisstjórnarflokkanna hafi verið að það þyrfti að auka hlut sveitarfélaganna í skatttekjum og þar kæmi hlutdeild í fjármagnstekjuskatti til greina. Ummæli ráðherra nú eru því ekki takt við það þegar þeir annars vegar útiloka þetta og hins vegar segja að þetta sé ekki heppilegur tekjustofn.

Má vera að það hafi farið fram hjá mér en ég hef ekki tekið eftir því að ráðherrarnir hafi verið spurðir hvers vegna skoðanir þeirra nú séu aðrar en samþykktir flokka þeirra rétt fyrir kosningar. Gaman væri að fá svar við þeirri spurningu. Af  bloggsíðu SÁ.

29. ágúst 2007 Líkanatilraunir af Sauðárkrókshöfn lofa góðu. Á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar í dag fór Gunnar Steingrímsson hafnarvörður yfir  líkanatilraunir sem hafa farið fram hjá Siglingastofnun og kynnti þær niðurstöður sem þegar liggja fyrir og virðast þær lofa góðu hvað varðar ókyrrð í höfninni. Stefnt er að fundi með Siglingastofnun þegar að niðurstöður liggja fyrir.

28. ágúst 2007 Ályktanir Ársþings SSNV. Á þingi SSNV um helgina voru samþykktar fjöldi ályktana.

27. ágúst 2007 Ársþing SSNV var um helgina. Hefð er fyrir því að gestir flytji erindi á ársþingi SSNV og svo var einnig í þetta sinn. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallaði um stöðu sveitarfélaga frá margvíslegum sjónarhornum. Kristján Möller Samgönguráðherra og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra fluttu erindi er snéri að þeirra málaflokkum.
Dr. Grétar Eyþórsson forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Bifröst flutti erindi um byggðmál og fjallaði m.a um stöðu einstakra svæða með tilliti til nánar þeirra við höfuðborgarsvæðið. Grétar taldi sjálfbærni í atvinnulífi lykilatriði til eflingar búsetu á Norðurlandi vestra.
Að lokum flutti Anna G. Björnsdóttir sviðstjóri þróunar- og alþjóðasviðs hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga erindi um stöðu sveitarfélagana gagnvart EES samningnum.
Á ársþinginu voru skipaðar tvær starfsnefndir. Annari nefndinni var falið að ræða og leggja fram tillögur að nánara samstarfi í landshlutanum á sviði heilbrigðismála. Verkefni hinnar nefndarinnar verður að yfirfara samþykktir og útfæra framtíðarskipan samstarfs sveitarfélaganna á starfsvæði SSNV. Þá var einnig samþykkt tillaga um að greiða hluta Iðnþróunarsjóðs Norðurlands vestra út til sveitarfélagana.
Alls voru tíu ályktanir samþykktar á ársþinginu varðandi ýmsa málaflokka sem snúa að sveitarfélögunum og samstarfi þeirra. Af vef SSNV. 

26. ágúst Mótvægisaðgerðir? Um helgina var haldið ársþing Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra að Húnavöllum í Húnavatnshreppi og var framkvæmd þingsins heimamönnum til mikils sóma. Eftir að þingstörfum lauk á föstudeginum var ekið sem leið lá að Þingeyrum þar sem að Erlendur á Stóru Giljá fræddi okkur um sögu staðarins. M.a. sagði hann frá tildrögum þess að kirkja var reist á staðum.

"Í sögu Jóns helga Hólabiskups segir frá því að hallæri þrengdi að mönnum og veðrátta köld, svo að jörð var frosin fram eftir vori. Biskup fór til vorþings að Þingeyrum og með samþykki þingheims heitir hann því að reisa kirkju og bæ þar. En í sömu viku hurfu allir ísar, og jörð þiðnaði öll og gróður byrjaði að dafna þannig að hægt var að beita skepnum á túnin. Mun þetta hafa gerst á fyrsta tug 11. aldar. "

Fyrr um daginn höfðum við hlýtt á tvo ráðherra ríkisstjórnarinnar og höfðum haft nokkrar væntingar um að þar kæmu fram eitthvað um margræddar mótvægisaðgerðir vegna kvótaniðurskurðar og vegna þess að hagvöxtur á svæðinu hefur verið neikvæður um 9% undanfarin. Kannski var það m.a. vegna þess að samgönguráðherra hafði fyrr í vikunni lýst því yfir að Suðurlandsvegur yrði tvöfaldaður. Skemmst er frá því að segja að ekkert nýtt kom fram í málið þeirra.

Einhverjum datt í hug undir frásögn Erlendar að líklega yrði okkur bent á byggja kirkju. Af bloggsíðu SÁ.

22. ágúst 2007 Fjöldi nemenda í grunnskólum Skagafjarðar. Á fundi Fræðslunefndar í dag lagði fræðslustjóri fram yfirlit yfir væntanlegan fjölda grunnskólanemenda skólaárið 2007-8: Árskóli 406 börn, Varmahlíðarskóli 133 börn, Hofsósi 52 börn, Hólum 24 börn og Sólgörðum 14 börn. Um er að ræða fækkun í Árskóla um einn bekk, lítilleg fækkun í Varmahlíð, fjölgun á Hofsósi og Sólgörðum en fækkun að Hólum.

21. ágúst 2007. Bjarni Egilsson hættir í sveitarstjórn. Bjarni Egilsson oddvita Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn Skagafjarðar fékk í dag lausn frá öllum skyldum í sveitarstjórn Skagafjarðar og nefndum þar sem hann er að flytja úr sveitarfélaginu. Við þessa breytingu kom Gísli Sigurðsson framkvæmdastjóri á Tengli inn í sveitarstjórn í stað Bjarna auk annarra breytinga sem urðu á skipan nefnda hjá sjálfstæðismönnum sjá nánar í fundargerð sveitarstjórnar.

20. ágúst 2007 Heimasíða Framsóknarfélagsins komin úr sumarleyfi.

6. júní 2007 Húsnæði keypt undir starfsemi Húss frítímans. Á heimasíðu sveitarfélagsins má lesa að húsnæði hefur verið keypt undir starfsemi Húss frítímans. Um er að ræða húsnæði sem nú hýsir verslunina Þórðarhöfða en áður hýsti Verslunina Hegra og Hátún, húsgagnaverslun.

6. júní 2007 Seðlabankastjórar hækka um 200 þús. kall. Spyrja má sig hvort að það hafi virkilega verið einhver þörf á því að hækka laun þessara heiðursmanna. Samkvæmt fréttum voru seðlabankastjórar með 1200 þús. kall á mánuði og fóru í 1400 þús. kall. Ekki er efi að margt launafólk næði hækkun þó að það fengi strípaða hækkunina í laun. Þá má einnig horfa á þetta í því ljósi að Seðlabankinn, þrátt fyrir sjálfstæði sitt, heyrir undir forsætisráðneyti en skv. heimasíðu SA hefur forsætisráðherrann 938 þús. í laun. SÁ.

5. júní 2007 Sveitarstjórnarfundur á morgun. Sveitarstjórnarfundur hefur verið boðaður á morgun fimmtudaginn 7. júní kl.16:00 í Vesturfarasetrinu á Hofsósi. Dagskrá má lesa hér.

4. júní 2007 Fræðslunefnd samþykkir mötuneyti í Árskóla. Á fundi Fræðslunefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar í dag var samþykkt áætlun um mötuneyti í Árskóla. Um verður að ræða afgreiðslueldhús þar sem að maturinn verði keyptur utan úr bæ en ekki er pláss til að elda mat í núverandi húsnæði Árskóla. Gert er ráð fyrir að það taki til starfa í haust og að heildarkostnaður við breytingar verði 8,5 milljónir króna. Árskóli er eini grunnskólinn í Skagafirði þar sem ekki hefur verið starfrækt mötuneyti.

4. júní 2007 Atvinnumálanefnd samþykkir tillögur um úthlutun byggðakvóta. Á fundi nefndarinnar í dag var tekið fyrir erindi um úthlutun byggðakvóta í Skagafirði á samtals 222 tonnum. Fundargerðina má lesa hér.

30. maí 2007 Gunnar Bragi íhugar framboð til varaformennsku í Framsóknarflokknum. Í fréttum RUV í gærkvöldi sagði Gunnar Bragi Sveinsson oddviti Framsóknarflokks í Skagafirði að endurnýjunar sé þörf í yfirstjórn Framsóknarflokksins og að hann íhugi að bjóða sig fram sem varaformanns flokksins. Áður hefur Valgerður Sverrisdóttir lýst því yfir að hún sækist eftir varaformannsembættinu.

29. maí 2007 Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins verður 10. júní n.k. Landsstjórn Framsóknarflokksins ákvað á fundi sínum í dag að fundur verði haldinn í miðstjórn sunnudaginn 10. júní.

25. maí 2007 Valgerður Sverrisdóttir í framboði til varaformennsku í Framsóknarflokknum. Á blaðamannafundi sem haldinn var í húsnæði Framsóknarflokksins í Reykjavík í morgun tilkynnti Valgerður Sverrisdóttir að hún sæktist eftir því að verða varaformaður Framsóknarflokksins í stað Guðna Ágústssonar sem að tekið hefur við formennsku í flokknum á væntanlegum miðstjórnarfundi flokksins. Þá kemur fram í viðtali við Magnús Stefánsson á mbl.is að það sé ólíklegt að hann bjóði sig fram til varaformanns að þessu sinni. Þá hafði Siv Friðleifsdóttir þingflokksformaður Framsóknarflokksins lýst því yfir að hún ætlaði ekki að bjóða sig fram í embætti varaformanns. Ákvörðun um tímasetningu miðstjórnarfunds verður væntanlega tekin á fundi landsstjórnar Framsóknarflokksins í næstu viku.

24. maí 2007 Ríkisstjórnarskipti í dag. Í dag tekur við ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Rétt er á þessum tímamótum að óska nýrri ríkisstjórn velfarnaðar með óskum um að hún geri landi og þjóð nokkurn gagn. Af nýbirtum stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar verður ekki almennilega séð hvert ríkisstjórnin stefnir en það plagg er frekar almenns eðlis og þarfnast mörg atriði útskýringar og væntanlega nánari útfærslu. Í leiðara Morgunblaðsins í morgun segir um stjórnarsáttmálann: " ... að þar er ekki um að ræða meiriháttar stefnubreytingu frá stefnumörkun fráfarandi ríkisstjórnar. Í megindráttum er hin nýja ríkisstjórn að fylgja stefnu fráfarandi ríkisstjórnar, þótt áherzlur í vissum tilvikum séu aðrar eins og eðlilegt er með aðild nýs flokks að rkisstjórn. Í stefnuyfirlýsingunni er hins vegar ekki að finna meiri háttar frávik frá stefnu fráfarandi stjórnar."
Spurningin er hvort að Samfylkingin er sammála leiðarahöfundi Morgunblaðsins. Væntanlega skýrist að einhverju leiti í næstu viku, þegar að Alþingi verður kallað saman, hver stefna ríkisstjórnarinnar verður.

24. maí 2007 Sveitarstjórnarfundur í dag. Sveitarstjórnarfundur verður í dag í Safnahúsinu við Faxatorg á Sauðárkróki og hefst fundurinn kl.16:00. Dagskrá fundarins er hægt að lesa hér. Meðal efnis er erindi frá Katrínu Maríu Andrésdóttur sveitarstjórnarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins þar sem að hún óskar lausnar frá störfum í sveitarsjórn og nefndum sveitarfélagins frá 1. júní n.k. út kjörtímabilið.

23. maí 2007 Guðni Ágústsson tekur við formennsku í Framsóknarflokknum af Jóni Sigurðssyni. Í dag sagði Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins af sér sem formaður Framsóknarflokksins. Guðni Ágústsson varaformaður tekur því við af honum sem formaður flokksins. Af því tilefni birti hann eftirfarandi kveðju til flokksmanna á heimasíðu Framsóknarflokksins:

Ágætu Framsóknarmenn um land allt - kæru samherjar.

Við núverandi aðstæður er algerlega nauðsynlegt að formaður Framsóknarflokksins hafi aðgang að ræðustól Alþingis í stjórnmálabaráttunni sem aðaltalsmaður og leiðtogi flokksins. Þetta er skilyrði fyrir markvissu og kröftugu stjórnmálastarfi og fyrir einingu í flokknum.

Ég náði ekki kjöri í Alþingiskosningunum 12. maí sl. og hef tekið þá ákvörðun að segja af mér formennsku í Framsóknarflokknum. Ég hef undanfarna daga kynnt þessa ákvörðun öðrum forystumönnum flokksins og trúnaðarmönnum í kjördæmi mínu. Beint liggur fyrir samkvæmt lögum Framsóknarflokksins að varaformaður taki við stöðu formanns við aðstæður sem þessar.

Ég flyt ykkur öllum þakkir fyrir traust, stuðning og vináttu. Ég mun leggja mig fram um að aðstoða við uppbyggingu og eflingu Framsóknarflokksins. Ég er sannfærður um að erindi Framsóknarmanna við íslensku þjóðina er brýnna en nokkru sinni fyrr.

Með flokkskveðju og þökk,

Jón Sigurðsson

22. maí 2007 Nýjir ráðherrar kynntir. Í kvöld kynntu Sjálfstæðisflokkur og Samfylking ráðherralista sína. Auk þess kom fram í fréttum að breytingar yrðu gerðar á skipan stjórnarráðsins og verkefni flutt á milli ráðuneyta og ráðuneyti jafnvel sameinuð. Nánar um það síðar. Mikilvægasti parturinn er þó eftir sem er stjórnarsáttmáli þessarar nýju ríkisstjórnar sem kynntur verður á morgun.

22. maí 2007 Siv Friðleifsdóttir kjörinn formaður þingflokks Framsóknarflokksins. Á fundi þingflokks Framsóknarmanna í dag var Siv Friðleifsdóttir fráfarandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra kjörinn formaður þingflokksins. Aðrir stjórn voru kjörnir Magnús Stefánsson og Birkir Jón Jónsson.

21. maí 2007 Björn Bjarnason og Árni Johnsen færast niður vegna útstrikana. Það verður að teljast með stærri tíðindum í nýliðnum alþingiskosningum að Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Árni Johnsen alþingismaður skyldu færast niður um eitt sæti hvor vegna útstrikana. Samkvæmt fréttavef RÚV hefur röð þingmanna aðeins einu sinni áður breist vegna útstriknana en það var árið 1946 en þá færist Bjarni Benediktsson, faðir Björns Bjarnasonar, upp fyrir Björn Ólafsson sem féll við það af þingi.

Ekki leikur vafi á því að útstrikanir á Árna Johnsen eru til komnar vegna þess að hann hlaut á sínum tíma fangelsisdóm og nokkrum fjölda kjósenda Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hefur greinilega ekki hugnast að fá hann aftur á þing. Í tilfelli Björns Bjarnasonar er málið sérstæðara þar sem að Jóhannes Jónsson kenndur við Bónus birti heilsíðu auglýsingar með ávarpi til kjósenda í Reykjavíkurkjördæmi suður um að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og strika nafn Björns Bjarnasonar jafnframt út af listanum.

Með því að þessir tveir þingmenn færðust niður um sæti hefur verið sýnt fram á að útstrikanir geta virkað. Spurning er því hvort að þær munu aukast í framhaldinu eða hvort um einstök tilfelli hafi verið að ræða.

20. maí 2007 Hvert atkvæði skiptir máli. Í nýafstöðunum alþingiskosningum kom enn og aftur í ljós að hvert atkvæði skiptir máli. Þannig hefði Framsóknarflokkurinn hlotið 8 þingsæti ef flokkurinn hefði fengið 11 atkvæðum meira á landsvísu og þar með fellt 25. þingmann Sjálfstæðisflokksins, Ragnheiði Ríkharðsdóttur bæjarstjóra í Mosfellsbæ, sem hlýtur þann heiður að þessu sinni að vera 63. alþingismaður lýðveldisins að þessu sinni. Sömuleiðis vantaði Frjálslynda flokkinn 117 atkvæði til að gera það sama. Að öðru óbreyttu voru það þau Samúel Örn Erlingsson Framsóknarflokki og Kolbrún Stefánsdóttir Frjálslynda flokki sem hefðu náð þessu sæti.

Af einstökum frambjóðendum vantaði eftirtöldum fæst atkvæði til að verða kjördæmakjörnir þingmenn:

Róbert Marshall 3. á S-lista í Suðurkjördæmi – vantaði 57 atkvæði til að fella Björk Guðjónsdóttur 4. mann D-lista.

Næstminnst vantaði félaga Róberts, Árna Pál Árnason 4. mann S-lista í Suðvesturkjördæmi eða 78 atkvæði til að fella Siv Friðleifsdóttur B-lista. Hann náði kjöri sem uppbótarþingmaður.

Herdís Sæmundardóttir sem var í 2. sæti B-lista í Norðvesturkjördæmi vantaði 104 atkvæði til að fella 3. mann D-lista, Einar Odd Kristjánsson.

Þar á eftir kom áðurnefnd Ragnheiður Ríkharðsdóttir sem var í 6. sæti D-lista í Suðvesturkjördæmi og vantaði 193 atkvæði til að fella Siv Friðleifsdóttur

og Kolbrún Stefánsdóttir oddviti F-lista í sama kjördæmi vantaði 199 atkvæði til að fella Siv. Ekki þarf að fjölyrða um að þessar breytingar hefðu haft verulegar breytingar á úthlutun uppbótarsæta í för með sér.

19. maí 2007 Mismunandi útkoma flokkanna í nýafstöðnum alþingiskosningum eftir kjördæmum. Vinstri grænir bættu við sig 5,5% á landsvísu og var aukningin nokkuð jöfn yfir landið en þó var hún áberandi mest í Reykjavík norður þar sem hún fór yfir 7% en þar leiddu listann Katrín Jakobsdóttir og Árni Þór Sigurðsson.

Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig 2,5% á landsvísu. Mest var aukningin í Kraganum, undir forystu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Bjarna Benediktssonar, í Norðausturkjördæmi þar sem að Kristján Þór Júlíusson leiddi lista og í Suðurkjördæmi, þar sem þeir nafnarnir Árni Mathiesen og Árni Johnsen leiddu listann! Í þessum kjördæmum var aukningin 3,4%-4,5%. Í Reykjavík bætti flokkurinn við sig um 1% en tapaði hins vegar 0,5% Norðvesturkjördæmi þar sem ráðherrarnir Sturla Böðvarsson og Einar Kr. Guðfinnsson sátu. Stóra spurning er hvort að litið verður til þessarar frammistöðu þegar að til úthlutunar ráðherrastóla kemur.

Frjálslyndi flokkurinn hélt nokkurn veginn sínu fylgi, tapaði 0,1%. Almennt voru fylgisbreytingar litlar en þó tapaði flokkurinn mestu í Suðurkjördæmi 1,7% en athygli vekur að flokkurinn tapar fylgi í Norðvesturkjördæmi þar sem formaðurinn Guðjón Arnar Kristjánsson leiddi listann auk þess sem að þeim hafði bæst við alþingismaðurinn Kristinn H. Gunnarsson úr Framsóknarflokknum.

Samfylkingin tapaði 4,2% í kosningum öfugt við það sem halda mætti miðað við yfirlýsingar forystumanna flokksins. Fylgistap flokksins var mest í Reykjavík norður þar sem að Össur Skarphéðinsson leiddi listann eða 7,0%. Þá tapaði flokkurinn 4,3% og 4,4% í Reykjavík suður og Suðvesturkjördæmi. Í landsbyggðarkjördæmunum tapaði flokkurinn mun minna fylgi eða 2-3%, en þar var flokkurinn fylgisminni í kosningunum 2003 en á höfuðborgarsvæðinu.

Framsóknarflokkurinn tapaði 6% í kosningunum sem er 1,8% meira en Samfylkingin. Minnstu tapaði flokkurinn í Norðvesturkjördæmi, 2,9%, sem er merkilegt miðað við að annar þingmaður flokksins, Kristinn H. Gunnarsson yfirgaf flokkinn á kjörtímabilinu. Þá tapaði flokkurinn um 5% í Suðurkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmunum. Mestu tapaði flokkurinn í Suðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi eða um 8% í hvoru kjördæmi. SÁ.

18. maí 2007 Stjórnarslit ákveðin. Ákveðið var í gær að slíta ríkisstjórnarsamstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem varað hefur í tólf ár. Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins hefur ritað grein á vefsíðu flokksins um málið sem hann kallar "Margfeldni í viðræðum". Þá virðist sem þegar hafi verið samið um ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar undir forystu Geirs H. Haarde formanns Sjálfstæðisflokksins.

15. maí 2007 Þingflokkur Framsóknarflokksins telur nú aðeins sjö þingmenn. Endurkjörin voru þau Siv Friðleifsdóttir, Magnús Stefánsson, Valgerður Sverrisdóttir, Birkir Jón Jónsson og Guðni Ágústsson. Nýjir þingmenn flokksins eru Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður á Akureyri og Bjarni Harðarson bóksali á Selfossi.

14. maí 2007 Að loknum alþingiskosningum. Ekki er hægt að draga neina fjöður yfir það að úrslit alþingiskosninganna í gær voru okkur Framsóknarmönnum vonbrigði þrátt fyrir að skoðanakannanir síðustu vikuna hefðu sýnt í hvað stefndi. Ríkisstjórnin hélt naumum þingmeirihluta og það kemur væntanlega í ljós á næstu dögum hvort flokkarnir sjá grundvöll á áframhaldandi ríkisstjórn. Litlu munaði að Framsóknarflokkurinn í Norðvesturkjördæmi næði markmiði sínu um að fá áfram 2 þingmenn og halda fylgi sínu en fylgið minnkaði um 2,9% sem er minnsta fylgisbreyting flokksins í þessum kosningum. Það er þrátt fyrir að annar þingmanna flokksins á síðasta kjörtímabili Kristinn H. Gunnarsson, sem alltaf talaði um sjálfan sig sem talsmann grasrótar flokksins, hafi gengið til liðs við Frjálslynda flokkinn. Enn athyglisverðara er í ljósi þess að Frjálslyndi flokkurinn er með minna fylgi nú en í alþingiskosningunum 2003.

Er litið er á þingmannahópinn í kjördæminu, að þá skipa hópinn 9 karlar með meðalaldur upp á tæplega 57 ár. Þeir eru: Sturla Böðvarsson(61), Einar Kristinn Guðfinnsson(51) og Einar Oddur Kristjánsson(64) fyrir Sjálfstæðisflokk, Guðbjartur Hannesson(56) og Karl V. Matthíasson(54) fyrir Samfylkingu, Magnús Stefánsson (46) fyrir Framsóknarflokk, Jón Bjarnason(63) fyrir VG og að síðustu Guðjón Arnar Kristjánsson(62) og uppbótarmaðurinn Kristinn H. Gunnarsson(54) fyrir Frjálslynda flokkinn. SÁ.

13. maí 2007 Þakkir til kjósenda Framsóknarflokksins. Framsóknarmenn í Skagafirði þakka kjósendur flokksins fyrir stuðninginn í alþingiskosningunum í gær.

4. maí 2007 Samið um geðheilbrigðisþjónustu á Sauðárkróki. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirritaði í dag samninga um geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni í umdæmum Heilbrigðisstofnananna Ísafjarðarbæ, Bolungarvík og á Sauðákróki. Samningarnir eru gerðir annars vegar við Heilbrigðisstofnunina í Ísafjarðarbæ, en hins vegar við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki. Samningarnir eru í samræmi við stefnu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að efla geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni sem eiga við geðröskun að stríða bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti um land. Fréttin í heild.

3. maí 2007 Sameiginlegur framboðsfundur á Króknum á morgun. Á morgun kl.17:30 verður sameiginlegur fundur allra framboða í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn verður í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.

2. maí 2007 Óskastjórnir Morgunblaðsins.Ritstjórn framsokn.is skrifar:"Á kosningavetri setur Morgunblaðið sig að jafnaði í stellingar. Stjórnmálamenn fá ýmist föðurlegar ráðleggingar eða eru teknir til bæna. Og síðast en ekki síst verður til óskastjórn Morgunblaðsins, sem eiga það ávallt sammerkt að Sjálfstæðisflokkurinn á þar aðild að." Greinin í heild.

1. maí 2007 Ávarp Herdísar Sæmundardóttur á Bændafundi að Staðarflöt. Ávarpið í heild.

28. apríl 2007 Byggðastofnun og Kristinn H. Herdís Sæmundardóttir skrifar: "Í grein í Mogganum þriðjudaginn 24. apríl s.l. þakkar Kristinn H. Gunnarsson sjálfum sér að hagvöxtur var sá sami á Vestfjörðum og á landsvísu árin 2000-2001. Skýringanna er þó því miður ekki að leita í stjórnarformennsku Kristins í Byggðastofnun þessi ár. Skýringin er einfaldlega sú að fiskveiðar drógust verulega saman á árinu 1999 en jukust aftur á þeim tveimur árum sem um er rætt. Á árinu 2002 og 2003 drógust svo veiðar og vinnsla aftur saman. Hafi Kristinn stundað sjóinn á árunum 2000-2001 gæti hann hafa átt þátt í uppsveiflunni þá, en ekki sem stjórnarformaður Byggðastofnunar. Mér vitanlega kom hann þó hvergi nærri sjómennskunni á þessum tíma." Grein í heild.

27. apríl 2007 Ársreikningur 2006 lagður fyrir. Frétt um málið á heimasíðu sveitarfélagsins.

24. apríl 2007 Yfirstjórn íþróttamannvirkja á Sauðárkróki sameinuð. Félags- og tómstundanefnd hefur fjallað um rekstur íþróttamannvirkja á Sauðárkróki og komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að sameina starfsemi íþróttahúss, sundlaugar og íþróttavallar í Íþróttamiðstöð á Sauðárkróki og undir stjórn eins forstöðumanns. Möguleiki verði á að fella önnur íþróttamannvirki á vegum sveitarfélagsins undir stjórn forstöðumannsins í framtíðinni. Sameining sem þessi mun hafa í för með sér nokkra hagræðingu, auk þess sem unnt verður að samnýta og mynda betri samfellu í starfsmannahaldi, ekki síst milli sumar- og vetrarstarfsemi.
Stefnt er að því að breytingin taki gildi 1. ágúst .

23.apríl 2007 Mikið fjölmenni og mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins á Sauðárkróki í gær. Fullt hús var í gær við opnun kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins á Sauðárkróki. Boðið var upp á fjölmörg tónlistaratriði auk stuttra ávarpa þriggja efstu manna.

18. apríl Opnun kosningaskrifstofa á Ísafirði og Akranesi. Í dag kl. 15 opnar Framsóknarflokkurinn í Norðvesturkjördæmi kosningaskrifstofu á Ísafirði að Hafnarstræti 8.

Á morgun kl. 16, sumardaginn fyrsta, verður síðan opnuð kosningaskrifstofa á Akranesi sem verður til húsa í Framsóknarhúsinu á Akranesi.

Framsóknarmönnum og öðrum velunnurum flokksins er boðið að mæta og fagna þessum áfanga í kosningabaráttunni með frambjóðendum flokksins.

17. apríl 2007 Atvinnuleysi, launatekjur og skólasókn. Það vilja flestir hafa lítið atvinnuleysi, háar launatekjur og að fólk sæki sér í miklum mæli menntun.

Þegar Framsóknarflokkurinn koma að ríksstjórnarsamstarfi árið 1995 var atvinnuleysi um 5% og hafði verið það í nokkurn tíma. Atvinnuleysi í dag er nær ekkert og mikil umframeftirspurn er eftir vinnuafli. Frá 1994 til 2005 er  kaupmáttaraukningin 56%. 

Þá hefur fjöldi háskólanema a.m.k. tvöfaldast á tímabilinu auk þess sem að háskólum hefur fjölgað og námsframboð hefur orðið fjölbreyttara.

Framsóknarmenn vilja ekki stopp sem leiðir atvinnuleysis og lægri launatekna heldur árangur áfram því að vinna tyggir vöxt og áframhaldandi uppbyggingu velferðar.

16. apríl 2007 Guðjón Ólafur um landsfund Sjálfstæðisflokksins. Guðjón Ólafur Jónsson alþingismaður fylgdist með landsfundum Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokkins um helgina: "Þrennt vakti sérstaklega athygli mína við landsfund sjálfstæðismanna annað en loftkennt sýningarhaldið. Hið fyrsta var ályktun um að afnema þyrfti vald forseta til að synja lögum staðfestingar samkvæmt 26. gr. stjórnarskrárinnar. Það er ljóst að sjálfstæðismenn hafa ekki gefist upp á að pönkast á forseta lýðveldisins og hafa viljað afnema þetta ákvæði stjórnarskrárinnar. ... Í annan stað skal nefna ályktun um einkavæðingu orkufyrirtækja, sem engum öðrum hefur dottið í hug að nefna á nafn. Orkufyrirtækin hafa til þessa verið í eigu almennings í formi fyrirtækja ríkis og/eða sveitarfélaga og hafa m.a. fengið aðgang að sameiginlegum náttúruauðlindum landsmanna í því skyni að vinna orku öllum almenningi til heilla. Þær auðlindir og þau auðæfi verða ekki færð einkaaðilum meðan Framsóknarflokkurinn fær einhverju um ráðið.
Í þriðja lagi hjó ég eftir því að formanni Sjálfstæðisflokksins fannst ekki nóg að gert í einkavæðingu heilbrigðiskerfisins og væri þar helst því um að kenna að þar hefði ekki verið ráðherra úr flokki formannsins. ... Almenningur er sammála okkur framsóknarmönnum hvað þetta varðar, en nýleg könnun sýnir að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill að heilbrigðisþjónustan sé á höndum opinberra aðila. Við munum áfram standa vörð um eitt sterkasta og öflugasta heilbrigðiskerfi sem völ er á. "Öll greinin á hrifla.is

12. apríl 2007 Fréttatilkynning. Meirihluti Framsóknarflokks og Samfylkingar hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna samþykktar sveitarstjórnar um frestun á skipulagi á svæði því sem að fram til þessa hefur verið rætt um sem mögulegt virkjuarsvæði í Jökulsám Skagafjarðar. Tillagan sem samþykkt var með atkvæðum Framsóknarflokks, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks er sem hér segir: “Sveitarstjórn samþykkir að í tillögu að aðalskipulagi fyrir sveitarfélagið Skagafjörð sem nú er unnið að verði frestað  skipulagningu þeirra svæða sem ætluð hafa verið fyrir Skatastaða- og Villinganesvirkjanir sbr. heimildarákv. í 20. gr. Skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997.  " Nánar

11. apríl 2007 Umhverfismálin í fyrirrúmi - Nýsköpun í atvinnulífinu - Jarðgerð ehf. Herdís Sæmundardóttir frambjóðandi Framsóknarflokksins skrifar: "Í fyrrakvöld var afar ánægjuleg frétt í sjónvarpinu héðan frá Sauðárkróki. Hún sagði frá fyrirtækinu Jarðgerð ehf. sem innan tíðar hefur starfsemi sína.

Í viðtalinu var rætt við Ágúst Andrésson, forstöðumann kjötafurðastöðvar KS, sem jafnframt er í forsvari fyrir þetta nýsköpunarfyrirtæki sem ætlað er að framleiða moltu úr lífrænum úrgangi. Sá lífræni úrgangur sem verður til hjá framleiðslufyrirtækjum héraðsins og sem ekki er hægt að nýta til fóðurframleiðslu fyrir loðdýraræktina verður nýttur til moltuframleiðslu. Við hliðina á þessu nýja fyrirtæki á Gránumóum er svo fóðurstöð KS staðsett, en þar er hluti hins lífræna úrgangs nýttur til framleiðslu á loðdýrafóðri. Fyrirtækið Jarðgerð ehf. er samstarfsverkefni Sveitarfélagsins Skagafjarðar, KS, Gámaþjónustu ÓK og Steinullarverksmiðjunnar og FISK Seafood." Meira.

7. apríl 2007 Ótrúlegur stuðningur í skoðanakönnunum við "enga stefnu".  Valdimar Sigurjónsson frambjóðandi Framsóknarflokksins skrifar: "Ótrúlegt er að fylgjast með því að hátt í helmingur þeirra sem svara í skoðanakönnunum eru tilbúnir (á þeim tímapunkti sem könnunin á sér stað) að kjósa yfir sig „enga stefnu“ til næstu fjögurra ára. Það er með ólíkindum hvað VÍS flokkarnir (Vinstri grænir, Íslandshreyfingin og Samfylking) komast undan því að svara spurningum til að negla niður hvað það er í raun sem þau ætla að gera. Þessir þrír flokkar tala um STOPP en ekkert er skilgreint hvað það þíðir. Þegar gengið er aðeins á þá er reynt að redda sér með því að tala um „frestun“ og þá í mjög óskilgreindan tíma." Meira 

4. apríl 2007 Af sundlaugarbyggingu á Hofsósi. Á fundi byggðarráðs í gær var fyrsti liður á dagskrá Sundlaugarbygging á Hofsósi. Eftirfarandi var bókað: "Sveitarstjóri kynnti viljayfirlýsingu Lilju Pálmadóttur, Steinunnar Jónsdóttur og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um samstarf í tengslum við þá rausnarlegu ákvörðun Lilju og Steinunnar að færa íbúum Hofsóss og nágrennis að gjöf sundlaugarmannvirki sem reist yrði á Hofsósi. Byggðarráð staðfestir viljayfirlýsinguna og fagnar þeim hlýhug sem Lilja og Steinunn sýna íbúum Skagafjarðar með gjöfinni. "

3. apríl 2007 Ný staðsetning á flokkunarstöð Ómars Kjartanssonar. Á fundi skipulags- og byggingarnefndar í dag voru tekin fyrir erindi frá Ómari Kjartanssyni f.h. Flokku ehf. þar sem hann óskar eftir lóð undir starfsemina austan Borgarteigs á Sauðárkróki, nánar tiltekið austur af Borgarteigi 9 og 11. Á lóðunum er fyrirhugað að byggja yfir þá starfsemi sem fyrirhugað var að risi á lóðunum Borgarflöt 9-21. Jafntframt skilaði Ómar nefndum lóðum við Borgarflöt.

30. mars 2007 Lýst eftir atvinnustefnu VG. Tekið af vef Herdísar Sæmundardóttur. "S.l. miðvikudagskvöld var bein útsending á Stöð 2 með efstu mönnum á listum flokkanna í kjördæminu.

Eins og gengur í svona þáttum var farið vítt og breitt yfir stjórnmálasviðið og frambjóðendur spurðir spjörunum úr. Flestir gátu svarað spurningunum sem til þeirra var beint með þokkalegu móti. Eitt vakti þó sérstaka athygli. Þegar Jón Bjarnason, oddviti VG í kjördæminu, var spurður um atvinnustefnu þeirra vinsti grænna kom ekkert svar.

Þrátt fyrir að þáttastjórnendur gengju á hann og gæfu honum ótal tækifæri til að útskýra atvinnustefnu síns flokks þá skilaði hann auðu hvað atvinnumál snertir.

Enn og aftur opinbera vinstri grænir hve málefnaleg fátækt þeirra er mikil. Enn og aftur verða þeir uppvísir af því að gera út á fortíðina án þess að hafa  nokkra framtíðarsýn hvað varðar atvinnumálin. Enn og aftur reyna þeir að veiða atkvæði út á það að gera stjórnarflokkana - sérstaklega Framsóknarflokkinn - tortryggilegan með afar ósmekklegum hætti."

29. mars 2007 Mikilvægi Framsóknarflokksins. Grein eftir Valdimar Sigurjónsson. "Nú styttist óðum í alþingiskosningar og flokkarnir byrjaðir að kynna áherslur sínar. Upphaf baráttunnar einkennist af miklum öfgum. Annaðhvort er fólk með eða á móti og er enginn millivegur viðurkenndur í því sambandi. Þetta er slæm þróun sem stuðlar að ómálefnalegum og óuppbyggilegum umræðum. Þessar öfgar eru ekki í anda Framsóknarflokksins sem metur litróf lífsins meira en að hægt sé að stilla því upp í tvo afarkosti. Einkenni Framsóknarflokksins hefur ávallt verið öfgalaus málflutningur þar sem málefni eru skoðuð á hlutlausan hátt og tillit tekið til mismunandi sjónarmiða. " Greinin í heild.

29. mars 2007 Lilja Pálmadóttir og Steinunn Jónsdóttir gefa 25 metra sundlaug á Hofsós. Lilja Pálmadóttir eigandi Hofs og Steinunn Jónsdóttir eigandi Bæjar á Höfðaströnd ætla að gefa íbúum Hofsóss 25 metra langa sundlaug með tilheyrandi aðstöðu. Frá þessu er greint á forsíðu héraðsfréttablaðsins Feykis sem gefið er út á norðurlandi vestra og kom út í dag.

Lilja og Steinunn skrifuðu undir viljayfirlýsingu þessa efnis með Guðmundi Guðlaugssyni sveitarstjóra í gær. Sveitarfélagið mun sjá um rekstur sundlaugarinnar að verkinu loknu. Verið er að vinna að kostnaðaráætlun, að því loknu verður framkvæmdin boðin út.

Hér er um að ræða einstakan rausnarskap og gleðileg tíðindi fyrir íbúa Hofsós og nágrennis.

28. mars 2007 Ferðasjóður íþróttafélaga að veruleika. Í júní 2006 var samþykkt þingsályktunartillaga frá menntamálanefnd Alþingis um að skipa nefnd sem falið var að gera úttekt á ferðakostnaði íþróttafélaga vegna þátttöku í viðurkenndum mótum. Þá var nefndinni jafnframt falið að setja fram tillögur um hvort og þá hvernig skuli komið á fót sérstökum sjóði til að taka þátt í þeim kostnaði. Nefndin var skipuð fulltrúum menntamálaráðherra, fjármálaráðherra, sveitarfélaga, íþróttaforystunnar og íþróttafélaga úr öllum landshlutum. Áður höfðu framsóknarþingmennirnir Hjálmar Árnason, Dagný Jónsdóttir, Birkir J. Jónsson, Magnús Stefánsson ásamt fleirum lagt fram sambærilegar þingsályktunartillögur.

Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær var síðan ákveðið að koma slíkum sjóði á og úthluti hann 30 milljónum á þessu ári, 60 milljónum á árinu 2008 og 90 milljónum árið 2009.

27. mars 2007 Byggðarráð vill viðræður um vaxtarsamning. "Byggðarráð samþykkir að óska eftir tilnefningu um tvo fulltrúa frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, einn frá Byggðastofnun og einn frá iðnaðarráðuneyti í fimm manna starfshóp er endurskoði grundvöll tillögu að vaxtasamningi er unnin hefur verið fyrir Norðurland vestra. Lagt er til að byggðaráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar tilnefni einn fulltrúa í starfshópinn sem jafnframt verði formaður hans."
Greinargerð: "Þann 23. janúar s.l. lagði byggðaráð til að frestað yrði staðfestingu á vaxtasamningi m.a. vegna óska fyrirtækja þar um. Þessir aðilar töldu samninginn þurfa hærra fjárframlag frá ríkisvaldinu og rétt væri að leita eftir frekari aðkomu opinberra stofnana og/eða fyrirtækja að samningnum. Þar sem framkvæmdanefnd um vaxtasamning hefur lokið störfum er lagt til að nýjum starfshópi verði falið að endurmeta þær forsendur þær sem framkvæmdanefndin hafði til að vinna á. Byggðarráði Skagafjarðar þykir rétt að hafa forgöngu um slíkt þar sem ráðið lagði til að undirritun væri frestað. " Byggðarráð samþykkti tillöguna samhljóða og hvatti til að vinnu við verkefni verði hraðað sem kostur er.

26. mars 2007 Ályktun um umskipunarhöfn fyrir Íshafssiglingar. Framsóknarfélag Skagafjarðar ályktaði um Íshafssiglingar fyrir skömmu og sendi ríkisstjórn Íslands.  "Framsóknarfélag Skagafjarðar skorar á ríkisstjórn  Íslands að láta kanna, í samvinnu við sveitarstjórn sveitarfélagsins Skagafjarðar, kosti þess að byggð verði fullkomin umskipunarhöfn í Skagafirði vegna flutninga milli Evrópu og Ameríku um Norður-Íshafið. Skagafjörður er breiður og djúpur og víða góð aðstaða til hafnarframkvæmda. Í tengslum við hugsanlegan iðnað í Skagafirði hafa  þegar verið gerðar nokkrar athuganir sem ýta undir þennan möguleika. Áhrif slíkrar starfsemi á samfélag og byggð þarf ekki að fjölyrða um en ljóst að áhrifanna mun gæta um allt norðurland. Skorað er að ríkisstjórnina að bregðast við nú þegar og hefja þessa athugun í samvinnu við heimamenn.  Þessi tillaga er tækifæri til stórátaks í  byggðamálum í því skyni að efla atvinnu og mannlíf á norðurlandi öllu."

23. mars 2007 Umhverfisráðherra á fundi í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki. Fundur með Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra, verður í Framsóknarhúsinu, Suðurgötu 3 á Sauðárkróki miðvikudaginn 28. mars n.k. kl.20:00. Allir velkomnir.

Nú er tækifæri til að ræða umhverfismál, nýju lögin um losun gróðurhúsalofttegunda eða annað af hinu pólitíska sviði.  Framsóknarfélag Skagafjarðar.

22. mars 2007 Af sveitarstjórnarfundi.  Sveitarstjórnarfundur í dag verður að teljast hafa verið bæði málefnalegur og góður fundur. Fyrir fundinum lágu nokkrar fundargerðir og ein tillaga. Öll mál á fundinum voru afgreidd samhljóða og um nokkrar fundargerðir urðu engar umræður. Þannig var t.d. tillögu VG um lækkun leikskólagjalda vísað til Fræðslunefndar að tillögu VG sjálfra. En í umræðunni um það mál vitnaði fulltrúi VG í aðallega í stefnuskrá Framsóknarflokksins sem hann veifaði í ræðustóli og þótti greinilega hið besta plagg.

Fyrir liggur stefnumörkun sveitarstjórnar í lækkun leikskólagjalda og leikskólagjöld verði felld niður á kjörtímabilinu.  Nú er ekki eins og tíminn sé forhlaupinn, þar sem að meirihlutinn í sveitarstjórn mun eiga eftir að leggja fram fjárhagsáætlun fyrir árin 2008, 2009 og 2010.

Að mínu viti er næsta skref sem stíga á í lækkun leikskólagjalda að hækka systkinaafslætti með það að markmiði að foreldrar greiði aðeins fyrir eitt barn í einu. Með því lækka álögurnar mest á þá mest greiða í dag.  SÁ.

21. mars 2007 Um þjóðlendumál og eignarrétt á landi. "Á opnum fundi um þjóðlendumál og eignarrétt á landi, sem Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda hélt á Blönduósi fyrir nokkru, kom fram að gerð er krafa um að 75% af landi Grýtubakkahrepps verði skilgreind sem þjóðlenda í eigu ríkisins og dæmi eru um samskonar kröfur í allt að 90% jarða. Framganga ráðuneytisins er þannig hvorki í anda þess samstarfs sem bændur og ríkisvaldið áttu í aðdraganda málsins, né í samræmi við tilgang laganna sjálfra, sem er fyrst og fremst að tryggja eignamörk bújarða, þannig að hvergi leiki vafi á um eignarrétt jarðeigenda. " segir Herdís Sæmundardóttir í grein á heimasíðu sinni um þjóðlendumálin.

20. mars 2007. Nokkur lagafrumvörp sem fóru í gegnum þingið. Af afloknu þingi hafa fjölmiðlar og einstakir stjórnmálamenn einbeitt sér að umræðu um fá mál og þá aðallega tvö þ.e. Auðlindamálið sem fór ekki í gegn og málið þar sem að fyrning kynferðisbrota gegn börnum var afnumin. En það fór fleira í gegn. Ráðherrar Framsóknarflokksins náðu m.a. eftirfarandi málum í gegn:

Félagsmálaráðherra, Magnús Stefánsson - Fæðingar- og foreldarorlof (aðgreining umönnunargreiðslna og fæðingarorlofsgreiðslna, Gatngerðargjald (heildarlög), Lögheimili og skipulags- og byggingarlög (óheimil lögheimilisskráning í frístundabyggð), Skyldur erlendra fyrirtækja og starfskjör starfsmanna þeirra (heildarlög) og Ættleiðingastyrkir (heildarlög)

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherrra, Siv Friðleifsdóttir - Heilbrigðisþjónusta (heildarlög), Heyrnar- og talmeinastöð (heildarlög), Landlæknir (heildarlög) og Sóttvarnarlög (stjórnsýsluleg staða landlæknis).

Umhverfisráðherra, Jónína Bjartmarz - Losun gróðuhúsalofttegunda (heildarlög), Náttúrvernd (rýmkun kæruréttar og aukin vernd bergtegunda), og Vatnajökulsþjóðgarður (heildarlög.

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson - Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi (framlenging), Landsvirkjun (eignarhald og fyrirsvar), Leit, rannsóknir og vinnsla kolvetnis (rannsóknir á kolvetnisauðlindum), Opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun (heildarlög, Nýsköpunarmiðstöð Íslands), Breyting á lögum á sviði Neytendastofu (áfrýjunarnefnd neytendamála, faggilding), Samkeppnislög (viðurlög við efnahagsbrotum)  og viðurlög við brotum á fjármálamarkaði (viðurlög við efnahagsbrotum.

Utanríkisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir -  heildarlög um Íslensku friðargæsluna.

Landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson - Lög um Háskólann á Hólum og framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum (sauðfjársamningur).

19. mars 2007 Færibandavinna við löggjafarstarf og hótanir um málþóf.  Að venju var mikill handagangur í öskjunni á síðasta þingdegi. Einhvern veginn get ég aldrei sætt mig þessi vinnubrögð. Ok gott og vel það er alveg mögulegt að menn hafi unnið málin vel í ráðuneytum og nefndum allan þingtímann, en hvers vegna er þá ekki hægt að ljúka málum jafnt og þétt allan þingtímann eða a.m.k. frá áramótum. Má vera að maður sjái ekki heildarmyndina í þessu þar sem maður er ekki þátttakandi en einhvern veginn lítur þetta ekki vel út.

Annað sem alltaf kemur jafnmikið á óvart við þinglok er þegar það er farið í það að láta stjórnarandstöðuna ýta þingmálum stjórnarliða út af borðinu með hótun um málþóf. Af hverju lætur stjórnin ekki bara stjórnarandstöðuna tala þegar meirihluti er fyrir málum! Varla verður henni það til vegsauka?

Það liggur ekkert mikið á að fara í kosningabaráttuna. Bæði Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn ætla að halda flokksþing eftir páska það er því ljóst að kosningabaráttan verður meira og minna háð frá 10. apríl (eftir páska) til 12. maí. SÁ.

16. mars 2007 Kynjahlutfall þeirra sem leiða lista í vor.

1. sæti Framsóknarflokkur 3 konur og 3 karlar 50%  - Jónína Bjartmarz, Siv Friðleifsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir en þær eru jafnframt allar ráðherrar.

2. sæti Vinstri grænir 2 konur og 4 karlar 33,3%.

3.-5. sæti Sjálfstæðisflokkur. Samfylkingin og Vinstri grænir 1 kona og 5 karlar 16,7%.

Þessar tölur segja meira en mörg orð um stöðu jafnréttismála í Framsóknarflokknum.

15. mars 2007 Herdís tekur sæti í veikindaleyfi Magnúsar Stefánssonar. Herdís Sæmundardóttir varaþingmaður tók í morgun sæti á Alþingi í stað Magnúsar Stefánssonar sem er í veikindaleyfi.vegna inflúensu og langvarndi álags eins og segir í  fréttatilkynningu Félagsmálaráðuneytisins. Liðan Magnúsar er að öðru leiti góð sjá nánar umfjöllun Magnúsar um þessa sérkennilegu lífsreynslu eins og hann kallar það.

14.mars 2007 Ályktun frá Framsóknarfélagi Skagafjarðar um umskipunarhöfn. Á fundi Framsóknarfélags Skagafjarðar á dögunum var samþykkt eftirfarandi ályktun: "Framsóknarfélag Skagafjarðar skorar á ríkisstjórn  Íslands að láta kanna, í samvinnu við sveitarstjórn sveitarfélagsins Skagafjarðar, kosti þess að byggð verði fullkomin umskipunarhöfn í Skagafirði vegna flutninga milli Evrópu og Ameríku um norður Íshafið. Skagafjörður er breiður og djúpur og víða góð aðstaða til hafnarframkvæmda. Í tengslum við hugsanlegan iðnað í Skagafirði hafa þegar verið gerðar nokkrar athuganir sem ýta undir þennan möguleika. Áhrif slíkrar starfsemi á samfélag og byggð þarf ekki að fjölyrða um en ljóst að áhrifanna mun gæta um allt norðurland. Skorað er að ríkisstjórnina að bregðast við nú þegar og hefja þessa athugun í samvinnu við heimamenn. Þessi tillaga er tækifæri til stórátaks í byggðamálum í því skyni að efla atvinnu og mannlíf á norðurlandi öllu."

13. mars 2007 Byggðamál efst á baugi í kosningunum í vor segir Valdimar Sigurjónsson 3. maður á lista Framsóknar í Norðvesturkjördæmi í grein í dag. "Byggðamál verða stærsta kosningamálið í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2007. Neikvæð byggðaþróun í stórum hluta kjördæmisins er fólki mikið áhyggjuefni og ekki að ástæðulausu. Þessi þróun hefur staðið í áratugi og ástæður þess eru margþættar. Hver einasti einstaklingur er afar mikilvægur og mikið áfall fyrir byggðarlögin þegar þeim fækkar." Greinin í heild.

12. mars 2007 Vinna við skólastefnu komin gott á skrið. Fordaga málsins var að á síðasta kjörtímabili, nánar tiltekið í október 2004, var samþykkt tillaga okkar framsóknarmanna sem hljóðaði svo: “Fræðslu- og menningarnefnd samþykkir að hefja nú þegar vinnu við skólastefnu fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð. Skólastefnan skal vera unnin í samráði við stjórnendur og starfsfólk viðkomandi stofnana, foreldra og aðra íbúa sveitarfélagsins.“ Í mars 2006 var síðan ákveðið að fela Jóni Hilmarssyni vinnu við heildstæða skólastefnu fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð í tengslum við meistararitgerð hans í M.Ed- námi. Unnið hefur verið að undirbúningsvinnu en nú er komið að þeim tímapunkti að drög að markmiðum og framtíðasýn skóla í Skagafirði, hafa verið send út til umsagnar skólastofnana, kennara-, foreldra- og nemendaráða auk sveitarstjórnarmanna. Næstu skref eru síðan að vinna að stefnu og leiða til að koma stefnunni í framkvæmd. Þegar meiri mynd verður komin á skólastefnuna verður hún kynnt almenningi. SÁ.

9. mars 2007 Framkvæmdir framundan. Á fundi sveitarstjórnar 22. febrúar sl. var samþykkt þriggja ára áætlun. Með henni fylgdi greinargerð um helstu mál sem unnið verður að á þessu þriggja ára tímabili. Ljóst er að þær miklu framkvæmdir sem meirihluti sveitarstjórnar ætlar sér að standa fyrir koma til með að hafa áhrif á áætlunina. Meirihlutinn vill vanda til verka og er því verið að skoða nokkrar leiðir varðandi fjármögnun.
Fyrsta verk okkar verður að byggja sex deilda leikskóla er taki við starfsemi Krílakots og Furukots. Fjárfrekasta verkefnið verður trúlega viðbygging Árskóla en reiknað er með að hafist verði handa við framkvæmdir á árinu 2008. Greinin í heild. Gunnar Bragi Sveinsson

8. mars 2007 Alþjóðlegur baráttudagur kvenna.  Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna skrifar Herdís Sæmundardóttir sem skipar 2. sætið á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi grein þar sem hún fer m.a. yfir að Framsóknarflokkurinn hefur með skipan framboðslista sinna fyrir komandi kosningar sannað að hann er jafnréttissinnaður flokkur í raun. Grein Herdísar.

7. mars 2007 Kappar áttust við í Hólminum. Tveir af frambjóðendum Framsóknarflokksins, þeir Axel Kárason Skallagrími og Sigurður Á. Þorvaldsson Snæfelli áttust við hörkuleik í Hólminum. Ólsarinn og félagsmálaráðherrann Magnús Stefánsson kíkti á leikinn og er frásögn hans með mynd hér. 

6.mars 2007 Valdimar á fundi í Fjölbraut á Akranesi. Valdimar Sigurjónsson sem skipar 3. sætið á lista okkar framsóknarmanna í kjördæminu mætti á sameiginlegan fund allra framboða í Fjölbrautaskólanum á Akranesi í dag.  Á heimasíðu Valdimars segir hann um fundinn: "Í dag byrjaði kosningabaráttan formlega í Norðvesturkjördæmi. Nemendur á félagsfræðibraut í Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi boðuðu til fundar og þar mættu fulltrúar frá öllum flokkum sem nú eiga sæti á Alþingi. Ég fékk það ánægjulega hlutverk að vera í forsvari fyrir framsókn. Nemendurnir mættu vel undirbúnir á fundinn og spurðu skemmtilegra og krefjandi spurninga. Það er gaman þegar ung fólk sýnir stjórnmálunum áhuga, ég þakka þeim fyrir vel skipulagðan fund og skemmtilegar umræður."

5. mars 2007 Gott flokksþing um helgina. Mikil eindrægni ríki á þinginu sem var mikið vinnuþing þar sem fjöldi ályktana voru samþykktar. Ályktanirnar má sjá hér.

4. mars 2007. Vefur Framsóknarfélags Skagafjarðar í loftið á ný. Í dag fer Vefur Framsóknarfélags Skagafjarðar í loftið í ný, eftir tölvuhrun. Á næstu dögum og vikum verður prjónað meira við vefinn.

 

20.01.2007 Framboðslisti samþykktur í Norðvesturkjördæmi. Framsóknarmenn í Norðvesturkjördæmi samþykktu í dag framboðslista flokksins vegna alþingiskosninganna 12. maí næstkomandi. Listinn var samþykktur samhljóða á kjördæmisþing sem haldið var að Reykjum í Hrútafirði. Hann skipa eftirtaldir:
1. Magnús Stefánsson, Snæfellsbæ
2. Herdís Sæmundardóttir, Skagafirði
3. Valdimar Sigurjónsson, Borgarbyggð
4. Svanlaug Guðnadóttir, Ísafjarðarbæ
5. Margrét Þóra Jónsdóttir, Akranesi
6. Helga Kristín Gestsdóttir, Blönduósbæ
7. Heiðar Þór Gunnarsson, Bæjarhreppi
8. Kolbrún Indriðadóttir, Húnaþingi vestra
9. Guðbrandur Ólafsson, Dalabyggð
10. Elínborg Hilmarsdóttir, Skagafirði
11. Sveinn Bernódusson, Bolungarvík.
12. Axel Kárason, Skagafirði
13. Svava H. Friðgeirsdóttir, Kaldrananeshreppi
14. Sigurður Þorvaldsson, Stykkishólmi
15. Bjarki Þór Aðalsteinsson, Akranesi
16. Jóhann Hannibalsson, Bolungarvík
17. Stefán Guðmundsson, Skagafirði
18. Ingibjörg Pálmadóttir, Akranesi

18.01.2007 Kjördæmisþing á Reykjum við Hrútafjörð á laugardaginn. Stjórn kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi hefur boðað til kjördæmisþings að Reykjum í Hrútafirði n.k. laugardag, 20. janúar kl.13. Á þinginu verða venjulega aðalfundarstörf ásamt því að gengið verður frá framboðslista flokksins. Dagskrá þingsins.

17.01.2007 Kristinn H. Gunnarsson ekki með á B-lista. Kristinn H. Gunnarsson tilkynnti í dag að hann muni ekki taka 3. sæti á B-lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, en því sæti lenti á hann í póstkosningu í nóvember sl. Kjörnefnd hefur verið kölluð saman til að bregðast við þessum tíðindum. Kjördæminsþing Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi á laugardaginn þar sem gengið verður frá framboðslista flokksins.

15.01.2007 Valgerður og Birkir leiða lista í Norðausturkjördæmi. Um helgina völdu Framsóknarmenn í Norðausturkjördæmi á framboðslista sinn. Valgerður Sverrisdóttir mun leiða listann og Birkir Jón Jónsson verða í 2. sæti. Þriðja sætið skipta Höskuldur Þór Þórhallsson á Akureyri og Huld Aðalbjarnardóttir það fimmta. Listinn í heild.

11.01.2007 Félagsfundur í Framsóknarfélagi Skagafjarðar. Mánudagskvöldið 15. janúar verður félagsfundur í Framsóknarfélagi Skagafjarðar að Suðurgötu 3 á Sauðárkróki og hefst fundurinn kl.20:00. Á dagskrá fundarins verður kosning fulltrúa á kjördæmisþing og önnur mál. Stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar.

10.01.2007 Sveitarstjórnarfundur á morgun. Boðað hefur verið til sveitarstjórnarfundar á morgun, fimmtudaginn 11. janúar kl.16:00 í Safnahúsinu við Faxatorg. Dagskrá fundarins.

09.01.2007 Kjördæmisþing í Norðvesturkjördæmi um aðra helgi. Stjórn Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi boðar til árlegs Kjördæmisþings að Reykjum í Hrútafirði laugardaginn 20. janúar n.k. kl.13:00, gert er ráð fyrir að þingstörfum ljúki síðdegis. Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem kjörnefnd leggur fram tillögu að framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Drög að dagskrá þingsins.

08.01.2007 Flokksþing 2. & 3. mars n.k. 29. flokksþing framsóknarmanna verður haldið dagana 2. og 3. mars n.k. á Hótel Sögu. Um er að ræða framhaldsþing frá því í ágúst þegar framsóknarmenn héldu flokksþing þar sem kosin var ný forysta en málefnastarfi og öðrum hefðbundnum þingstörfum var frestað. Sjá nánar

04.01.2007 Nýjir tímar í sorpmálum. Það hefur lengi tíðkast að sorp okkar Skagfirðinga hefur að megninu til verið urðað. Nú hillir í nýja tíma þar sem að gerður hefur verið samningur við ÓK gámaþjónustu um móttöku og flokkun sorps. Gert er ráð fyrir að ÓK gámaþjónusta reisi 800 fermetra skemmu þar sem tekið verður á móti öllu sorpi Skagfirðinga og það flokkað. Því næst fer sorpið í endurvinnslu og endurnýtingu. Feykir greindi frá.

03.01.2007 Mannfjöldaþróun í Skagafirði 2006. Íbúum í sveitarfélaginu Skagafirði fækkaði um 32 á síðasta ári. Á vef sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur verið tekin saman smá tafla um mannfjöldaþróun í Skagafirði á síðasta ári og frá árinu 1998. Sjá nánar.

Nýársdagur 2007 Gleðilegt ár. Óskum landsmönnum öllum gleðilegs árs.

29.12.2006 Sigfús Ingi Sigfússon nýr framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins. Sigfús Ingi Sigfússon mun taka við sem framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins frá og með áramótum. Sigfús er Skagfirðingur uppalinn að Stóru-Gröf á Langholti. Hann hefur undanfarið verið aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra, en starfaði þar áður m.a. í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu og hjá Friðriki Skúlasyni ehf. Sigfús Ingi hefur BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Stirling háskóla í Skotlandi. Sigurður Eyþórsson sem verið hefur framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins frá árinu 2003, og starfað á skrifstofu hans frá árinu 1994, lætur af störfum að eigin ósk. Sigurður mun starfa hjá flokknum fyrst um sinn og aðstoða nýjan framkvæmdastjóra.

22.12.2006 Yfirlýsing vegna umræðu um skólamál. Fjárhagsáætlun felur í sér markmiðssetningu og henni til grundvallar liggja ákveðnar tillögur eða hugmyndir. Engar ákvarðanir hafa verið teknar varðandi einstakar tillögur aðrar en tilgreindar eru sérstaklega í áætluninni. Meirihluti sveitarstjórnar harmar því þá villandi umræðu sem verið hefur um skólamál í sveitarfélaginu.

Við gerð fjárhagsáætlunar voru ræddar fjölmargar tillögur um hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins, meðal annars um grunnskólana út að austan. Þessar tillögur voru kynntar á vinnufundi með öllum sveitarstjórnarfulltrúum og varamönnum á frumstigi, en sá fundur var sá fyrri af tveim fyrirhuguðum þar sem ræða skyldi fjárhagsáætlun í hópi allra sem aðild eiga að sveitarstjórn áður en gengið yrði frá tillögu til samþykktar. Það er nýmæli að minnihlutanum í sveitarstjórn skyldi boðið í slíka vinnu.

Á kynningarfundum fræðslunefndar, á Hólum, Sólgörðum og Hofsósi hafa tillögur þessar verið kynntar, íbúar hafa haft tækifæri til að koma sínum skoðunum milliliðalaust á framfæri við nefndina og sveitarstjóra. Framhaldið er svo eins og fyrirhugað var; að úr þessum tillögum og viðbrögðum við þeim verður unnið í samstarfi við stjórnendur, starfsfólk og fulltrúa foreldra. F.h. Framsóknarflokks, Gunnar Bragi Sveinsson F.h. Samfylkingar, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir.

19.12.2006 B-listar í Reykjavíkurkjördæmunum tilbúnir. Framboðslistar Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum voru kynntir í dag. Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins leiðir listann í Reykjavík norður en Guðjón Ólafur Jónsson alþingismaður er í öðru sæti. Í Reykjavík suður leiðir Jónína Bjartmarz umhverfisráherra listann en Sæunn Stefánsdóttir alþingismaður er í öðru sæti. Listinn í Reykjavík norður - Listinn í Reykjavík suður.

16.12.2006 Til hamingju með daginn Framsóknarmenn. Í dag er Framsóknarflokkurinn 90 ára en hann var stofnaður þennan dag árið 1916. Í upphafi var flokkurinn þingflokkur en breyttist síðar í fjöldahreyfingu. Fyrsti formaður Framsóknarflokksins var Ólafur Briem sem var þingmaður Skagfirðinga 1886-1919. Punktar úr sögu flokksins.

15.12.2006 Fjárhagsáætlun fyrir 2007 samþykkt. Á fundi sveitarstjórnar í gær var fjárhagsáætlun meirihluta sveitarstjórnar samþykkt með fimm atkvæðum meirihlutans en fulltrúar minnihlutans sátu hjá við afgreiðslu hennar. Helstu niðurstöðutölur áætlunar er að finna hér í frétt á vef sveitarfélagsins og áætluna í heild hér.

14.12.2006 Framsóknarflokkurinn á 90 ára afmæli á laugardaginn. Í tilefni af 90 afmæli Framsóknarflokksins n.k. laugardag verður opið hús hjá flokknum að Suðurgötu 3 á Sauðárkróki milli kl.14 og 16.

Um kvöldið (kl.20) ætla síðan framsóknarmenn að halda Litlu jólin, snæða saman og njóta andlegs fóðurs. Framsóknarfélag Skagafjarðar.

13.12.2006 GSM-samband á Þverárfjallið og í Norðurárdal. Á baksíðu Morgunblaðsins í dag segir að í næstu viku verði opnuð tilboð í GSM-þéttingu veganna. Eftir fyrsta áfanga á GSM-kerfið að ná til alls hringvegarins og nokkurra helstu fjallvega en Þverárfjallsvegur er einn þeirra, sjá kort á vef samgönguráðuneytisins yfir þá vegakafla teknir verða í fyrsta áfanga. Af öðrum leiðum sem skipta okkur skagfirðinga máli má nefna að það verður bætt samband við Bólstaðarhlíð, í Vatnsdal, sunnan Vatnsnesfjalls og við Fornahvamm.

12.12.2006 Sveitarstjórnarfundur á fimmtudaginn. Boðað hefur verið til sveitarstjórnarfundar n.k. fimmtudag. Þar verður m.a. tekin seinni umræða um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Skagafjarðar. Dagskrá.

11.12.2006 Til hamingju með Háskólann á Hólum. Sá gleðilegi atburður varð á Alþingi íslendinga nú um helgina að ný lög voru samþykkt um Hólaskóla, sem gera hann að fullgildum háskóla. Háskólinn á Hólum byggir eins og allir vita á gömlum merg og er það við hæfi að þessi lög skuli samþykkt í lok ársins þar sem þess er minnst að 900 ár eru liðin frá því að skólahald hófst á Hólum.

Það er sérstaklega lofsvert hversu mikil samstaða var um þessa lagasetningu á Alþingi. Af Alþingi berast gjarnan fréttir af ósamlyndi og átökum en sem betur fer gerist það þó oft að stjórnmálamenn hvar í flokki sem þeir standa taka höndum saman um að afgreiða mál, sem til heilla horfa. Væri óskandi að þannig væri sem oftast staðið að verki í stjórnmálum bæði á sveitarstjórnarstigi og í landsmálunum.

Með þessum nýju lögum opnast Hólaskóla ný sóknarfæri, möguleikar á að fjölga námsleiðum og bjóða framhaldsnám auk alþjóðlegs náms á sínum sérsviðum. Er næsta víst að þessi sóknarfæri verða nýtt af því dugmikla fólki sem starfar við skólann, stjórnendum, starfsfólki og nemendum.

Sveitarfélagið Skagafjörður og fyrirtæki í héraði eru meðal stoltra bakhjarla og hollvina Hólaskóla enda er skólinn einn af stærri vinnustöðum og helstu vaxtarbroddum í okkar samfélagi. Við viljum af þessu tilefni óska Hólamönnum og þjóðinni allri til hamingju með löggjöfina um yngsta og jafnframt elsta háskóla íslendinga. Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti Framsóknarflokks og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, oddviti Samfylkingar 
08.12.2006 Þinglok á morgun laugardag. Það mun vera samkomulag um að þingið fari heim á morgun laugardag. Að vanda er hálfur annar hellingur af málum á dagskrá nú á lokasprettinum, t.d. eru samkvæmt dagskrá þingsins í dag 35 mál á dagskrá, þar af aðeins tvær atkvæðagreiðslur. Ekki er hægt að lýsa sérstökum fögnuði yfir þessum vinnubrögðum, en líklega verður maður bara að vona að ríkisstjórnin, nefndir og embættismenn hafi íhugað málin vel áður en þau voru lögð fram þar sem ekki gefst mikill tími til umræðna. SÁ.

07.12.2006 Magnús Stefánsson mælir fyrir frumvörpum um ættleiðingastyrki og umönnunargreiðslur. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi mælti fyrir tveimur frumvörpum til laga á Alþingi í gærkvöld, annars vegar um ættleiðingarstyrki og hins vegar um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof. „Samstaða er á þingi um að afgreiða frumvörpin sem lög fyrir jól,“ segir félagsmálaráðherra, „þannig að þeir sem eigi rétt á greiðslum samkvæmt lögunum geti fengið þær frá og með gildistöku þeirra 1. janúar næstkomandi.“ Samkvæmt frumvörpunum verða ættleiðingarstyrkir veittir hér á landi í fyrsta sinn og umönnunargreiðslur gerðar samrýmanlegar fæðingarorlofsgreiðslum. Frá þessu segir á vef Félagsmálaráðuneytisins.

06.12.2006 Fjárhagsáætlunarvinna í fullum gangi. Eins og sjá má á fundargerðum nefnda sveitarfélagsins er fjárhagsáætlunargerð í fullum gangi. Fyrri umræða fór fram 30. nóvember í sveitarstjórn en áður þann 27. nóvember var sameiginlegur vinnufundur sveitarstjórnar um áætlunina. Gert er ráð fyrir að fjárhagsáætlunin verði tekin fyrir á sveitarstjórnar fimmtudaginn 14. desember n.k.

05.12.2006 Magnús Stefánsson undirritað styrk við Sjónarhól. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Andrés Ragnarsson, stjórnarformaður Sjónarhóls, undirrituðu í dag samning um styrk frá félagsmálaráðuneytinu til ráðgjafarmiðstöðvarinnar sem nemur 15 milljónum króna á ári í þrjú ár. Andrés segist líta svo á að starfsemin hafi hér með verið fest í sessi. Fréttin í heild.

04.12.2006 Mikið framboð af frambjóðendum í NA-kjördæmi. Á vef Framsóknarflokksins er greint frá því að 22 gefi kost á sér í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Sjá nánar.

1. desember 2006. Til hamingju með Fullveldisdaginn.

30.11.2006 Langur en góður sveitarstjórnarfundur. Í gær kom sveitarstjórn saman til fundar og eins og við mátti búast var fundurinn í lengra lagi en sveitarstjórn hafði ekki komið saman frá því í byrjun mánaðarins og því margt á dagskrá. Skv. fundargerð tók fundurinn fjóra og hálfan tíma en tók í raun hátt í fimm tíma með upplestri fundargerðar og frágangi. Fundurinn einkenndist af góðum umræðum og þrátt fyrir að sjálfsögðu greini menn á um einstaka hluti að þá voru mál rædd á góðu nótunum og umfram allt að þá voru umræður málefnalegar.

Lítilsháttar ágreiningur var um skilning á fundargerð atvinnu- og ferðamálanefndar en úr honum var greitt og komu sveitarstjórnarfulltrúar sér niður á sameiginlegan skilning eftir stutt fundarhlé. Umræður um fjárhagsáætlun voru ekki miklar en ég skil það þannig að það sé sameiginlegur skilningur allra sveitarstjórnarfulltrúa að staðan sé erfið. Þess vegna þarf að fara yfir alla hluti og setja sér raunhæf en jafnframt metnaðarfull markmið sem innihalda að fara yfir alla hluti þannig að við förum sem best með fjármuni sveitarfélagsins, jafnframt því að halda áfram uppi háu þjónustustigi. SÁ.

29.11.2006 Sveitarstjórnarfundur á morgun. Boðað hefur verið til sveitarstjórnarfundar á morgun kl.16 í Safnahúsinu við Faxatorg á Sauðárkróki. Dagskrá fundarins. 

28.11.2006 Samráðsfundur um fjárhagsáætlun. Sveitarstjórnarfulltrúar, ásamt fyrsta varamanni hvers flokks, komu saman til fundar í gær til að fara yfir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins ásamt því að vinna að gerð fjárhagsáætlunar næsta árs. Þetta var ágætis tilraun í þá átt að meiri-og minnihluti í sveitarstjórn komi sameiginlega að gerð fjárhagsáætlunar. Mín upplifun var sú að allir vildu bæta rekstur sveitarfélagsins án þess að draga úr þjónustu. Eins og fram hefur komið er fjárhagsstaða sveitarfélagsins ekki eins og best verður á kosið. Fyrri umræða um fjárhagsáætlun verður n.k. fimmtudag. SÁ.

27.11.2006 Ræða Jón Sigurðssonar á miðstjórnarfundi. Á laugardaginn var fundur miðstjórnar Framsóknarflokksins haldinn í Reykjavík. Mesta athygli vakti ræða Jóns Sigurðssonar formanns flokksins og yfirlýsingar hans varðandi ákvarðanatöku Halldórs og Davíðs í Íraksmálum. Minni athygli hefur hins vegar vakið skýr skilgreining hans á hlutverki Framsóknarflokksins og stöðu hans í íslenskri pólitík. Ræðan í heild.

24.11.2006 Skelfir Árni Johnsen Sjálfstæðisþingmenn? Ef marka má Fréttablaðið í dag að þá skelfast þingmenn Sjálfstæðisflokksins það ákaflega að Árni Johnsen skuli vera í framboði fyrir flokkinn. Þar er rætt um að Árni geti tekið fylgi af flokknum í öllum kjördæmum og að málið hafi verið tekið upp á þingflokksfundum og skv. heimildum Fréttablaðsins er víðtæk og hörð andstaða meðal þingmanna gegn því að flokkurinn bjóði Árna Johnsen fram til Alþingis. Sjá forsíðu og bls. 2 í Fréttablaðinu í dag.

24.11.2006 Miðstjórn Framsóknarflokksins kemur saman á morgun. Dagskrá er að finna á vef Framsóknarflokksins.

23.11.2006 Sýndarmennska Magnúsar Þórs Hafsteinssonar. Á vef sínum ritar Dagný Jónsdóttir um upphlaup og sýndarmennsku Magnúsar Þórs Hafsteinssonar. Greinin hefst á orðunum "Það gerist ekki mjög oft að ég reiðist heiftarlega." Greinin í heild.

23.11.2006 Landssamband Framsóknarkvenna 25 ára. "Móttaka vegna 25 ára afmælis Landssambands framsóknarkvenna verður haldin næstkomandi laugardag 25. nóvember, kl. 17.00 í þingsal 4 á Hótel Loftleiðum. Framsóknarmenn um allt land eru hvattir til að fjölmenna í afmælið og samfagna árunum 25 og því mikla og öfluga starfi sem framsóknarkonur hafa unnið - Framsóknarflokknum til framdráttar." Tilkynning af vef LFK.

22.11.2006 Formlegt samráð allra flokka við fjárhagsáætlunargerð. Á fundi byggðarráðs í dag var ákveðið að næsta föstudag verði boðað til formlegs samráðsfundar allra flokka sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn ásamt fyrsta varamanni hvers framboðs um fjárhagsáætlun ársins 2007.

21.11.2006 Utan flokka þingmenn. Nokkrir þingmenn hafa verið utan flokka undanfarin ár en það verður þó að teljast til undantekninga. Mun fleiri dæmi eru þess hins vegar að menn hafi talist utanflokka ef að leitað er aftur á 4. áratuginn hvað þá er farið er lengra aftur. Nýjasta dæmið er auðvitað Valdimar Leó Friðriksson.

Fyrir síðustu kosningar ákvað Kristján Pálsson eftir hrakningar í uppstillingu Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi að yfirgefa þingflokk Sjálfstæðisflokksins og vera utanflokka á þingi. Hann fór síðan í sérframboð (T-listinn) en hafði ekki erindi sem erfiði. Hann reyndi síðan aftur fyrir sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi en hafði ekki erindi sem erfiði og lenti í 11. sæti af 13.

Næstur á undan honum var Kristinn H. Gunnarsson sem var utan flokka í nokkra mánuði eftir að hann gekk úr Alþýðubandalaginu í þeirri deiglu sem var þegar að Samfylkingin og Vinstri grænir voru að verða til. Hann kaus þá að fylgja hvorugum hópnum en hann gekk til liðs við Framsóknarflokkinn og hefur verið þingmaður þess flokks síðan.

Á svipuðum tíma var Kristín Halldórsdóttir utan flokka í nokkra daga eftir að hún yfirgaf Kvennalistann en hún kaus síðan að ganga til liðs við þingflokk "Óháðra" (magnað að öfgavinstrimenn skuli hafa kallað sig því nafni) sem var forveri VG og sömuleiðis Kristín Ásgeirsdóttir flokkssystir hennar.

Jóhanna Sigurðardóttir yfirgaf Alþýðuflokkinn veturinn fyrir kosningarnar 1995 og stofnaði Þjóvaka sem náði ágætum árangri í kosningum 1995. Hún gekk síðan í þingflokk Jafnaðarmanna sem var forveri Samfylkingarinnar. Hún hefur setið á þingi samfleytt frá 1978 og er nú aldursforseti þingsins. heimild: Vefur Alþingis.

20.11.2006 Valdimar Leó Friðriksson komst á þing fyrir Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi þegar að Guðmundur Árni Stefánsson afsalaði sér þingmennsku og Ásgeir Friðgeirsson sem var næstur á lista afsalaði sér því að verða þingmaður, en Valdimar skipaði 6. sætið í kosningunum 2003. Í prófkjöri Samfylkingarinnar um daginn sóttist hann eftir að halda áfram á þingi en var hafnað með mjög afgerandi hætti, lenti í 14. sæti með aðeins 27,7% í efstu átta sætin. Meira afgerandi gerist höfnunin varla hjá sitjandi þingmanni. Viðbrögð Valdimars koma nokkuð á óvart en hann hefur sagt sig úr Samfylkingunni og kýs að sitja utan flokka fram að kosningum.

18.11.2006 Leiðrétting á frétt í Morgunblaðinu. Í Morgunblaðinu í dag er haft eftir undirrituðum að fjölgað hafi um 500 manns í Framsóknarflokknum í Norðvesturkjördæmi fyrir prófkjör flokksins. Jafnframt er haft eftir mér að mest aukning hafi verið í Skagafirði. Hið rétta er að ég tjáði blaðamanni að mest aukning hefði orðið í Skagafirði og á norðanverðum Vestfjörðum.

Sigurður Árnason formaður Kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi.

18.11.2006 Næstu skref í uppstillingarmálum. Nú af afloknu prófkjöri þar sem fimm efstu sætin voru ákveðin, mun uppstillingarnefnd taka sér smá andrými, en hefja síðan vinnu við að gera tillögu um sæti nr. 6.-18. og leggja fyrir kjördæmisþing. Dagsetning kjördæmisþings hefur ekki verið ákveðin.

18.11.2006 Úrslit í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi.

Lokatölur:

1.

1.-2.

1.-3.

1.-4.

1.-5.

1.Magnús Stefánsson

883

1.079

1.207

1.293

1.362

2.Herdís Sæmundardóttir

41

979

1.155

1.273

1.380

3.Kristinn H. Gunnarsson

672

773

879

932

986

4.Valdimar Sigurjónsson

9

99

732

1.024

1.235

5.Inga Ósk Jónsdóttir

3

118

320

830

1.172

í sjötta sæti lenti G. Valdimar Valdimarsson, í sjöunda sæti Albertína Elíasdóttir og Heiðar Þór Gunnarsson í því áttunda.

Á kjörskrá voru 2.522, samtals greiddu 1.674 atkvæði eða 66,38%. Einn seðill var auður og 60 ógildir.

18.11.2006 Staðan þegar búið er að telja 1.300 atkvæði.

1. Magnús Stefánsson með 699 atkvæði 1. sæti Kristinn H. Gunnarsson er með 526 atkvæði í það sæti.

2. Herdís Sæmundardóttir með 769 atkvæði í 1.-2. sæti. Næstur henni er Kristinn með 599 atkv.

3. Kristinn H. Gunnarsson er með 682 atkvæði í 1.-3. sæti. Valdimar Sigurjónsson kemur næstur honum með 576 atkvæði í fyrstu þrjú sætin.

4. Valdimar Sigurjónsson með 800 atkvæði í 1.-4. sæti

5. Inga Ósk Jónsdóttir með 909 atkvæði í 1.-5. sæti.

Í sjötta sæti er G. Valdimar Valdimarsson, í því sjöunda er Albertína Elíasdóttir og í því áttunda Heiðar Þór Gunnarsson.

17.11.2006 Búið að telja 1.000 atkvæði. Þegar 1.000 atkvæði hafa verið talin er staðan þannig:

1. Magnús Stefánsson með 539 atkvæði 1. sæti

2. Herdís Sæmundardóttir með 590 atkvæði í 1.-2. sæti

3. Kristinn H. Gunnarsson með 515 atkvæði í 1.-3. sæti

4. Valdimar Sigurjónsson með 629 atkvæði í 1.-4. sæti

5. Inga Ósk Jónsdóttir með 689 atkvæði í 1.-5. sæti.

17.11.2006 Búið að telja 500 atkvæði. Þegar 500 atkvæði hafa verið talin er staðan þannig:

1. Magnús Stefánsson með 275 atkvæði 1. sæti

2. Herdís Sæmundardóttir með 290 atkvæði í 1.-2. sæti

3. Kristinn H. Gunnarsson með 259 atkvæði í 1.-3. sæti

4. Valdimar Sigurjónsson með 307 atkvæði í 1.-4. sæti

5. Inga Ósk Jónsdóttir með 366 atkvæði í 1.-5. sæti.

17.11.2006 Þrjúhundruð atkvæði talin. Þegar 300 atkvæði hafa verið talin er staðan þannig

1. Magnús Stefánsson með 169 atkvæði 1. sæti

2. Herdís Sæmundardóttir með 178 atkvæði í 1.-2. sæti

3. Kristinn H. Gunnarsson með 157 atkvæði í 1.-3. sæti

4. Valdimar Sigurjónsson með 183 atkvæði í 1.-4. sæti

5. Inga Ósk Jónsdóttir með 230 atkvæði í 1.-5. sæti.

17.11.2006 Magnús efstur eftir 150 atkvæði. Þegar 150 atkvæði hafa verið talin er Magnús Stefánsson efstur með 80 atkv. í 1. sæti, Herdís Sæmundardóttir er með 79 atkv. í 2. sæti, Kristinn H. Gunnarsson er með 80 atkv. í 1.-3. sæti, Valdimar Sigurjónsson með 90 atkvæði í 1.-4. sæti og Inga Ósk Jónsdóttir er með 113 atkvæði í 1.-5. atkvæði.

17.11.2006 Afstemmingu atkvæða lokið - talning hafin. Alls greiddu 1666 atkvæði af þeim 2522 sem voru á kjörskrá eða 66,06%. Fyrstu tölur verða birtar kl.22:00.

16.11.2006 Talið í póstkosningu Framsóknarflokksins í NV-kjördæmi annað kvöld. Annað kvöld, föstudaginn 17. nóvember verður talið í póstkosningu Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Talningin fer fram á Borðeyri við Hrútafjörð og hefst kl.20:00. Þar sem segja má að öll atkvæði séu í raun utankjörfundaratkvæði verður nokkuð tímafrekt að hefja talningu en kjörnefnd stefnir að því að birta fyrstu tölur kl.22:00 - líklega fréttum RÚV. Tölur verða einnig birtar hér á þessari síðu með reglubundnum hætti þar til úrslit liggja fyrir.

16.11.2006 Fjármálaráðstefna sveitarfélaga hafin. Klukkan tíu í morgun hófst fjármálaráðstefna sveitarfélaga á Nordica Hótel í Reykjavík með ræðu formanns. Hægt er að sjá dagskrá og erindi sem flutt verða á vef Sambands ísl. sveitarfélaga.

15.11.2006 SUS snuprar Árni Johnsen. Samband ungra sjálfstæðismanna sá ástæðu til þess að setja ofan í við Árna Johnsen vegna þeirra ummæla hans að hann hefði gert "tæknileg mistök". Í ályktun SUS segir að ekki hafi verið um "tæknileg mistök" að ræða heldur alvarleg og mjög ámælisverð brot.

Formaður SUS er Borgar Þór Einarsson fóstursonur Geirs H. Haarde formanns Sjálfstæðisflokksins.

15.11.2006 "Tæknileg mistök" kostuðu fangavist og þingsæti ! Orð gærdagsins voru þau ummæli Árna Johnsen fyrrverandi og líklega verðandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins að hann hefði gert "tæknileg mistök" sem kostuðu hann fangavist. Í frétt RÚV segir: "Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, segist iðrast vegna þeirra tæknilegu mistaka sem hann gerði og urðu til þess að hann þurfti að segja af sér þingmennsku, og var dæmdur fyrir bæði mútuþægni og fjárdrátt." ... "Árni var dæmdur í Hæstarétti fyrir að hafa þegið 650.000 króna mútugreiðslu, fyrir fjárdrátt, með því að taka út vörur í verslunum fyrir hátt í fjórðu miljón króna og skrifa þær á bygginganefnd Þjóðleikhússins, fyrir umboðssvik, og fyrir að hafa gefið rangar skýrslur til yfirvalda." ... Sjá frétt RÚV

14.11.2006 Póstkosning Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Síðasti dagur til að koma atkvæði sínu í póst er á morgun miðvikudaginn 15.nóvember. Hægt er að koma atkvæðum til kjörnefndarmanna og á skrifstofu flokksins í Reykjavík fram til kl.17:00 n.k. föstudag. Þá tekur kjörnefnd við atkvæðum á talningarstað á Borðeyri við Hrútafjörð þar til talning hefst föstudaginn 17. nóvember kl.20:00.

13.11.2006 Skattleysismörk hækka um áramót. Ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp um breytingar á skattalögum til að stuðla að áframhaldandi stöðugleika á vinnumarkaði og í samræmi við yfirlýsingar þar að lútandi síðan í júní 2006. Um næstu áramót lækkar tekjuskattur um 1% og persónuafsláttur hækkar einnig um áramótin um 356.180 kr. í 385.800 kr. á ársgrundvelli auk þess sem hann verður tengdur vísitölu neysluverðs og hækkar í samræmi við hana. Sjá fréttina í heild.

12.11.2006 Seinna vika póstkosningar. Nú er að hefjast seinni vika póstkosningar Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Flokksmenn eru minntir á að koma atkvæðum sínum til skila sem fyrst. Kosningunni lýkur föstudaginn 17. nóvember kl.20:00 er talning hefst á Borðeyri við Hrútafjörð.

11.11.2006 Breytingar á skipulagi Framsóknarflokksins í Reykjavík? Á vefriti Framsóknarmanna í Reykjavík, Hriflunni, má lesa eftirfarandi ályktun frá kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Reykjavík-Suður:

"Kjördæmisþing KFRS haldið 9. nóvember 2006 telur að skipting kjördæmissambandanna í Reykjavík hafi ekki staðist þær væntingar sem til var stofnað. Þessi skipting hefur í raun orðið til þess að í stað þess að flokkurinn sé samhentur og sterkur í höfuðborginni, sitjum við uppi með tvö flokksbrot og óviðunnandi árangur miðað við þær væntingar sem við gerum til flokksins í höfuðborginni. Aðalfundur KFRS samþykkir því að beina þeim tilmælum til félaga okkar í Reykjavíkurkjördæmi norður að ganga til viðræðna með það að markmiði að sameina kjördæmissamböndin í Reykjavík. Felur fundurinn stjórn KFRS að annast viðræður við stjórn KFRN um framkvæmd málsins."

10.11.2006 Breytingar á fundartímum forystu Framsóknarflokksins. Vegna prófkjörs í Norðvesturkjördæmi og póstkosningar dagana 3.-17. nóvember hefur fundum flokksforystunnar, sem áður höfðu verið auglýstir í kjördæminu, verið frestað. Fundurinn sem vera átti á Sauðárkróki á þriðjudaginn kemur verður því Mánudaginn 27. nóvember kl.20:00 á Kaffi Krók.

09.11.2006 Uppstilling í Reykjavík-suður. Á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í kvöld var ákveðið að viðhafa uppstillingu á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra gefur áfram kost á sér til að leiða listann, en Björn Ingi Hrafnsson borgarfulltrúi og varaþingmaður lýsti því yfir að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér á listann en einbeita sér þess í stað að borgarmálunum.

08.11.2006 Eftirlitsnefndin skrifar sveitarfélaginu. Á fundi Byggðarráðs í gær var lagt fram bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dagsett 26. október 2006. Í bréfinu segir: "Nefndin hefur athugað ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2005 með hliðsjón af fjárhagsáætlun ársins og fjárhagsáætlun fyrir árið 2006 ásamt greinargerð sveitarstjórnar vegna neikvæðrar rekstrarniðurstöðu á árinu 2006. Fram kemur að mat nefndarinnar er að rekstrarafkoma sveitarsjóðs er óviðunandi. Óskar nefndin eftir að henni verði gerð grein fyrir því hvernig sveitarstjórn hyggst bregðast við viðvarandi halla á rekstri sveitarsjóðs. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hver þróunin hefur verið í fjármálum sveitarfélagsins á árinu 2006 í samanburði við fjárhagsáætlun ársins. "

"Sveitarfélagið Skagafjörður aldrei staðið eins vel og nú" var heiti á grein sem birtist 19. maí 2006 og skrifuð var af fyrrverandi sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagafjarðar og sveitarstjórnarfulltrúa VG. Eitthvað hljómar þessi fyrirsögn undarlega í dag.

07.11.2006 Úttekt á aðgegnismálum fatlaðra. Í fundargerð Félags- og tómstundanefndar í dag kemur fram að starfsmenn sveitarfélagsins, þeir Kristján Kristjánsson, Jón Örn Berndsen ásamt Gunnari Sandholt hafi mætt á fund nefndarinnar í dag gert grein fyrir framvindu úttektar á aðgengismálum fatlaðra. Staðan er þannig að unnið er að úttekt á byggingum í eigu sveitarfélagsins í fyrsta áfanga. Um er að ræða samþykkt sveitarstjórnar frá árinu 2003 sem sofnaði í tíð fyrri meirihluta Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks.

06.11.2006 Björn Ingi Hrafnsson tekur sæti á Alþingi. Í fjarveru Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra, tók Björn Ingi Hrafnsson varaþingmaður og borgarfulltrúi sæti hennar á Alþingi. Þetta er í fyrsta skipti sem Björn Ingi tekur sæti á Alþingi sem alþingismaður.

03.11.2006 Prófkjör Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi hefst í dag. Í dag verða send út kjörgögn í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Flokksmenn eru hvattir til að nýta sér kosningarétt sinn, kynna sér vel leiðbeiningar sem fylgja með gögnum og skila inn atkvæðum sínum sem fyrst. Talning fer fram þann 17. nóvember á Borðeyri við Hrútafjörð, sem er nokkurn veginn í miðju kjördæminu.

02.11.2006 Landsvirkjun verður ekki einkavædd. Kaup ríkisins á hlutum Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun voru rædd á Alþingi í gær. Í umræðum um málið kvað Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, skýrt á um það að ekki stæði til að einkavæða fyrirtækið. Orðrétt er haft eftir honum í Fréttablaðinu: "Það liggur ekki fyrir að fyrirtækið verði selt, allra síst einkaaðilum. Það liggur þvert á móti fyrir að við þetta verður látið sitja." Hann sagði það einnig sinn skiling á málinu að ríkið hefði tekið yfir ábyrgðir sveitarfélaganna tveggja vegna Landsvirkjunar.

01.11.2006 Sveitarstjórnarfundur á morgun. Fundur hefur verið boðaður í sveitarstjórn Skagafjarðar á morgun fimmtudaginn 3. nóvember kl.16:00 í Safnahúsinu við Faxatorg á Sauðárkróki. Dagskrá fundarins.

31.10.2006 Prófkjör helgarinnar. Tvö prófkjör fóru fram um helgina. Annars vegar var prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík og hins vegar prófkjör Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi. Fyrirfram var búist við því að þingmenn Sjálfstæðisflokksins myndu raða sér í níu efstu sætin ásamt þeim Illuga Gunnarssyni og Guðfinnu Bjarnadóttur.Það gekk eftir. Minna var hins vegar vitað um hvað myndi gerast í Norðvesturkjördæmi enda margir um hituna.

Ímynd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eftir þetta prófkjör er sú að frjálshyggjuáherslunar hafi orðið meira áberandi ef eitthvað er. Þannig hefur Guðlaugur Þór sem lenti í 2. sæti, ítrekað hnýtt í Íbúðalánasjóð, Illugi Gunnarsson sem náði 5. sæti vill selja Landsvirkjun, Ásta Möller sem lenti í 7. sæti vill aukinn einkarekstur í heilbrigðisgeiranum svo ekki sé minnst á þá Pétur Blöndal (nr.6), Sigurð Kára (nr.8) og Birgi Ármannsson (nr.9). Þá er einn aðalpenni frjálshyggjuritsins Vefþjóðvilijans, Sigríður A. Andersen, í líklegu varamannssæti.

Í Norðvesturkjördæmi varð niðurstaðan sú að Guðbjartur Hannesson sigraði með innan við 30% atkvæða í 1. sæti og annar varð Karl V. Matthíasson prestur og fyrrv. alþingismaður, sem segja má að hafi risið upp frá pólitískum dauða. Anna Kristín Gunnardóttir, alþingismaður á Sauðárkróki, reið hins vegar ekki feitum hesti frá prófkjörinu hlaut aðeins 36% atkvæða í fyrstu þrjú sætin. Það þýðir reyndar einnig að 63% þeirra sem tóku þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar höfnuðu eina sitjandi þingmanni flokksins sem sóttist eftir endurkjöri. SÁ.

30.10.2006 Framboðsmál í Suðvestur og Reykjavík norður. Á kjördæmisþingi í Reykjavíkurkjördæmi norður var samþykkt að viðhafa uppstillingu við val á lista. Í Suðvesturkjördæmi rann út framboðsfrestur fyrir prófkjör sem viðhaft verður á tvöföldu kjördæmisþingi þann 4. nóvember n.k. Átta gefa kost á sér. Siv Friðleifsdóttir sækist ein eftir 1. sætinu. Eftir öðru sætinu sækjast þau Gísli Tryggvason, Samúel Örn Erlingsson, Una María Óskarsdóttir og Þórarinn E. Sveinsson. Hlini Melsteð Jóngeirsson sækist eftir 3.-6. sæti, Kristbjörg Þórisdóttir eftir 4. sæti og Gunnleifur Kjartansson eftir 4.-6. sæti.

27.10.2006 Kynningarsíður frambjóðenda komnar á netið. Tenglar á síðu hvers og eins frambjóðanda er að finna á Upplýsingasíðu um prófkjör Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi hér að ofan.

26.10.2006 Aðalfundur Framsóknarfélags Skagafjarðar er í kvöld fimmtudagskvöldið 26. október í Framsóknarhúsinu að Suðurgötu 3 og hefst kl. 20:30. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.

26.10.2006 Prófkjör í Norðvesturkjördæmi - Kjörskrá lokar í dag. Frestur til að skrá sig félög Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi og öðlast þátttökurétt í prófkjöri flokksins sem fer fram í póstkosningu 3.-17. nóvember n.k. lýkur í dag.

25.10.2006 Úttekt á aðgengismálum fatlaðra endurvakin. Á fundi Félags- og tómstundarnefndar í gær var tekin fyrir samþykkt frá síðasta sveitarstjórnarfundar sem gekk út að endurvekja vinnu við úttekt á aðgengismálum fatlaðra en sveitarstjórn samþykkti að fara í slíka úttekt árið 2003.

24.10.2006 Tvískinnungur VG. Upp á síðkastið hafa ferlimál fatlaðra orðið Vinsti grænum afar hugleikin og þá sérstaklega fulltrúa þeirra í sveitarstjórn, Bjarna Jónssyni og fer hann mikinn í ræðu og riti. Þessi áhugi, sem virðist hafa vaknað eftir að Vg lenti í minnihluta í sveitarstjórn, er vissulega jákvæður ef hægt væri að taka mark á honum. En svo er ekki, því að á síðasta kjörtímabili vakti fulltrúi Vg aldrei máls á þessum atriðum eða virtist hafa áhyggjur af því að þessi mál væru ekki í nógu góðu lagi hér í sveitarfélaginu. Sem dæmi má nefna að starfsfólk Árskóla var búið að biðja um lyftu fyrir fatlaða nemendur skólans oftar en einu sinni en ekki varð síðasti meirihluti við þeirri beiðni. Eitt fyrsta verk nýs meirihluta var að leysa þann vanda til bráðabirgða en með framkvæmdum við skólann verður leyst úr þeim vanda til frambúðar. Þá má geta þess að verið er að kanna kosti þess að bæta aðgengi í Safnahúsinu á sama hátt.

Á síðasta sveitarstjórnarfundi lagði oddviti Vg fram tillögu um starfshóp í ferlimálum fatlaðra. Þeirri tillögu var vísað frá, einfaldlega vegna þess að í nóvember 2003 samþykkti sveitarstjórn tillögu Grétu Sjafnar Guðmundsdóttur fulltrúa Skagafjarðarlistans þess efnis að settur yrði á laggirnar vinnuhópur um ferlimál fatlaðra. Þessi hópur hefur ekki skilað af sér, því er eðlilegt að ganga eftir vinnu hans frekar en mynda nýjan. Það virðist hafa gleymst að þessi vinnuhópur er til og var oddviti Vg þó í góðri aðstöðu fram í júní á þessu ári til að hafa áhrif á þar á, þ.e.a.s meira en tvö ár.

Á síðasta fundi sveitarstjórnar bókaði fulltrúi Vg stíft vegna meints áhugaleysis núverandi meirihluta í ferlimálum fatlaðra en gat þó engan veginn svarað því hvers vegna ekkert var gert í þeim málum á síðasta kjörtímabili þrátt fyrir tillögu þar um. Þess vegna er áhugi Vg á þessum málum ekki sannfærandi, svo ekki sé meira sagt. Þórdís Friðbjörnsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknarflokks.

23.10.2006 Átta í framboði í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Kjörnefnd bætti við tveimur frambjóðendum í prófkjör Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi sem haldið verður með póstkosningu 3.-17. nóvember n.k. Þau eru Albertína Elíasdóttir umsjónarmaður á Ísafirði og Heiðar Þór Gunnarsson verslunarrekandi á Borðeyri.

21.10.2006 Sex framboð bárust. Framboðsfrestur í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi rann út í gærkvöldi. Sex gáfu kost á sér, þeir eru: G.Valdimar Valdimarsson kerfisfræðingur sem stefnir á 3. sætið, Herdís Á. Sæmundardóttir varaþingmaður sem stefnir á 2. sætið, Inga Ósk Jónsdóttir viðskiptafræðingur sem stefnir á 3. sætið, Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður sem stefnir á 1. sætið, Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra sem stefnir á 1. sætið og Valdimar Sigurjónsson viðskiptalögfræðingur sem stefnir á 3. sætið. Kjörnefnd er heimilt að bæta við frambjóðendum.

20.10.2006 Framboðsfrestur í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi rennur út í kvöld kl.22:00. Framboðum með tilskyldum fjölda meðmælenda skal skila til kjörnefndar (einhvers kjörnefndarmanna). Sjá nánar á upplýsingasíðu prófkjörsins hér að ofan.

19.10.2006 Skagafjarðarveitur ehf. hefja hönnun að hitaveitu Út að austan. Stjórn Skagafjarðarveitna ehf. ákvað á stjórnarfundi í dag að hefja vinnu við verkhönnun á lögn hitaveitu frá borholu í Hrollleifsdal í austanverðum Skagafirði að Hofsós. Um er að ræða virkjun holunnar og 16 km. langa stofnlögn ásamt dreifilögnun. Rannsóknir á holunni gefa upp líklega vinnslugetu upp á 15 lítra/sek af 83°C heitu vatni. Fyrirhugað er að bjóða verkið út á næsta ári.

18.10.2006 Sveitarstjórnarfundur á morgun. Sveitarstjórn hefur verið boðuð til fundar á morgun fimmtudaginn 19. október kl.16:00 í Safnahúsinu við Faxatorg. Dagskráin er hér.

17.10.2006 Endurskoðun fjárhagsáætlun lögð fram í dag. Þær breytingar sem hafa verið gerðar eru eingöngu þær samþykktir sem sveitarstjórn hefur gert á árinu en auk þess eru tekjum breytt til samræmis við álagningu ársins. Gert er ráð fyrir að heildarhalli sveitarfélagsins á árinu verði 164,8 millj. kr. Eftirfarandi bókun var gerð: "Ljóst er að fjárhagsstaða sveitarfélagsins er mun verri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Mikilvægt er að fjárhagsáætlun sé nýtt sem stjórntæki og því samþykkir byggðarráð að allar breytingar sem samþykktar eru hverju sinni á fjárhagsáætlun verði settar strax inn í áætlunina og henni breytt, þannig að hún gefi raunhæfa mynd. " 

16.10.2006 Upplýsingasíða vegna prófkjörs opnuð. Opnuð hefur verið upplýsingasíða vegna prófkjörs Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi sem haldið verður með póstkosningu dagana 3.-17. nóvember n.k. Á síðunni er að finna helstu dagsetningar, reglur og frambjóðendur. Tengil á síðuna er að finna hér að ofan.

13.10.2006 Kjörnefnd Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi auglýsir eftir framboðum. Auglýsingin hljómar svo: "Hér með er auglýst eftir framboðum vegna vals á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2007.

Valið verður í 5 efstu sæti listans með póstkosningu meðal félagsmanna sem fer fram 3.-17. nóvember 2006. Framboðum skal skila til kjörnefndar fyrir kl.22:00 föstudaginn 20. október 2006. Frambjóðendur skulu gefa kost á sér í ákveðin sæti, eitt eða fleiri, þegar þeir tilkynna um framboð sitt. Að baki hvers frambjóðanda skulu að lágmarki vera 10 og að hámarki 20 flokksbundnir meðmælendur. Með tilkynningu um framboð hvers frambjóðanda skal fylgja stutt æviágrip ásamt mynd sem hægt er að nota til kynningar á frambjóðandanum.

Kjörnefnd Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi skipa: Sveinbjörn Eyjólfsson formaður, Sveinn Bernódusson, Elfa Björk Bragadóttir, Inga Guðrún Kristjánsdóttir og Ingi Björn Árnason. "

Á næstu dögum mun opna upplýsingasíða um prófkjörið á þessari heimasíðu.

12.10.2006 Farvegur þjóðarsáttar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma? Nefnd á vegum iðnaðarráðherra leggur til fjölmargar breytingar á lögum og reglum um hvernig staðið skuli að vali milli umsókna um leyfi til rannsóknar- og nýtingar auðlinda í jörðu. Ennfremur verði mörkuð framtíðarstefna um nýtingu þeirra auðlinda sem lögin ná til: m.a. jarðhita, jarðefna, grunnvatns og vatnsafls til raforkuframleiðslu. Nefndin var skipuð í apríl 2006 fulltrúum allra þingflokka, iðnaðarráðuneytis og Samorku. Hún hefur nú skilað Jóni Sigurðssyni, iðnaðarráðherra, ítarlegri skýrslu með tillögum sínum og drögum að lagafrumvarpi. Meira.

11.10.2006 Lánshlutfall Íbúðalánasjóðs mun hækka. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra sagði á Alþingi í dag að hann telji líklegt að fljótlega verði hægt að hækka lánshlutfall aftur upp í 90%. Hann vill líka kanna hvort ástæða sé til að hætta að miða lánsfjárhæð við brunabótamat og tengja hana frekar markaðsverði.

10.10.2006 Vísindagarðar á Sauðárkróki. Jón Edvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood og Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla, komu á fund Atvinnu- og ferðamálanefndar í dag. Þeir kynntu þá vinnu og uppbyggingu sem hefur farið fram í Verinu við Sauðárkróki og þær hugmyndir sem FISK og Hólaskóli hafa um frekari uppbyggingu. Nefndin fagnaði fram komnum hugmyndum og vísaði til skipulags- og byggingarnefndar að hún hraði gerð nýs deiliskipulags á hafnarsvæðinu.

09.10.2006 Lækkun matarverðs og fleiri þátta. Ríkisstjórnin kynnti í gær skatta- og tollabreytingar sem eiga að leiða til lækkunar á matvælaverði á Íslandi. Gert er ráð fyrir að þessi lækkun leiði til þess að matvælaverð á Íslandi verði sambærilegt meðalverði matvæla á Norðurlöndunum miðað við upplýsingar um matvælaverð frá Evrópsku hagstofunni. Sjá nánar.

07.10.2006 Katrín María Andrésdóttir (D) í leyfi frá sveitarstjórn. Á sveitarstjórnarfundi í dag var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum beiðni Katrínar Maríu um að fara í launalaust leyfi frá störfum í sveitarstjórn til 31. maí 2007. Katrín tók ekki þátt í atkvæðagreiðslunni. Sigríður Björnsdóttir tekur sæti hennar í sveitarstjórn og í Félags- og tómstundanefnd.

06.10.2006 Villinganesvirkjun inn á kynningartillögu að Aðalskipulagi. Sveitarstjórnarfundi í dag var samþykkt eftirfarandi bókun Skipulags- og byggingarnefndar um aðalskipulag: "Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að í aðalskipulagi verði gert ráð fyrir og sýnd möguleg svæði til virkjunar Héraðsvatna þ.e.a.s. við Skatastaði og Villingarnes.

Jafnframt samþykkir Skipulags- og byggingarnefnd: Mjög ólíkt er að virkjanir við Villinganes og Skatastaði verði á dagskrá á næstu árin þar sem ljóst er að iðjuver á Norðurlandi verður reist við Húsavík. Skipulags- og byggingarnefnd er samt ljós sú samfélagslega skylda að meta alla möguleika til eflingar atvinnu- og mannlífs í Skagafirði. Virkjanir í Héraðsvötnum koma aðeins til greina að undangengnum víðtækum rannsóknum og almennri upplýstri umræðu um kosti og galla, þar sem m.a. verði leitað álits íbúa Skagafjarðar. Skipulags- og byggingarnefnd ítrekar að möguleigir virkjunarréttir verði á höndum Skagfirðinga og einungis nýttir til eflingar atvinnu- og mannlífs innan héraðs".

Ekki þarf að fjölyrða um að Bjarni Jónsson Vinstri grænum var á móti. Sjálfstæðisflokkurinn treysti sér ekki til styðja tillöguna en er þó líklega ekki efnislega á móti tillögunni. Fundargerð Skipulags- og byggingarnefndar 19.09.06.

05.10.2006 Yfirlit yfir minka- og refaveiði. Á fundi landbúnaðarnefndar í dag var lagt fram yfirlit yfir refa- og minkaveiði í sveitarfélaginu þar sem af er árinu 2006. Veiddir minkar voru 419. Refir: 94 hlaupadýr, 74 grendýr og 154 yrðlingar. Í bókun nefndarinnar kemur fram að kostnaður hefur farið fram úr áætlun og að endurgreiðsla frá ríkinu liggji ekki fyrir.

04.10.2006 Félagsheimilið Miðgarður - vettvangur menningarstarfsemi í Skagafirði. Oddvitar meirihlutaflokkanna, þau Gunnar Bragi Sveinsson og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir hafa skrifað grein þar sem þau fara yfir Miðgarðsmál. Í greininni segir m.a. "... að skoða möguleika á að ná markmiðinu um glæsilegt menningarhús með breyttri hönnun þar sem allir verkþættir verða teknir inn í. Því var ákveðið að taka verkefnið til gagnerrar endurskoðunar á næstu vikum. Sveitarstjóra og tæknideild var falið, í samvinnu við hönnuði, að leita leiða til að ná niður kostnaði við framkvæmdina án þess að í nokkru verði slegið af kröfum um gæði hússins sem menningarmiðstöðvar með áherslu á tónlistarflutning af ýmsum toga." Greinin í heild. 

03.10.2006 Kosning í nefndir Alþingis í gær. Á fyrsta þingfundi í gær var kosið í fastanefndir þingsins. Framsóknarmenn skiptu með sér verkum á eftirfarandi hátt: Birkir Jón Jónsson félagsmálanefnd, fjárlaganefnd og landbúnaðarnefnd. Dagný Jónsdóttir efnahags-& viðskiptanefnd, félagsmálanefnd og menntamálanefnd. Guðjón Ólafur Jónsson allsherjarnefnd, fjárlaganefnd, heilbrigðis- & trygginganefnd og sjávarútvegsnefnd. Hjálmar Árnason formaður þingflokks, í iðnaðarnefnd og samgöngunefnd. Jón Kristjánsson annar forseti Alþingis og þ.a.l. í forsætisnefnd, samgöngunefnd og utanríkismálanefnd. Kristinn H. Gunnarsson landbúnaðarnefnd, sjávarútvegsnefnd og umhverfisnefnd. Sæunn Stefánsdóttir efnahags- og viðskiptanefnd, heilbrigðis- & trygginganefnd, menntamálanefnd og utanríkismálanefnd.

02.10.2006 Alþingi sett í dag. Alþingi Íslendinga, 133. löggjafarþing var sett í dag við hátíðlega athöfn. Þingsetning hófst að venju í dómkirkjunni en þar þjónaði prófastur Skagfirðinga, Dalla Þórðardóttir, fyrir altari ásamt biskupi. Jóhanna Sigurðardóttir starfsaldursforseti þingsins stýrði kjöri forseta, Sólveigar Pétursdóttur. Síðdegis var síðan kosið í fastanefndir þingsins o.fl.sem hefðbundið er á fyrsta degi þingsins. Annað kvöld verða síðan umræður um stefnuræðu forsætisráðherra.

29.09.2006 Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga lýkur í dag. Landsþing SÍS var sett sl. miðvikudag og lýkur í dag. Að hálfu sveitarfélagsins Skagafjarðar sækja þingið þau Gunnar Bragi Sveinsson (B), Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir (S) og Bjarni Egilsson (D). Dagskrá þingsins, erindi og ávörp má finna hér.

28.09.2006 Sá ræður miklu sem dagskránni ræður. Sagt hefur verið að sá sem dagskránni ræður ráði miklu. Það er oftar en ekki tiltekið í sambandi við ákvarðanatöku stjórnvalds nú eða stefnumótun stjórnmálaflokka. Um það er ekki deilt að sá sem ræður því hvað er tekið á dagskrá ræður því einnig hvað er ekki tekið á dagskrá. Þannig getur í prinsippinu stjórnvald ákveðið að taka ekki mál á dagskrá og gera það þannig ekki að máli. Sama gildir í prinsippinu um stjórnmálasamtök og önnur félagasamtök.

Í nútímasamfélagi er þetta ekki svona einfalt. Við búum sem betur fer í opnu samfélagi þar sem fólk má segja það sem því sýnist. En okkar samfélag einkennist einnig af mikilli fjölmiðlun og mötun. Þannig geta fjölmiðlar að miklu leiti ákveðið hvaða mál eru tekin á dagskrá hverju sinni og hversu mikilvæg þau eru.

Ábyrgð fjölmiðlunga er því mikil. Bæði á það við um efnisval og ekki síður hlutleysi. Þeir fjölmiðlar sem vilja njóta trausts verða að gera þá kröfu til fréttamanna sinna og stjórnenda að þeir fjalli um mál á hlutlægan hátt en hlaupi ekki til þó að einhverjir vinir þeirra eða skoðanabræður séu að gera eitthvað mismerkilegt eins og oft virðist brenna við. SÁ.

27.09.2006 Íbúðalánasjóður starfar áfram. Félagsmálaráðherra, Magnús Stefánsson, kynnti í gær, tillögur þess efnis að Íbúðalánasjóður muni starfa áfram á markaði, til hagsbóta fyrir fólkið í landinu. Ríkisstjórnin hefur jafnframt falið ráðherranum að vinna að útfærslu breytinga sem gera sjóðnum kleift að setja á fót fjármögnunarkerfi á heildsölustigi. Það liggur þá fyrir að samkomulag við bankana náðist ekki. Íbúðalánasjóði verður gert kleift að gefa út sérvarin skuldabréf. Þá er ljóst að starfsemi í starfsstöð Íbúðalánasjóðs á Sauðárkróki verður með óbreyttu sniði.

26.09.2006 Tvöhundruð og þrettán milljón kr. halli af sveitarfélaginu fyrstu sex mánuði ársins ! Á byggðarráðsfundi í dag var kynnt sex mánaða uppgjör sveitarfélagsins Skagafjarðar. Niðurstaðan er halli að upphæð 213 milljónir kr. Þetta veldur miklum vonbrigðum og er ekki í neinu samræmi við þá mynd sem fyrrverandi sveitarstjóri og aðrir forystumenn síðasta meirihluta héldu fram fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Fjárhagsáætlun alls ársins gerði ráð fyrir 35 milljón kr. halla. Heildarskuldir sveitarfélagsins nú eru 3.315 milljónir kr. að meðtöldum lífeyrisskuldbindingum. SÁ.

25.09.2006 Framsókn í Norðvesturkjördæmi - póstkosning meðal félagsmanna. Á aukakjördæmisþingi Framsókarflokksins á Varmalandi í Borgarfirði á laugardaginn var ákveðið með hvaða hætti skuli velja á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Valið var milli tveggja tillagna. Annars vegar var það tillaga stjórnar um að viðhafa sömu aðferð og síðast að velja listann á tvöföldu kjördæmisþingi. Hins vegar var um að ræða tillögu um póstkosningu meðal framsóknarmanna í kjördæminu. Niðurstaðan var póstkosning en sú tillaga hlaut 6 fleiri atkvæði en tillaga stjórnar. Kosin var kjörnefnd til að stýra kosningunni og er Sveinbjörn Eyjólfsson formaður hennar.

22.09.2006 Valdimar Sigurjónsson sækist eftir 3. sæti hjá Framsóknarflokknum í Norðvesturkjördæmi. Borist hefur tilkynning frá Valdimari Sigurjónssyni viðskiptalögfræðingi og formanns Framsóknarfélagsins Bifröst. Sjá nánar tilkynningu Valdimars.

22.09.2006 Samþykkt að skoða friðun Austurdals. Á fundi sveitarstjórnar í gær var samþykkt eftir farandi tillaga frá fulltrúum Framsóknarflokks og Samfylkingar með atkvæðum þeirra og fulltrúa Sjálfstæðisflokks: "Sveitarstjórn samþykkir að fela Umhverfisnefnd að leita eftir samstarfi við sveitarstjórn Akrahrepps um að kanna kosti þess að friðlýsa Austurdal frá Gilsbakka að dalsbotni."

Í greinargerð segir: "Með sanni má segja að Austurdalur sé ein af perlum Skagafjarðar vegna legu sinnar og stórbrotinnar landslagsfegurðar, jafnframt því sem hann geymir sögu liðinna tíma. Vilji er til að varðveita hann eins og kostur er, samhliða því að meta nýtingu náttúruauðlinda í Skagafirði. Því er nauðsynlegt að kanna hvort hönnun mögulegra virkjana og friðun dalsins geti ekki farið saman. Mikilvægt er að unnið verði að verkefniu í sátt við alla hlutaðeigandi landeigendur og málið skoðað frá öllum hliðum.

21.09.2006 Samþykkt að skoða betur framkvæmdir við Miðgarð. Á fundi sveitarstjórnar í gær var samþykkt með atkvæðum Framsóknarflokks og Samfylkingar svohljóðandi tillaga: "Í ljósi staðreynda um verulega aukinn framkvæmdakostnað frá upphaflegum áætlunum samþykkir sveitarstjórn Skagafjarðar fyrir sitt leiti að fresta framkvæmdum við Miðgarð um sinn og taka verkefnið til gagngerrar endurskoðunar á næstu vikum.

Sveitarstjórn og tæknideild er falið, í samvinnu við hönnuði, að leita leiða til að ná niður kostnaði við framkvæmdina án þess að í nokkru verði slegið af kröfum um gæði hússins sem menningarmiðstöðvar með áherslu á tónlistarflutning af ýmsum toga. Við þessa athugun verði við það miðað að heildarframlag Sveitarfélagsins Skagafjarðar verði sem næst upphaflegri viðmiðun. Allri hönnunarvinnu verði lokið um mánaðarmót október/nóvember n.k. þannig að hægt verði að ganga frá samningum um verkið eða einstaka verkþætti og framkvæmdir geti hafist á þessu ári. "

20.09.2006 Sveitarstjórnarfundur á morgun. Á morgun fimmtudaginn 21. september verður fundur í sveitarstjórn Skagafjarðar í Sal Safnahússins við Faxatorg og hefst fundurinn kl.16:00. Á dagskrá fundarins eru fundargerðir byggðarráðs frá 12. og 19. þ.m. Atvinnu- og ferðamálanefndar 19. sept. Félags- og tómstundanefndar 12. sept. Menningar- og kynningarnefndar 13. sept. og Umhverfis- og samgöngunefndar frá 13. sept. Á fundinum verður tilnefnt í verkefnisstjórn Sáttmála til sóknar í skólum í Skagafirði og í stjórn Náttúrustofu Norðurlands vestra. Þá er að síðustu tillaga frá fulltrúum Framsóknarflokks og Samfylkingar um friðlýsingu Austurdals.

19.09.2006 Tillaga um friðlýsingu Austurdals. Á fundi sveitarstjórnar n.k. fimmtudag verður lögð fram tillaga frá sveitarstjórnarfulltrúum Framsóknarflokks og Samfylkingar um friðlýsingu Austurdals sem hljóðar svo: "Sveitarstjórn samþykkir að fela Umhverfisnefnd að kanna kosti þess að friðlýsa Austurdal í samstarfi og góðri sátt við hlutaðeigandi landeigendur." Í greinargerð segir: Með sanni má segja að Austurdalur sé ein af perlum Skagafjarðar vegna legu sinnar, stórbrotinnar landslagsfegurðar, jafnframt því sem hann geymir sögu liðinna tíma. Vilji er til að varðveita hann eins og kostur er, samhliða því að meta nýtingu náttúruauðlinda í Skagafirði. Því er nauðsynlegt að kanna hvort hönnun mögulegra virkjana og friðun dalsins geti ekki farið saman. Mikilvægt er að unnið verði að verkefninu í sátt við alla hlutaðeigandi landeigendur og málið skoðað frá öllum hliðum."

18.09.2006 Fréttatilkynning frá Herdísi Sæmundardóttur. "Vegna alþingiskosninganna í vor hef ég ákveðið að sækjast eftir að skipa 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Í gegnum störfum mín á undanförnum árum hef ég öðlast mikla þekkingu sem ég vil nýta í þágu kjördæmisins. Sem formaður stjórnar Byggðastofnunar tel ég mig þekkja vel aðstæður atvinnulífs og skilyrði til búsetu og þróunar byggðar á landsbyggðinni. Ég hef jafnframt verið sveitarstjórnarmaður til fjölda ára í Skagafirði og er nú formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og hef því góða þekkingu og reynslu af málefnum sveitarfélaga. Við síðustu alþingiskosningar skipaði ég 3. sætið á lista flokksins og er því 1. varaþingmaður Framsóknarflokksin í Norðvesturkjördæmi. Á vettvangi Alþingis og landsmála hef ég beitt mér fyrir atvinnu- og byggðamálum í víðu samhengi. Uppbygging menntastofnana á landsbyggðinni og betra aðgengi að menntun á öllum skólastigum er mér afar hugleikið sem og greiðari samgöngur og betri fjarskipti á landsbyggðinni." Herdís Sæmundardóttir.

15.09.2006 Félagsfundur í Framsóknarfélagi Skagafjarðar. Stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar hefur boðað til félagsfundar í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki sunnudagskvöldið 17. september kl.20:30. Á dagskrá fundarins verður kosning á aukakjördæmisþing þann 23. september n.k. sveitarstjórnarmál og önnur mál.

13.09.2006 SUF-þing um helgina. Sambandsþing SUF verður haldið helgina 16.-17. september n.k. Á þinginu verður m.a. kosið á milli þeirra Jakobs Hrafnssonar formanns SUF og Stefáns Boga Sveinsson. Dagskrá þingsins er að finna hér. 

12.09.2006 Ýmislegt á Byggðarráðsfundi. Margt ber fyrir augu í fundargerð Byggðarráðs frá í dag. Fulltrúar lögreglunnar mættu til fundarins. Ákveðið var að kaupa nýja (körfubolta)klukku í íþróttahúsið á Sauðárkróki. Ráðið tók undir hugmyndir Smábátaeigendafélagsins Skalla um að færa bannlínu dragnótar utar í Skagafjörð. Þá komu fulltrúar Söguseturs íslenska hestins á fundinn og lesið upp bréf frá Skipulagsstofnun þar sem fram kemur að Jón Örn Berndsen verkfræðingur sé fullfær um að vera skipulagsfulltrúi. Fleira var gert og má lesa um það í fundargerð, en tengill á hana er hér til hægri á síðunni.

11.09.2006 Sáttmáli til sóknar undirritaður. Fulltrúar frá Sveitarfélaginu Skagafirði, Akrahreppi og Kaupfélagi Skagfirðinga undirrituðu sl. föstudag "Sáttmála til sóknar í skólum í Skagafirði". Með sáttmálanum skuldbinda áðurnefndir aðilar sig til að leggja 25 milljónir á ári í fjögur ár, alls 100 milljónir til eflingar skólastarfi á öllum skólastigum í Skagafirði. Frétt á skagafjordur.is Ávarp formanns Fræðslunefndar Myndir frá athöfninni. 

08.09.2006 Sáttmáli til sóknar í skólum í Skagafirði. Í dag kl.17:00 verður undirritaður á sal Fjölbrautaskólans samningur milli Kaupfélags Skagfirðinga og Sveitarfélaganna í Skagafirði um Sáttmála til sóknar í skólum í Skagafirði. Um er að ræða átak til að bæta skólana í Skagafirði og leggur KS til 70 milljónir á fjórum árum til verkefnisins og sveitarfélögin 30 milljónir.

07.09.2006 Aukakjördæmisþing 23. september. Stjórn Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmis hefur boðað til aukakjördæmisþings að Varmalandi í Borgarfirði kl.13:00 þann 23. september n.k. Á dagskrá aukaþingisins er annars vegar almennar stjórnmálaumræður þar sem að Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins mun hafa framsögu og hins vegar ákvörðun um hvaða aðferð á að nota til að velja á lista fyrir komandi alþingiskosningar.

06.09.2006 Sveitarstjórnarfundur á morgun í Varmahlíð. Boðað hefur verið til sveitarstjórnarfundar á morgun, fimmtudaginn 6. september kl.17:00, í Hótel Varmahlíð. Dagskrá fundarins er hér.

05.09.2006 Halldór Ásgrímsson afsalar sér þingmennsku. Í dag ritaði Halldór Ásgrímsson fyrrv. forstætisráðherra Forseta Alþingis bréf þar sem að hann afsalar sér þingmennsku. Halldór hefur setið á Alþingi frá því 1974 ef undan er talið kjörtímabilið 1978 -79. Í bréfi Halldórs segir m.a. "Ég kveð því Alþingi með söknuði en er jafnframt afar þakklátur öllu því fólki sem ég hef haft tækifæri til að kynnast og starfa með. Ég færi núverandi alþingismönnum og starfsfólki Alþingis sérstakar þakkir fyrir gott og ánægjulegt samstarf. Ég óska Alþingi, alþingismönnum og starfsfólki þingsins allra heilla í framtíðinni. "

04.09.2006 Framlag vegna íbúafækkunar 2001-2005 - 63 milljónir á Norðurland vestra. Nú nýverið var úthlutað aukframlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna íbúafækkunar á árunum 2001-2005 samtals að upphæð 350 milljónum kr. Rúmlega 63 milljónir komu í hlut sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Hæsta framlagið hlaut Siglufjörður 26,2 milljónir, Blönduósbær fékk 12,3 milljónir, Svf.Skagafjörður 9,2 milljónir, Höfðahreppur 8,8 milljónir og Húnaþing vestra 6,5 milljónir kr.

31.08.2006 Lyfta í Árskóla. Á heimasíðu Árskóla er greint frá því að fundin hefur verið bráðabirgðalausn á lyftumálum í efra húsi Árskóla, en sem kunnugt er húsnæðið á þremur hæðum og lyftulaust. Á fundi stjórnar Eignasjóðs þann 15. ágúst var samþykkt að kaupa klifurlyfta frá Léttitækni ehf. á Blönduósi, sem er austurrísk af SANO gerð. "Lyftubúnaðurinn er notaður þannig að hjólastóll nemandans er festur á lyftuna, sem stýrt er af starfsmanni skólans, og hún síðan látin „klifra“ upp eða niður stiga. Búnaðurinn er mjög léttur og ekki þarf að beita neinu afli til að stýra honum. Hann er auk þess mjög meðfærilegur, unnt að taka hann í sundur og flytja með sér milli húsa og taka með ef farið er í ferðalag, s.s. skólaferðalag. " segir á heimasíðu skólans.

30.08.2006 Mannfjöldaþróun í Sveitarfélaginu Skagafirði 1991-2005. Komin er á vefinn skýrslan "Mannfjöldaþróun í Sveitarfélaginu Skagafirði og forverum þess 1991-2005". Í skýrslunni er farið yfir að þrátt fyrir að íbúum hafi í heildina aðeins fækkað um 5,5% er samt um miklar breytingar á samsetningu fólks, sérstaklega hvað varðar aldur. Höfundur skýrslunnar er Sigurður Árnason. Skýrsluna má lesa hér. 

29.08.2006 Frétt um SSNV-þing. Á heimasíðu SSNV er að finna frétt um það helsta sem gerðist á þinginu. Fréttina má finna hér.

28.08.2006 Þing SSNV um helgina. Á föstudag og laugardag var þing SSNV haldið á Gauksmýri í Húnaþingi vestra. Á þinginu var kjörin ný stjórn fyrir samtökin en hana skipa eftirtaldir: Adolf H. Berndsen Skagaströnd, formaður, Bjarni Egilsson Skagafirði, Guðný Helga Björnsdóttir Húnaþingi vestra, Gunnar Bragi Sveinsson Skagafirði og Hermann Einarsson Fjallabyggð. Nánari fréttir af þinginu verður hægt að nálgast á heimasíðu SSNV.

25.08.2006 Ákveðið að skoða Skarðsármál. Á sveitarstjórnarfundi í gær var eftirfarandi tillaga Páls Dagbjartssonar, Sjálfstæðisflokki samþykkt samhljóða: "Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að fela byggðarráði að yfirfara alla samninga og samþykktir er varða eignina Skarðsá í Sæmundarhlíð, með það í huga að samræmi sé gætt í afgreiðslu allra erinda sem berast sveitarstjórn varðandi eign þessa.” Er þetta ákveðið í ljósi þess að fyrri sveitarstjórn leigði hluta landsins og hafa leigutakar farið fram á byggingarleyfi á landinu. Þá er sérstök samþykkt í gildi um jörðina frá því að hún var í eigu Staðarhrepps fyrir sameiningu sveitarfélaga. Í þriðja lagi hefur eigandi jarðarinnar Fjalls sem liggur að Skarðsá farið fram á að fá að skoða virkjunarmöguleika á ánni.

24.08.2006 Nefndaskipting framsóknarmanna á Alþingi ákveðin. Á fundi þingflokks Framsóknarflokksins á þriðjudaginn var samþykkt eftirfarandi tillaga um hverjir sita í hvaða nefnd á komandi þingi: Birkir Jón Jónsson Fjárlaganefnd (formaður), félagsmálanefnd og landbúnaðarnefnd. Dagný Jónsdóttir: Félagsmálanefnd (formaður), menntamálanefnd (varaformaður), efnahags- og viðskiptanefnd, og utanríkismálanefnd (varafulltrúi). Guðjón Ólafur Jónsson: Heilbrigðis- og trygginganefnd (formaður), allsherjarnefnd (varaformaður), fjárlaganefnd, sjávarútvegsnefnd og utanríkismálanefnd (varafulltrúi). Hjálmar Árnason: Iðnaðarnefnd (formaður) og samgöngunefnd (varaformaður).Jón Kristjánsson: Utanríkismálanefnd (varaformaður) samgöngunefnd og forsætisnefnd. Kristinn H. Gunnarsson: Umhverfisnefnd (varaformaður), landbúnaðarnefnd (varaformaður) og sjávarútvegsnefnd (varaformaður). Sæunn Stefánsdóttir: Efnahags- og viðskiptanefnd (varaformaður), utanríkismálanefnd, heilbrigðis- og trygginganefnd, og menntamálanefnd. Stjórn þingflokksins verður síðan kjörin í upphafi þings þegar það kemur saman 1. október.

23.08.2006 Sveitarstjórnarfundur á morgun. Á morgun fimmtudag kl.16:00 er boðaður sveitarstjórnarfundur í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Á dagskrá fundarins eru eftrtaldar fundargerðir: Byggðarráðs frá 22. ágúst, Atvinnu- og ferðamálanefndar frá 17. ágúst, Fræðslunefndar frá 21. ágúst, Menningar- og kynningarnefndar frá 21. ágúst og Skipulags- og byggingarnefndar frá 21. ágúst. Þá verður kjörinn einn fulltrúi í samráðsnefnd lögreglu og sveitarfélaganna í Skagafirði.

22.08.2006 Skilgreining Jóns Sigurðsson formanns Framsóknarflokksins á hugtakinu Þjóðhyggju. Jón Sigurðsson nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins hefur verið nokkuð tíðrætt um hugtakið Þjóðhyggju. Á vef Framsóknarflokksins í dag útskýrir Jón hvað hann við með þessu hugtaki. Grein Jón Sigurðssonar.

21.08.2006 Um nýja forystusveit Framsóknarflokksins. Eins og öllum sem fylgst hafa með fjölmiðlum um helgina ætti að vera ljóst að þá voru þau Jón Sigurðsson, Guðni Ágústsson og Sæunn Stefánsdóttir kjörin til forystu fyrir Framsóknarflokkinn sl. laugardag. Eins og gengur í kosningum að þá geta ekki allir unnið og þetta skiptið var það hlutskipti þeirra Sivjar Friðleifsdóttur og Jónínu Bjartmarz að ná ekki þeim árangri sem þær stefndu að. Þær tóku úrslitunum af stórmennsku og lýstu því báðar yfir að þær myndu starfa að alefli með nýrri forystu. Líklegt verður að teljast að með þessum breytingum verði ákveðin sátt og þannig vinni flokkurinn sig út úr þeim erfiðleikum sem hann hefur verið í að undanförnu.

Bráðskemmtilegt var hins vegar að fylgjast með forystumönnum stjórnarandstöðunnar þegar að þeir voru spurðir álits á nýrri forystu flokksins. Eins og svo oft áður einkenndi ólund viðbrögð þeirra. Fulltrúar Samfylkingar og Frjálslyndra voru nokkuð samstíga í almennri ólund en Steingrímur J. Sigfússon bætti um betur og segir í Fréttablaðinu í dag: "Fyrir mér er það birtingarform djúpstæðs vanda þegar maður horfir á flokkssystini og ráðherra slást um sömu embættin." Ekki þarf fleiri orð til að varpa ljósi á viðhorf Steingríms J. Sigfússonar til lýðræðislegra kosninga. En það verður að viðurkennast að mann rekur í rogastans að heyra þessi gömlu "úrvalsflokksviðhorf" skuli enn vera fyrir hendi hjá forystumanni í flokki sem vill telja sig lýðræðislegan, nú á fyrstu árum 21. aldarinnar. Það er greinilegt að Steingrímur J. telur að það þurfi að vit fyrir fólki og það eigi að leysa úr ágreiningi um forystusveit stjórnmálaflokka, "að ráði bestu mann" í "reykfylltum bakherbergjum."

Kannski er ástæða þessara ólundar stjórnarandstöðunnar henni varð ekki að ósk sinni um upphlaup og klofning á flokksþinginu. Þvert á móti var mikil samstaða og eining og því er eðileg hræðsla þeirra við að Framsóknarflokkurinn nái vopnum sínum og endurheimti fylgi sitt.

19.08.2006 Ný forysta Framsóknarflokksins kjörin. Eins og kunnugt er var ný forysta Framsóknarflokksins kjörin sl. laugardag. Úrslit kosninganna má á tenglum inn á síðu Framsóknarflokksins. Formannskosning - Varaformannskosning - Ritarkosning.

15.08.2006 Sæunn Stefánsdóttir í ritaraframboð. Sæunn Stefánsdóttir fyrrv. aðstoðarmaður Jóns Kristjánssonar og verðandi alþingismaður hefur lýst yfir að hún sækist eftir kjöri sem ritari Framsóknarflokksins á flokksþingi flokksins um helgina. Auk hennar hafa þeir Birkir Jón Jónsson, Haukur Logi Karlsson og Kristinn Halldór Gunnarsson gefið kost á sér.

15.08.2006 Guðni vill jarðgögn úr Hjaltadal í Eyjafjörð. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra lýsti þeirri skoðun sinni á Hólahátíð að hann teldi rétt að tengja byggðirnar sitt hvorum megin Tröllaskaga með jarðgögnum úr Hjaltadal (Hofsdal) í Barkárdal um Hörgárdal til Akureyrar. Sjá mynd.

14.08.2006 Kristinn H. Gunnarsson í ritaraframboð. Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður hefur hefur lýst því yfir að hann sækist eftir því að verða ritari Framsóknarflokksins. Þrír eru því komnir í framboð til ritara en áður höfðu Birkir Jón Jónsson og Haukur Logi Karlsson fyrrv. formaður SUF lýst yfir framboði.

14.08.2006 Hólaskóli - Háskólinn á Hólum verður til. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra ætlar að leggja fram frumvarp á haustþingi sem um að Hólaskóli verði sjálfstæður Háskóli, en ríkisstjórnin hefur samþykkt að slikt frumvarp verði lagt fram.

11.8.2006 Birkir Jónsson í ritaraframboð. Birkir Jón Jónsson alþingismaður og formaður iðnaðarnefndar Alþingis hefur lýst því yfir að hann sækist eftir því að verða ritari Framsóknarflokksins. Tveir eru því komnir í framboð til ritara en áður hafði Haukur Logi Karlsson fyrrv. formaður SUF lýst yfir framboði.

10.08.2006 Siv Friðleifsdóttir í formannsframboð. Í dag tilkynnti Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og ritari Framsóknarflokksins að hún sæktist eftir því að verða formaður Framsóknarflokksins. Siv hefur verið alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn síðan 1995 og hafði áður verið bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi og formaður SUF. Áður höfðu þeir Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Haukur Haraldsson.

09.08.2006 Umferðarofbeldi. Undanfarnar vikur hefur verið mikil umræða um hraðakstur. Hefur þessi umræða sprottið af því að íterkað hafa menn verið teknir fyrir ofsaakstur bæði á bifreiðum og vélhjólum. Í þessu samhengi er ekki verið að tala um þá sem eru teknir á 100-120 km. hraða á klst. Það er verið að tala um þá sem aka á 150 km. hraða á klst. eða þaðan af meira og stefna þannig sjálfum sér en ekki síst öðrum í stórhættu. Af 100.gr. umferðarlaga má ráða að heimilt sé að sekta um allt að 300.000 kr. í fyrir umferðalagabrot. Ef litið er á reglugerðina er ljóst að talsvert svigrúm er í reglugerðinni þar sem hámarkssekt fyrir að aka á 70 km. umfram hámarkshraða er 70.000 kr. auk þriggja umferðarpunkta. Að vísu skal sekt vera samtala sekta hvers brots um sig innan 300.000 kr. markanna. Eflaust er hægt með umferðareftirliti og áróðri að ná einhverjum árangri gagnvart þessum litla hópi en ekki er ólíklegt að með hækkuðum viðurlögum við ofsaakstri myndu menn frekar hugsa sig tvisvar um.

Í dag er sekt við því að aka á 131-140 km/klst 40.000 kr. þar sem 90 km. hámarskharði er. Sektin er 50.000 kr. auk eins mánaðar sviptingar ef ekið er á 141-150 km/klst. 60.000 kr. og tveggja mánaða sviptingar ef að ekið er á 151-160 km. hraða og 70.000 kr. og ef ekið er á 161-170 km.hraða auk þriggja mánaða sviptingar. Það virðist því vera svigrúm til að hækka viðurlög við ofsaakstri með reglugerðarbreytingu samgönguráðherra án þess að til komi lagabreyting. SÁ.

08.08.2006 Drög að dagskrá flokksþings er komin á netið. Drög að dagskrá flokksþings er komin á netið og er að finna á heimasíðu Framsóknarflokksins.

04.08.2006 Hálfur mánuður til flokksþings. Í dag, á föstudegi fyrir verslunarmannahelgi, er hálfur mánuður til aukaflokksþings Framsóknarflokksins sem haldið verður 18-.19. ágúst n.k. Búast má síðustu framboð til trúnaðarstarfa innan flokksins í næstu viku, en beðið eftir því hvað Siv Friðleifsdóttir ritari flokksins muni gera.

Við óskum öllum gleðilegrar helgar og vonum að hún verði óhappalaus.

02.08.2006 Endurskoðun stjórnarráðsins II. Þegar rætt er um breytingar á stjórnarráðinu sýnist sitt hverjum um hvernig skiptingin eigi að vera. En áður en menn geta komist að niðurstöðu um það hvernig skiptingin eigi að vera að þá hljóta menn að horfa til þess hvað kemur best út fyrir fólkið og fyrirtækin í landinu. Ef horft er til einstakra þátta gæti litið skynsamlega út og til hagræðis að ferðamál færu úr samgönguráðuneytinu yfir í einhverskonar atvinnumálaráðuneyti, að málefni aldraðra færu frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti yfir í félagsmálaráðuneyti (velferðarráðuneyti?) og að matvælaeftirlit sem er a.m.k. hjá þremur ráðuneytum flyttist í eitt ráðuneyti.

Þá spyr maður sig hvort að Byggðamál ættu ekki að vera í einhverskonar innanríkisráðuneyti með sveitarstjórnarmálum, vinnumálum, málefnum dóms- og kirkjumálaráðuneytis, ásamt samgöngumálum, póstþjónustu og fjarskiptamálum.

Verði farið í þessa endurskoðun, sem sennilega flestir stjórnmálaflokkar eru sammála um, er rétt að reyna að gera það með þeim hætti að líklegt sé að það standist í einhvern tíma og til þess að það geti orðið verður að horfa einnig á hitt stjórnsýslustigið, sveitarfélögin, og verkaskiptingur þeirra og ríkisins.

01.08.2006 Endurskoðun stjórnarráðsins I. Í hátíðarræðu Halldórs Ásgrímssonar, þáverandi forsætisráðherra, þann 17. júní 2005 boðaði hann endurskoðun á stjórnarráði Íslands. Hann sagði: "Það er einnig tímabært að huga að endurskoðun á skipulagi stjórnsýslunnar, gera hana markvissari og meira í takt við tímann. Síðasta stóra breytingin á skipan ráðuneyta var gerð á árinu 1969 og þótt það hafi verið gerðar nokkrar breytingar frá þeim tíma hefur skipulagið í grundvallaratriðum verið óbreytt. Ég tel mikilvægt að hefjast handa um slíka endurskoðun nú í haust og ljúka henni á tiltölulega stuttum tíma. " Daginn eftir skrifar þáverandi aðstoðarmaður Halldórs, Björn Ingi Hrafnsson, "Fram hefur komið, að ríkisstjórnin hefur náð samkomulagi um að hefja í haust vinnu á vegum stjórnarflokkanna um endurskipulagningu Stjórnarráðsins og er stefnt að því að þeirri vinnu ljúki fyrir næstu kosningar." Fram kom á mbl.is þann 12. ágúst 2005 að þeir Árni Magnússon fyrrv. félagsmálaráðherra og Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra muni leiða starf um endurskoðun á skipan og verkaskiptingu ráðuneyta. Ekki hefur mikið heyrst af þessari vinnu. Breytingar á stjórnarráðinu er eitthvað sem heppilegt er að taki gildi þegar að ný ríkisstjórn tekur við að afloknum kosningum. Þá er einnig heppilegt að allgóð samstaða sé um breytingarnar. Ólíklegt er að samstaða náist um slíkar breytingar fyrir næstu kosningar sem verða í maí 2007. SÁ.

31.07.2006 Af félagsfundi í Framsóknarfélagi Skagafjarðar. Í kvöld var félagsfundur í Framsóknarfélagi Skagafjarðar þar sem aðaldagskrárefnið var kjör fulltrúa á flokksþing. Góð mæting var á fundinn og ljóst að mikill áhugi er fyrir þinginu. Á fundinn mætti Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra og flutti stutta tölu auk þess að svara fyrirspurnum frá fundarmönnum. Að því loknu voru almennar umræður mest um sveitarstjórnarmál.

28.07.2006 Átökin í Líbanon verði stöðvuð strax. Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, skrifaði í dag utanríkisráðherra Ísraels bréf þar sem hún lýsir áhyggjum af ástandinu í Líbanon. Í bréfinu kemur fram sú skoðun að það eigi að koma á vopnahléi tafarlaust og stöðva þannig eyðilegginuna í Líbanon. Um er að ræða tímabæra afstöðu og trúi ég að þrátt fyrir að mörgum þyki eflaust að orðalag hefði mátt vera harðorðara að þá sé það dimpómasíu sem sé þar um að kenna, enda hlýtur öllum hugsandi fólki að ofbjóða framgangan í Líbanon.

27.07.2006 Flugfélag Vestmannaeyja að fljúga á Krókinn? Þann 6. júlí sl. voru opnuð tilboð í fjórar flugleiðir sem eru ríkisstyrktar, þar á meðal flug til Sauðárkróks. Flugfélag Vestmannaeyja átti lægsta tilboð í flug til Sauðárkróks eða 21 milljón kr. Kostnaðaráætlun var hins vegar 55 milljón kr. skagafjordur.com greindi frá.

25.07.2006 "Ekki einfalt fyrir fjölskyldu úr Reykjavík að flytja alla leið vestur á firði". Í kjaftadálknum "Frá degi til dags" í Fréttablaðinu í dag er vitnað í bloggsíðu Helgu Völu Helgadóttur verðandi bæjarstjórafrú í Bolungarvík eins og hún segir sjálf. Helga er í laganámi og er að athuga hvort fjarnám er inni í myndinni. Það er í sjálfu sér athyglisvert að í Bolungarvík sem löngum hefur verið stjórnað af íhaldinu sé kominn bæjarstjóri sem er harður vinstri maður svo ekki sé fastara að orði kveðið. Það athyglisverða við umfjöllun Fréttablaðsins í þessum kjaftadálki er setningin sem ekki er innan gæsalappa og því innlegg blaðamanns þar sem hann segir: "En það er ekki einfalt fyrir fjölskyldu í Reykjavík að flytja alla leið vestur á firði. Börnin eru auðvitað að sinna sínum vinum og verkefnum fyrir sunnan." Spyrja má hvort það sé eitthvað einfaldara fyrir fólk vestan af fjörðum eða norðan af landi að flytja til Reykjavíkur eða er það trú blaðamanns að þar séu börnin ekki að sinna sínum og verkefnum? Í þessum kjaftadálki kemur berlega í ljós að sjóndeildarhringur þeirra nær ekki mikið út fyrir Stór-höfuðborgarsvæðið (Borgarnes í norðri og Þjórsá í austri). SÁ.

24.07.2006 "Minn tími kemur" Þessa frægu setningu sagði Jóhanna Sigurðardóttir þegar hún hafði tapað formannskosningu fyrir Jóni Baldvini í Alþýðuflokknum sáluga á sínum tíma. Eins og alþjóð veit mun Halldór Ásgrímsson ekki taka sæti á komandi þingi í haust og mun því nýr aldursforseti stjórna fyrsta þingfundi Alþingis í haust. Og ef ég fer með rétt reiknast mér til að Jóhanna Sigurðardóttir sé nýr aldursforseti Alþingis en hún tók sæti á Alþingi 1978 og hefur því setið á Alþingi í 28 ár. Á svona tímamótum hugsar maður hvort hennar tími sé loksins kominn. Af heimasíðu FUF í Skagafirði.

21.07.2006 Kosning um formann SUF? Stefán Bogi Sveinsson fulltrúi hjá B$B lögmönnum í Reykjavík hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti formanns Sambands ungra framsóknarmanna, en kjörið verður í embættið á þingi sambandsins í haust. Núverandi formaður SUF er Jakob Hrafnsson og er ekki vitað hvort hann muni gefa kost á sér áfram.

20.07.2006 Félagsmálaráðherra skipar starfshóp um ættleiðingarstyrki. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur skipað starfshóp sem ætlað er að semja tillögur að nýjum reglum um ættleiðingarstyrki til foreldra er ættleiða börn frá öðrum löndum í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar þar að lútandi. Starfshópnum er ætlað að skila af sér 1. október n.k. með það að markmiði að greiðslur ættleiðingarstyrkja geti hafist 1. janúr 2007. Guðmundur Páll Jónsson aðstoðarmaður félagsmálaráðherra er formaður starfshópsins.

19.07.2006 Samfylkingin og samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Margrét S. Björnsdóttir, Samfylkingarkona, skrifar grein sem birtist í miðopnu Moggans (!!!!!) um helgina um stjórnarmyndunarmöguleika Samfylkingarinnar eftir næstu alþingiskosningar.Þar fjallar hún um að Samfylkingin eigi ekki að loka á samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Í framhaldinu ritaði Björgvin Sigurðsson alþingismaður flokksins um að eftir næstu kosningar ætti flokkurinn að starfa með hinum stjórnarandstöðuflokkunum, VG og Frjálslyndum og sló þannig á hugmyndir Margrétar. Ljóst er því að það er opinber ágreiningur um það hvert Samfylkingin á að snúa sér eftir næstu alþingiskosningar. Það ætti ekki að undrunarefni þar sem að flokkurinn er ennþá kosningabandalag ólíkra hópa úr fjórum flokkum, Alþýðuflokki, Alþýðubandalagi, Kvennalista og Þjóðvaka. Spurningin er hins vegar hvort að það sé í raun ekki þannig að mörgum Samfylkingarmönnum hrylli við tilhugsuninni um að vinna með VG og ætli sér það alls ekki. Samfylkingunni er hins vegar pólitísk nauðsyn að halda því fram til að halda fylgi þeirra sem fyrst og fremst vilja koma ríkisstjórnarflokkunum frá völdum og missa það ekki til VG.

18.07.2006 Báðum tilboðum í Miðgarð - menningarhús hafnað. Á fundi stjórnar Eignarsjóðs (Byggðarráðs) í dag var ákveðið að hafna báðum tilboðum í endurbætur á Miðgarði - menningarhúsi, en þau voru bæði yfir kostnaðaráætlun. Á næstunni mun verða farið yfir framkvæmdina og hún endurmetin.

17.07.2006 Beðið eftir Siv? Nú styttist til flokksþings og samkvæmt fjölmiðlungum, sem hafa mikinn áhuga á Framsóknarflokknum, er nú beðið eftir yfirlýsingu frá Siv Friðleifsdóttur heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og ritara flokksins um hvaða embætti hún sækist eftir. Þá hafa ýmsir aðrir verið nefndir sem frambjóðendur til ýmissa áhrifastarfa en sömu fjölmiðlungar telja að þeir bíði eftir ákvörðun Sivjar.

14.07.2006 Jarðgerð ehf. fékk lóð og byggingarleyfi á Gránumóum. Jarðgerð ehf. félag um jarðgerð sorps og annars úrgangs sem fellur til í Skagafirði fékk í morgun úthlutað lóð á Gránumóum og fékk jafnframt byggingarleyfi fyrir vinnslustöð sína. Um er að ræða mjög spennandi verkefni sem felur í sér, eins og nafn fyrirtækisins ber með sér, að jarðgera sem mest af þeim lífræna úrgangi sem til fellur í Skagafirði. Fyrirhugað er ef áætlanir ganga eftir að hefja vinnslu strax nú í haust. Að Jarðgerð ehf. standa Kaupfélag Skagfirðinga, Fisk Seafood, Steinullarverksmiðjan, ÓK gámaþjónusta og Sveitarfélagið Skagafjörður.

13.07.2006 Guðni Ágústsson býður sig fram til varaformanns. Þá er það ljóst að Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra býður sig fram til áframhaldandi setu sem varaformaður Framsóknarflokksins. Áður hafði Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra boðið sig fram í það embætti og því ljóst að kosið verður a.m.k. á milli þeirra tveggja á flokksþingi eftir rúman mánuð. Samkvæmt fjölmiðlungum er nú beðið eftir því hvað Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra gerir, þ.e. sækist hún eftir sæti í forystu flokksins og þá hvaða sæti. Siv Friðleifsdóttir er ritari Framsóknarflokksins.

12.07.2006 Guðni Ágústsson mun bjóða sig fram til forystustarfa. Guðni sagði í viðtali við NFS í dag að með hliðsjón af viðbrögðum og stuðningsyfirlýsingum sé einsýnt að hann muni sækjast eftir því að vera í forystusveit Framsóknarflokksins. Hann segist muni gera frekari grein fyrir áformum sínum fyrir helgi.

11.07.2006 Jónína Bjartmarz gefur kost á sér til varaformanns. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér sem varaformaður Framsóknarflokksins. Núverandi varaformaður Framsóknarflokksins er Guðni Ágústsson. Áður hefur Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra gefið kost á sér sem formaður flokksins og Haukur Logi Karlsson sem ritari.

10.07.2006 Skagabyggð og Akrahreppur. Í tveimum nágrannasveitarfélögum okkar voru óhlutbundnar kosningar. Í Skagabyggð hefur Rafn Sigurbjörnsson á Örlygsstöðum II verið endurkjörinn oddviti og í Akrahreppi hefur Agnar Gunnarsson á Miklabæ verið endurkjörinn oddviti.

07.07.2006 Fjallabyggð (Siglufjörður og Ólafsfjörður.) Framsóknarflokkurinn vann góðan sigur í sameinuðu sveitarfélagi Siglufjarðar og Ólafsfjarðar í sveitarstjórnarkosningum í vor. Flokkur hlaut 2 fulltrúa og hefur myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokknum sem hlaut 4 fulltrúa. Í minnihluta í Fjallabyggð er Félagshyggjufólk (Samfylking og VG) sem hlaut þrjá fulltrúa. Forseti bæjarstjórnar er Þorsteinn Ásgeirsson og formaður bæjarráðs Jónína Magnúsdóttir. Auglýst var eftir bæjarstjóra í Fjallabyggð og rann umsóknarfrestur út um síðustu mánaðarmót.

07.07.2006 Skagastönd. Skagastrandarlistinn undir forystu Adolfs H. Berndsen hlaut þrjá af fimm fulltrúum í hreppsnefnd Höfðahrepps og hefur Adolf verið kjörinn oddviti. Lýðræðislistinn undir forystu Sigríðar Þ. Gestsdóttur hlaut tvo fulltrúa. Magnús B. Jónsson hefur verið endurráðinn sveitarstjóri Höfðahrepps, en fáir framkvæmdastjórar sveitarfélags hefa starfað eins lengi samfellt hjá sama sveitarfélagi og Magnús. Minnihlutinn óskaði bókað við ráðingu hans að þær teldu að auglýsa ætti starf sveitarstjóra.

06.07.2006 Blönduósbær. Blönduóslistinn (E-listinn) undir forystu Valgarðs Hilmarssonar hlaut meirihluta í bæjarstjórn Blönduósbæjar eða 4 fulltrúa af 7. Sjálfstæðisflokkur hlaut 2 fulltrúa og Bæjarmálafélagið Hnjúkar einn fulltrúa. Forseti bæjarstjórnar er Valgarður Hilmarsson og formaður bæjarráðs Héðinn Sigurðsson en hann var í öðru sæti á E-listanum. Jóna Fanney Friðriksdóttir hefur verið endurráðinn bæjarstjóri á Blönduósi en hún skipaði fjórða sæti E-listans.

05.07.2006 Húnavatnshreppur. Húnavatnshreppur varð til um síðustu áramót er Torfalækjarhreppur, Svínavatnshreppur, Bólstaðarhlíðarhreppur og Sveinsstaðahreppur sameinuðust í eitt sveitarfélag. Nú í júní bættist Áshreppur við. Listi Framtíðar undir forystu Björns Magnússonar á Hólabaki hlaut 5 fulltrúa af 7 í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum en listi Nýs afls undir forystu Ólafar Birnu Björnsdóttur hlaut 2 fulltrúa. Oddviti hefur verið kjörinn Björn Magnússon. Auglýst hefur verið eftir sveitarstjóra og rann umsóknarfrestur út um mánaðarmótin.

04.07.2006 Húnaþing vestra. Framsóknarflokkur og Sjáflstæðisflokkur hafa myndað meirihluta í Húnaþingi vestra en flokkarnir hafa tvo fulltrúa hvor í sjö manna sveitarstjórn. Þá hefur T-listi tvo menn og Samfylkingin einn mann. Oddviti sveitarstjórnar var kjörin Elín R. Líndal og formaður byggðarráðs er Guðný Helga Björnsdóttir. Skúli Þórðarson hefur verið endurráðinn sem sveitarstjóri.

03.07.2006 Flutningur starfa til Skagastrandar og Hvammstanga. Félagsmálaráðherra, Magnús Stefánsson, tilkynnti fyrir helgi um flutning á meginstarfsemi Fæðingarorlofssjóðs til Hvammstanga en gert er ráð fyrir að stöðugildi verði 10. Þá hefur ráðherra ákveðið að flytja umsýslu atvinnuleysistrygginga til Skagastrandar en gert er ráð fyrir að það verði 6-8 stöðugildi. Þetta kemur til viðbótar því að ríkisstjórnin hefur ákveðið að flytja sektarinnheimtu til Blönduóss. Alls hefur því verið tekin ákvörðun um að flytja um 30 störf frá höfuðborgarsvæðinu til Austur-Húnavatnssýslu.

02.07.2006 Umfjöllun um helstu nágranna okkar. Í næstu viku mun verða umfjöllun um stöðu sveitarstjórnarmála í helstu nágrannasveitarfélögum okkar, þ.e. meirihluta, helstu embættismenn og framkvæmdastjóra.

30.06.2006 Stefnir í glæsilegt Landsmót á Melunum. Í gærkvöldi var setningarathöfn Landsmóts hestamanna á Vindheimamelum sem hófst með hópreið hestamanna en í fararbroddi var Unnur Birna Vilhjálmsdóttir alheimsfegurðardrottning. Ávörp fluttu Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, Jón Aðalsteinn Baldursson vígslubiskup á Hólum og Jón Albert Sigurbjörnsson formaður LH. Í máli Jóns Alberts kom fram að hann er algjörlega andvígur því að settur verði niður einn mótsstaður fyrir Landsmót hestamanna í framtíðinni. Ekki var annað skilið á máli hans en hann teldi það fyrirkomulag sem nú væri að hafa mótin til skiptist á Hellu og á Vindheimamelum, það fyrirkomulag sem ætti að vera til framtíðar.

29.06.2006 Af sveitarstjórnarfundi í dag. Á fundi sveitarstjórnar í dag voru á dagskrá nokkrar fundargerðir nefnda sem fyrst og fremst innihéldu verkaskiptingu í þeim og voru þær flestar samþykktar án umræðu. Þá var ákveðið formlega með fimm atkvæðum meirihlutans að ráða Guðmund Guðlaugsson sem sveitarstjóra frá og með 1. júlí n.k. Sveitarstjórn er nú komin í sumarleyfi og kemur saman aftur í síðasta lagi 18. ágúst n.k. Á meðan mun Byggðarráð fara með fullnaðarafgreiðslu mála skv. samþykktum sveitarfélagsins.

Hrund Pétursdóttir varafulltrúi Framsóknarflokksins tók í gær sæti í sveitarstjórn í fyrsta skipti. Enginn fulltrúi Vinstri grænna mætti á fundinn.

28.06.2006 Jón Sigurðsson býður sig fram til formennsku í Framsóknarflokknum. Samkvæmt fjölmiðlum í morgun hefur Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra ákveðið að bjóða sig fram til formanns Framsóknarflokksins, en kosið verður um forystu flokksins á flokksþingi dagana 18.-19. ágúst n.k. Áður hafði Haukur Logi Karlsson fyrrv. formaður SUF gefið kost á sér í embætti ritara flokksins.

27.06.2006 Sveitarstjórnarfundur n.k. fimmtudag. Boðað hefur verið til sveitarstjórnarfundar n.k. fimmtudag kl.16:00 í Ráðhúsinu á Sauðárkróki. Á dagskrá eru fundargerðir nefnda og ráðning sveitarstjóra. Þetta er síðasti fundur sveitarstjórnar fyrir sumarfrí, gert er ráð fyrir að sveitarstjórn komi aftur saman til fundar eftir verslunarmannahelgi. Dagskrá sveitarstjórnarfundarins.

26.06.2006 Ársfundur Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki. Ársfundur Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki var haldinn í dag. Á fundinum undirritaði Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra stefnumótunarskjal fyrir stofnunina sem gildir fyrir árin 2006-2010. Í stefnumótunni ber hæst áform um að efla enn frekar endurhæfingarstarfsemi við stofnunina. Í fréttatilkynningu segir m.a. að "Endurhæfingaraðstaða við stofnunina er einhver sú besta á landinu en nýtt endurhæfingarhúsnæði var tekið í notkun fyrir fimm árum síðan. Við HS starfa nú fjórir sjúkraþjálfarar auk iðjuþjálfa. Stofnunin hefur nú fengið fjárheimild til að ráða endurhæfingarlækni í hlutastöðu og er áformað að ráða í þá stöðu frá 1. september n.k. "

26.06.2006 Landsmót hestamanna á Vindheimamelum hófst í dag. Landsmót hestamanna hófst í dag á Vindheimamelum í Skagafirði og stendur fram á sunnudaginn 2. júlí n.k. Samkvæmt fréttum RÚV koma um þúsund hross við sögu og er búist við að gestir verði um 12.000.

23.06.2006 Formenn fastanefnda sveitarfélagsins. Þessa dagana eru nefndarmenn í nefndum sveitarfélagsins að skipta með sér verkum. Formenn fastanefnda sveitarfélagsins verða sem hér segir: Atvinnu- og ferðamálanefnd - Snorri Styrkársson (S), Félags- og tómstundanefnd - Vanda Sigurgeirsdóttir (S), Fræðslunefnd - Sigurður Árnason (B), Landbúnaðarnefnd - Einar E. Einarsson (B), Menningar- og kynningarnefnd - Guðrún Helgadóttir (S), Skipulags- og byggingarnefnd - Einar E. Einarsson (B) og Umhverfis- og samgöngunefnd - Þórdís Friðbjörnsdóttir (B). Þá verður Einar Gíslason (B) stjórnarformaður Skagafjarðarveitna ehf.

22.06.2006 Jafnrétti í stjórn sveitarfélagsins Skagafjarðar? Þegar litið er til kynjaskiptingar í sveitarstjórn Skagafjarðar kemur í ljós að hún er nokkuð ójöfn þar sem að af níu fulltrúum eru aðeins þrjár konur en sex karlar. Þegar litið er hins vegar á sjö fastanefndir sveitarfélagsins og byggðarráð kemur í ljós að konur eru þar 13 af 24 fulltrúum eða 54,17%. Meðal varafulltrúa í nefndum er hlutfall kvenna enn hærra eða 14 af 24 eða 58,33%. Þá er forseti sveitarstjórnar kona og þrír af sjö formönnum fastanefnda sveitarfélagsins eru konur. Segja má því að þrátt fyrir nokkuð ójafna skiptingu í sveitarstjórn sé það að einhverju leiti a.m.k. bætt upp í nefndaskipan sveitarfélagsins.

21.06.2006 Kosið í nefndir á vegum sveitarfélagsins. Á fundi sveitarstjórnar í gær var kosið í eftirfarandi fastanefndir á vegum sveitarfélagsins:

Fræðslunefnd: Sigurður Árnason (B), Helgi Thorarensen (S) og María Lóa Friðjónsdóttir (D). Til vara eru: Hafdís Skúladóttir (B), Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir (S) og Sigríður Svavarsdóttir (D).

Menningar- og kynningarnefnd: Guðrún Helgadóttir (S), Hrund Pétursdóttir (B) og Elísabet Gunnarsdóttir (D). Til vara eru: Ingunn Sigurðardóttir (S), Ólafur Atli Sindrason (B) og Magnea Guðmundsdóttir (D).

Umhverfis- og samgöngunefnd: Þórdís Friðbjörnsdóttir (B), Sólveig Olga Sigurðardóttir (S) og Jón Sigurðsson (D). Til vara eru: Óli Viðar Andrésson (B), Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir (S) og Vignir Kjartansson (D).

20.06.2006 Lækkun leikskólagjalda samþykkt. Á fundi sveitarstjórnar í dag var samþykkt að lækka leikskólagjöld um 20% að tillögu meirihlutans. Þessi tillaga var endurflutningur á tillögu fulltrúa Framsóknarflokksins í Fræðslu- og menningarnefnd á síðasta kjörtímabili.

20.06.2006 Guðmundur Guðlaugsson verður sveitarstjóri. Ákveðið hefur verið að Guðmundur Guðlaugsson verði ráðinn sveitarstjóri í Sveitarfélaginu Skagafirði. Þetta var tilkynnt á fundi með starfsmönnum ráðhússins núna í hádeginu. Guðmundur hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum en hann hefur verið bæjarstjóri á Siglufirði og nú síðast í Vesturbyggð. Gert er ráð fyrir að ráðning Guðmundar verði lögð fyrir sveitarstjórn fimmtudaginn 29. júní n.k.

19.06.2006 Við óskum íslenskum konum til hamingju með daginn.

16.06.2006 Magnús Stefánsson nýr Félagsmálaráðherra. Nýr félagsmálaráðherra, Magnús Stefánsson tók við embætti félagsmálaráðherra á ríkisráðsfundi í gær, 15. júní, og kom til starfa í félagsmálaráðuneytinu seinni partinn. Jón Kristjánsson, fráfarandi félagsmálaráðherra, afhenti honum lyklana að ráðuneytinu og afhenti honum kynjagleraugu sem hann bað hann um að hafa uppi við í störfum sínum sem félagsmálaráðherra.Að því loknu hitti ráðherrann starfsfólk ráðuneytisins. (úr fréttatilkynningu ráðuneytisins).

Magnús er fæddur 1. október 1960 en foreldrar hans eru Stefán Jóhann Sigurðsson og Guðrún Alexandersdóttir. Kona Magnúsar er Sigrún Drífa Óttarsdóttir og eiga þau tvö börn. Magnús var alþingismaður Framsóknarflokksins Vesturlandskjördæmis 1995-1999 og 2001-2003 og Norðvesturkjördæmis frá 2003. Hann hefur setið í ýmsum þingnefndum og var formaður fjárlaganefndar þar til hann tók við embætti félagsmálaráðherra í gær.

15.06.2006 Fyrsti fundur Byggðarráðs. Fyrsti fundur byggðarráðs á kjörtímabilinu var haldinn í morgun. Á fundinum var Gunnar Bragi Sveinsson kosinn formaður og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir varaformaður. Þá var lagt fyrir bréf frá Kaupfélagi um "Sáttmála til sóknar í skólum í Skagafirði." Byggðarráð samþykkti að taka þátt í verkefninu á þeim grundvelli sem lagður er fram en óskar eftir viðræðum um einstaka liði.

13.06.2006 Nokkur erindi um erindi Ingvars Gýjars. Á síðasta fundi fráfarandi Skipulags- og byggingarnefndar var tekið fyrir erindi frá Ingvari Gýjar Jónssyni varðandi það að breyta útliti á íbúðarhúsinu á Gýjarhóli. Erindi Ingvars var eftirfarandi:

Auðmjúkur ég um það spyr// og æski svars í skýru máli // Má breyta glugga í glæstar dyr // á geymslunni hjá Bjarna Páli?

Svar nefndarinnar var eftirfarandi: Góð eru hús á Gýjarhól// glampar á rúðu morgunsól.// Hátt upp á burstum haninn gól// heyrðist allt út í Tindastól.

Bóndinn vaskur og brattur var// bæjarprýði allsstaðar// Bjástraði mjög við byggingar// sem búkarlar reistu hér og þar.

Mestanpart þarna var myndarbú// margt þó að hafi glatast nú// Út á Sauðárkróki þvældist þú// þaðan burtu - með ektafrú.

Útlitsbreytingu ef þú vilt, // er okkur málið að sjálfsögðu skylt// Samþykkt við gerum. Svo útfyllt// síðan allt verður rétt og gilt.

Ekki er vonlaus umsóknin. // Ágæt fylgir með teikningin! // Virðum við augljósan vilja þinn. // Veitum leyfi í þetta sinn.

12.06.2006 Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar. Í morgun kl. 9:00 kom nýkjörin sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar saman til fundar í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut. Starfsaldursforseti Þórdís Friðbjörnsdóttir setti fund, las dagskrá og stjórnaði kjöri á forseta. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir (S) var kjörin forseti sveitarstjórnar, Gunnar Bragi Sveinsson (B) fyrsti varaforseti og Páll Dagbjartsson (D) annar varaforseti. Skrifarar sveitarstjórnar voru kjörnar Þórdís Friðbjörnsdóttir (B) og Katrín María Andrésdóttir (D). Þá var kosið í eftirtaldar nefndir:

Félags- og tómstundanefnd: Þórdis Friðbjörnsdóttir (B), Vanda Sigurgeirsdóttir (S) og Katrín María Andrésdóttir (D). Til vara eru Íris Baldvinsdóttir (B), Hólmfríður Guðmundsdóttir (S) og Sigríður Björnsdóttir (D).

Atvinnu- og ferðamálanefnd: Gunnar Bragi Sveinsson (B), Snorri Styrkársson (S) og Bjarni Egilsson (D). Til vara: Elínborg Hilmarsdóttir (B), Viggó Jón Einarsson (S) og Páll Dagbjartsson (D).

Skipulags- og byggingarnefnd: Einar Einarsson (B), Svanhildur Guðmundsdóttir (S) og Páll Dagbjartsson (D). Til vara: Gunnar Bragi Sveinsson (B), Pétur Valdimarsson (S) og Gísli Sigurðsson (D).

Landbúnaðarnefnd: Einar Einarsson (B), Ingibjörg Hafstað (S) og Sigríður Björnsdóttir (D). Til vara: Elínborg Hilmarsdóttir (B), Sólveig Olga Sigurðardóttir og Bjarni Þórisson (D)

Frestað var kosningu í Fræðslu- & menningarnefnd, Umhverfisnefnd og Samgöngunefnd vegna fyrirhugaðra breytinga á samþykktum sveitarfélagsins.

11.06.2006 Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar á morgun. Á morgun mánudaginn 12. júní kl. 9:00 er fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar Skagafjarðar. Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut.

10.06.2006 Þrír nýjir ráðherrar hjá Framsóknarflokknum. Í dag var tilkynnt að þrír nýjir ráðherrar komi til með að taka við ráðherraembættum fyrir hönd Framsóknarflokksins n.k. fimmtudag. Það eru þau Magnús Stefánsson sem verður félagsmálaráðherra, Jónína Bjartmarz sem verður umhverfisráðherra og Jón Sigurðsson seðlabankastjóri sem verður iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Valgerður Sverrisdóttir verður utanríkisráðherra en þau Siv Friðleifsdóttir og Guðni Ágústsson verða áfram heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og landbúnaðarráðherra. Hjá Sjálfstæðisflokknum verða þær breytingar að Geir H. Haarde verður forsætisráðherra og Sigríður Anna Þórðardóttir.

Þá kom fram í dag að Halldór Ásgrímsson mun láta af þingmennsku í haust og að Jón Kristjánsson sem lét af ráðherraembætti af eigin ósk mun ekki óska eftir endurkjöri í næstu alþingiskosningum.

09.06.2006 Akraskóli aflagður. Í fundargerð Rekstrarnefndar Varmahlíðarskóla frá 1. júní sl. kemur fram að Akrahreppur sækir um skólavist í Varmahlíðarskóla fyrir 25 börn úr Akrahreppi þar sem ákvörðun hefur verið tekin um að leggja Akraskóla niður frá og með næsta hausti. Fram kemur í fundargerðinni það mat skólastjóra Varmahlíðarskóla að þessi breyting þýði fjölgun um eina bekkjardeild ásamt fjölgun nemenda í öðrum bekkjum sem leiði af sér nokkra fjölgun starfsmanna. Ekki liggur fyrir kostnaðaráhrif þessara breytinga. Tekið var vel í umsóknina og ákveðið að nefndin komi saman og geri nýjan samning þegar að svör hafa borist um aðkomu Jöfunarsjóðs sveitarfélaga vegna þessara breytinga.

08.06.2006 "Uppsópsfundur" sveitarstjórnar í dag. Síðasti fundur fráfarandi sveitarstjórnar - "uppsópsfundur" - verður í dag í Auðunnarstofu á Hólum. Á þessum fundi afgreiðir sveitarstjórn þær fundargerðir sem liggja fyrir þannig að ný sveitarstjórn geti tekið við hreinu borði hvað það varðar. Dagskrá fundarins.

08.06.2006 Vinabæjarmót framundan í Skagafirði. Í næstu viku koma í Skagafjörð gestir frá vinbæjum Skagafjarðar, Köge í Danmörku, Kristiansand í Svíþjóð, Kongsberg í Noregi og Espo í Finnlandi. Vinabæjarmótin eru haldin til skiptis í vinabæjunum fimm og er nú komið að Skagafirði. Áætlað er að gestir á mótinu verði um sextíu. Mótið hefst á mánudagsmorgun og lýkur á miðvikudag. Aðalviðfangsefnin verður hitaveita og ferðamál. Fyrirlesarar fjalla um þessi málefni, Skagafjarðarveitur verða heimsóttar og svo og ýmsir ferðamannastaðir í Skagafirði. Þá mun heill dagur verða helgaður Hólum og ferðaþjónustunni þar.

07.06.2006 Miðstjórnarfundur n.k. föstudag. Miðstjórn Framsóknarflokksins hefur verið boðuð til fundar n.k. föstudag kl.16:00. Búast má við að aðalumræðuefni fundarins verði útkoma flokksins í sveitarstjórnarkosningum og þær breytingar sem verða á forystu flokksins við það að Halldór Ásgrímsson hefur tekið þá ákvörðun að hætta í stjórnmálum.

06.06.2006 Tilboð opnuð i endurbætur á Miðgarði - menningahúsi. Á fundi Eignasjóðs sveitarfélagsins Skagafjarðar í dag voru opnuð tilboð í endurbætur á Miðgarði. Kostnaðaráætlun var 107,6 milljónir króna. Þrjú tilboð bárust. Það lægsta frá Lambeyri ehf. tæpar 113,9 milljónir. Tilboð K-Taks ehf. var 164,2 milljónir kr. og frávikstilboð sama aðila upp á 150,5 milljónir kr. Tæknideild sveitarfélagsins var falið að fara yfir tilboðin.

05.06.2006 Halldór Ásgrímsson hættir sem forstætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins. Á blaðamannafundi í kvöld kom fram að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra mun hætta sem forsætisráðherra á næstu dögum og að hann mun hætta sem formaður Framsóknarflokksins á flokksþingi í haust.

01.06.2006 Miðstjórnarfundur 9. júní. Boðað hefur verið til miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins föstudaginn 9. júní kl.16:00 í Súlnasal Hótel Sögu.

31.05.2006 Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin mynda meirihluta. Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin í Skagafirði hafa samið um myndum meirihluta í Sveitarfélaginu Skagafirði.

Framsóknarflokkurinn (B) og Samfylkingin (S) gera með sér svofellt samkomulag um meirihlutasamstarf um stjórnun Sveitarfélagsins Skagafjarðar kjörtímabilið 2006 - 2010. Flokkarnir eru sammála um að auka traust samfélagsins á sveitarstjórninni ásamt því að standa vörð um ímynd Skagafjarðar á vettvangi sveitarstjórnar og hafa í heiðri heiðarleg og traust vinnubrögð. Jákvæðni, samstaða og vinnugleði eiga að einkenna störf sveitarstjórnar. Jafnræði þegnanna og opin stjórnsýsla verða í heiðri höfð og leitast verður við að íbúar hafi greiðan aðgang að fulltrúum í stjórnum og nefndum. Einstök málefni sem hér verða talin upp byggja á stefnuskrám flokkanna sem lagðar voru fram fyrir kosningarnar 27.mai 2006. . Megin verkefnin verða eftirfarandi:

a.. Samvinna og samstarf sveitarstjórnar við íbúa, fyrirtæki og stofnanir og komið á virkri þátttöku þeirra í mótun og uppbyggingu sveitarfélagsins.

b.. Lögð verður áhersla á að efla atvinnulíf og fjölga atvinnutækifærum í samvinnu við einstaklinga, stofnanir, fyrirtæki og ríkisvaldið.

c.. Mótuð verður fjölskyldustefna með áherslu m.a. á skólamál, iþrótta- og æskulýðsmál, málefni eldriborgara, fatlaðra, forvarnir ofl.

d.. Framkvæmdum við Árskóla verði lokið á kjörtímabilinu.

e.. Furukot verður stækkað og þannig brugðist við skorti á leikskólarýmum.

f.. Félagsstarfi aldraðra og ungmenna verði fundinn farvegur í hugmyndafræði Húss frítímans.

g.. Átak verður gert í umhverfis- og hreinlætismálum m.a. stutt við framkomnar hugmyndir um jarðgerð og sorpvinnslu.

h.. Aðalskipulagi verði lokið hið fyrsta og í framhaldinu þéttbýlisuppdráttum.

i.. Auka upplýsingaflæði til íbúa m.a. í gegnum heimasíðuna, útvarp oþh.

j.. Kanna kosti þess að niðurgreiða kostnað heimila við íþróttir og tómstundir grunnskólabarna.

k.. Efla samstarf sveitarfélagsins og Hólaskóla.

Oddviti Samfylkingarinnar Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir verður forseti sveitarstjórnar og oddviti Framsóknarflokks Gunnar Bragi Sveinsson verður formaður byggðarráðs. Skipting nefnda verður kynnt síðar. Ákvörðun um sveitarstjóra verður tekin af flokkunum í sameiningu.

Fh. Framsóknarflokks, Gunnar Bragi Sveinsson

Fh. Samfylkingar, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir.

30.05.2006 Framsókn og Samfylking ræða meirihlutasamstarf. Eins og fram hefur komið í viðtölum við oddvita Framsóknarflokksins í Skagafirði, Gunnar Braga Sveinsson, í fjölmiðlum er Framsóknarflokkurinn í viðræðum við Samfylkinguna um meirihlutasamstarf í sveitarfélaginu Skagafirði.

29.05.2006 Úrslit í Akrahreppi. Kosið var í Akrahreppi eins og í öðrum sveitarfélögum á landinu sl. laugardag. Úrslit urðu þessi í óhlutbundinni kosningu: Aðalmenn: Agnar H. Gunnarsson, Miklabæ, Þorleifur Hólmsteinsson, Þorleifsstöðum, Svanhildur Pálsdóttir, Stóru Ökrum, Þórarinn Magnússon, Frostastöðum og Jón Sigurðsson, Stóru Ökrum. Varamenn voru kjörnir: Þorkell Gíslason, Víðivöllum, Eiríkur Skarphéðinsson, Djúpadal, Hinrik Már Jónsson, Syðstu-Grund, Broddi Björnsson, Framnesi og Drífa Árnadóttir, Uppsölum

28.05.2006 Þökkum fyrir stuðninginn. B-listi Framsóknarmanna í Skagafirði þakkar stuðningsmönnum ómetanlegan stuðning í kosningunum í gær. Við erum þakklát öllu því fólki sem sýndi okkur stuðning með því að gefa okkur atkvæði sitt en einnig þökkum fyrir því fólki sem lagði mikið á sig síðastliðnar vikur til að sigur Framsóknarflokksins í Skagafirði gæti orðið að veruleika. Takk fyrir.

28.05.2006 Kjörnir sveitarstjórnarfulltrúar í Skagafirði . Níu sveitarstjórnarfulltrúar eru í sveitarstjórn Skagafjarðar. Eftirtaldir einstaklingar voru kjörnir: Gunnar Bragi Sveinsson, Þórdís Friðbjörnsdóttir, Einar E. Einarsson og Sigurður Árnason frá Framsóknarflokki, Bjarni Egilsson, Páll Dagbjartsson og Katrín María Andrésdóttir frá Sjálfstæðisflokki, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir frá Samfylkingu og Bjarni Jónsson frá VG.

28.05.2006 Stórsigur Framsóknarflokksins í Skagafirði. Úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Skagafirði urðu þau að Framsóknarflokkurinn vann stórsigur, hlaut 819 atkvæði og fjóra fulltrúa í sveitarstjórn af níu. Meirihluta Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna var hins vegar hafnað með afgerandi hætti en samanlagt hlutu flokkarnir aðeins um 40% atkvæða. Úrslitin urðu annars sem hér segir:

B-listi 819 atkvæði - 35,20% - 4 fulltrúa +5,60%

D-listi 693 atkvæði - 29,78% - 3 fulltrúa -5,44%

S-listi 392 atkvæði - 16,85% - 1 fulltrúa +7,75%

V-listi 276 atkvæði - 11,86% - 1 fulltrúa -8,54%

F-listi 197 atkvæði - 8,47% og engan fulltrúa

25.05.2006 Á kjördag er tækifæri til að gera breytingar.

- Við ætlum að vinna með einstaklingum og fyrirtækjum í Skagafirði

- Við bjóðum okkur fram til að breyta. Við höfum skýra stefnu enda verið virk í sveitarstjórninni síðustu fjögur ár. Við þekkjum hvar skóinn kreppir.

- Við bjóðum okkur fram til að vinna. Við ætlum að vinna fyrir fólkið sem hér býr.

- Við ætlum að ná árangri fyrir Skagafjörð. Við ætlum að taka þátt í framtíðinni.

- Við komum samhent til starfsins og heitum því að vinna að öllum góðum málum með hverjum sem er líkt og við höfum ætíð gert.

- Við biðjum um þinn stuðning.Við þurfum að halda okkar þremur fulltrúum í sveitarstjórninni til að geta unnið að breytingum í Skagafirði.

Árangur okkar byggir á þínum stuðningi - Möguleikar Skagafjarðar eru okkar tækifæri.

Breytum rétt - fyrir Skagafjörð - X við B á kjördag.

25.05.2006 Velheppnuð fjölskylduskemmtun í Reiðhöllunni. Í dag var fjölskylduskemmtun Framsóknarflokksins í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Á annað hundrað manns mættu á skemmtunina sem tókst með ágætum en öll skipulagning var í höndum ungra framsóknarmanna.

24.05.2006 Fjölskylduskemmtun Framsóknarflokksins á morgun. Á morgun, fimmtudaginn 25.maí, kl.14:00-16:00 verður fjölskyldudagur hjá Framsóknarmönnum. Skemmtunin verður haldin í Reiðhöllinni Svaðastöðum en ekki í Framsóknarhúsinu eins og áður var auglýst. Við ætlum að grilla, fara í leiki með börnin og eiga góðan dag með fjölskyldum okkar. Hvetjum alla til að mæta! Frambjóðendur Framsóknarflokksins í Skagafirði.

23.05.2006 Gaman á vinnustaðafundum. Frambjóðendur Framsóknarflokksins hafa á undanförnum dögum farið í fjölmargar vinnustaðaheimsóknir. Alls staðar þar sem við höfum komið hefur okkur verið vel tekið og oftar en ekki hafa skapast líflegar og skemmtilegar umræður. Það er ljóst að það er enginn uppgjafartónn í Skagfirðingum þrátt fyrir að endalaust megi bæta það samfélag sem við búum í.

20.05.2006 Risahesthús reist á Hólum. Í gærkvöldi undirritaði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins samning sem felur í sér að reist verði 200 hesta hesthús á Hólum í Hjaltadal. Hesthúsið mun gjörbreyta aðstöðu á hestabraut Hólaskóla og sýnir enn og aftur góðan hug Guðna Ágústssonar til skólans.

19.05.2006 Guðni Ágústsson í léttu spjalli í Reiðhöllinni. Létt spjall með Guðna Ágústssyni landbúnaðarráðherra og frambjóðendum Framsóknarflokksins til sveitarstjórnar í anddyri Reiðhallarinnar í kvöld,föstudagskvöldið kl.20:30. Allir velkomnir.

16.05.2006 Frambjóðendur á ferðinni. Frambjóðendur Framsóknarflokksins fóru í síðustu viku í fundarherferð um héraðið og hittu fjölda fólks. Í þessari viku hófust vinnustaðaheimsóknir og hefur okkur alls staðar verið vel tekið. Þetta eru skemmtilegar heimsóknir og oft mjög upplýsandi fyrir okkur pólitíkusana.

15.05.2006 Ungir framsóknarmenn - alltaf virkir. Það hefur ekki farið framhjá mörgum að þetta vor er kosningavor. Eitt einkenni á kosningavori er það að þá fara stjórnmálamenn- og flokkar að fara að láta bera meira sér til að koma sínum stefnumálum á framfæri, með auglýsingum, fundahaldi o.s.frv. Einn mikilvægur hlekkur í kosningabaráttu allra stjórnmálaflokka eru ungliðahreyfingarnar. Þeirra hlutverk er að knýja fram stefnumál sem lúta að ungu fólki, fá ungt fólk á framboðslistana og kynna sinn flokk fyrir yngstu kjósendunum, í okkar tilfelli ungu fólki í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Þegar horft er á hlutina frá þessu sjónarhorni sker Félag ungra framsóknarmanna í Skagafirði (sk.st. FUFS) sig lítið frá öðrum ungliðahreyfingum. En sé litið á heildarmyndina sést að FUFS er í sérflokki ungliðahreyfinga í sveitarfélaginu. Það hefur sýnt sig síðustu ár að FUFS er eina stjórnmálafélag ungs fólks í sveitarfélaginu sem heldur uppi virkri starfsemi allan ársins hring, en leggst ekki í dvala á milli kosningavora. Það er mjög auðvelt fyrir frambjóðendur að lofa að vinna fyrir ungt fólk, en erfiðara er að standa við það. Og enn erfiðara ef það er ekki öflug hreyfing ungs fólks á bak við ráðamenn sveitarfélagsins sem veitir aðhald.
Þar er Framsóknarflokkurinn í mjög sterkri stöðu því hann hefur á bak við sig stærstu ungliðahreyfingu sveitarfélagsins, sem hefur verið dugleg að koma málefnum ungs fólks á framfæri. Sem dæmi má nefna að á síðasta aðalfundi félagsins þann 17. febrúar 2006 var ályktað um uppbyggingu á leikskólaplássi, og þar áður hafði stjórnarfundur félagsins ályktað um gjaldfrjálsan leikskóla. Þetta mál er nú komið í nefnd innan sveitarfélagsins. Ég vil því hvetja ungt fólk til þess að veita Framsóknarflokknum atkvæði sitt til að tryggja að málefni unga fólksins verði ekki gleymd að morgni 28. maí. Axel Kárason form. FUF Skagafirði

12.05.2006 Bókun við ársreikning sveitarfélagins. Á fundi sveitarstjórnar í gær var lagður fram ársreikningur sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2005. Að því tilefni bókuðu fulltrúar Framsóknarflokksins eftirfarandi: "Ljóst er af niðustöðu ársreiknings vegna ársins 2005 að meirihlutanum hefur mistekist að ná yfirlýstum markmiðum sínum um að lækka skuldir og koma böndum á rekstur sveitarfélagsins. Skuldir hafa aukist um 442 milljónir á kjörtímabilinu og eru nú 2.967 milljónir, þrátt fyrir sölu eigna upp á 270 milljónir kr. Öll rekstrarárin hafa gjöld farið verulega fram úr áætlun auk þess sem hallarekstur er viðvarandi. Þessi þróun er með öllu óviðunandi og löngu ljóst að núverandi meirihluti hefur gefist upp á verkefninu. "

11.05.2006 Létt kaffispjall með Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra í Framsóknarhúsinu í kvöld kl.20:30. Í dag mun Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra heimsækja fyrirtæki í Skagafirði en í kvöld verður hann í léttu kaffispjalli í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki.

10.05.2006 "Hús frítímans". Þórdís Friðbjörnsdóttir skrifar grein þar sem hún útskýrir í hverju svokallað hús frítímans felst. Í inngangi segir: "Eitt af helstu baráttumálum Framsóknarflokksins fyrir komandi kosningar er að koma á fót "Húsi frítímans" sem svo er nefnt og þá er átt við sameiginlega félagsmiðstöð yngri og eldri borgara. Verkefni sem "Hús frítímans" þekkist ekki á Íslandi en hefur marga augljósa kosti, bæði fjárhagslega og hugmyndafræðilega. Sjá greinina í heild undir Greinar.

10.05.2006 Fundur í Varmahlíð í dag. Í dag verða frambjóðendur Framsóknarflokksins með fund í Hótel Varmahlíð kl. 20:30.

10.05.2006 Ný grein eftir Gunnar Braga um Árskóla og Sjálfstæðisflokkinn. Fyrir nokkru birti ég neðangreinda grein þar sem fjallað er um þá staðreynd að meirihluti Vinstri Grænna og Sjálfstæðsflokks hafnaði því í þriggja ára áætlun 2007 – 2009 að hefja framkvæmdir við Árskóla. Nú koma hins vegar frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins, þeir sömu og höfnuðu Árskóla, og tilkynna um framkvæmdir! Forvitnilegt verður að vita hvaða stefnu Sjálfstæðisflokkurinn kynnir næst. Árskóli ekki með í áætlun meirihlutans. Greinina í heild er hægt að lesa undir liðnum "Greinar".

09.05.2006 Fundir á Hólum og í Höfðborg Hofsósi í dag. Í dag verða frambjóðendur Framsóknarflokksins með fund á Hólum í dag kl.17:30 "Undir Byrðunni" og í Höfðaborg Hofsósi í kvöld kl.20:30.

08.05.2006 Fundir í Skagaseli og Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki í dag. Í dag verða frambjóðendur Framsóknarflokksins með fundi í Skagaseli kl.15 og í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki kl.20:30.

07.05.2006 Fundir í Árgarði og Ketilási í dag. Í dag verða frambjóðendur Framsóknarflokksins með fundi í Árgarði kl. 17 og á Ketilási kl.20:30.

04.05.2006 Ný heimasíða Framsóknarfélags Skagafjarðar á átta ára afmælinu. Heimasíða Framsóknarfélags Skagafjarðar var komið upp fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 1998 og heldur því upp á 8 ára afmæli um þessar mundir. Mest af þessum tíma hafa verið birtar fréttir alla virka daga og hefur síðan skipað sér ákveðinn sess sem sést best á heimsóknarmælingum.

03.05.2006 Mikilvægi atvinnu - grein eftir Einar Einarsson. Í nýlegri könnun sem gerð var af IMG Gallup fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð kemur margt áhugavert fram Almennt má segja að íbúar sveitarfélagsins eru ánægðir með að búa í Skagafirði þó ýmislegt megi betur fara. Niðurstöðurnar sýna samt að rúmlega 20% þeirra sem svöruðu hafa í hyggju að flytja burt á næstu 2-4 árum og þá flestir til höfuðborgarsvæðisins. Helmingur þeirra, eða 50% segja ástæðuna fyrir hugsanlegum búferlaflutningi vera skort á atvinnutækifærum. Þessi niðurstaða passar vel við aðra spurningu í könnuninni þar sem fólk er spurt hvað sé mikilvægast við val á búsetu, en 56% nefna fjölbreytni atvinnulífs. Greinina í heild má lesa undir hnappnum greinar.

02.05.2006 Fundur með Baltasar Kormáki um kvikmyndagerð. Í kvöld, þriðjudagskvöldið 2. maí, kl.20:30 verður opinn fundur í Framsóknarhúsinum við Suðurgötu á Sauðárkróki með Baltasar Kormáki kvikmyndaleikstjóra um kvikmyndagerð og möguleika Skagafjarðar í þeim efnum. Allir velkomnir.

1. maí 2006. Launafólk - til hamingju með daginn.

30.04.2006 Sæluvika Skagfirðinga hefst í dag. Dagskrána má finna hér.

29.04.2006 Fjölmenni á opnun kosningaskrifstofu. Fullt hús var á opnun kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins í gærkvöldi. Auk ávarpa voru tónlistaratriði sem þóttu heppnast mjög vel. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra tók nokkrar myndir á opnuninni og eru tenglar á þær hér og hér. 

28.04.2006 Opnun kosningaskrifstofu. Opnun kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins verður í kvöld, föstudagskvöldið 28. apríl kl. 20:30 að Suðurgötu 3, Sauðárkróki. Gestur kvöldsins verður Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra. Helgi Sæmundur og fleiri skemmta. Allir velkomnir. Frambjóðendur B-lista Framsóknarflokksins.

27.04.2006 Kosningabaráttan að fara af stað. Það má ráða af Sjónhorninu í dag að kosningabaráttan er að fara af stað. Öll framboðin auglýsa kosningaskrifstofur sínar en auk þess er listi Framsóknarflokksins birtur á baksíðu og auglýstur fundur með Baltasar Kormáki í Framsóknarhúsinu n.k. þriðjudagskvöld.

26.04.2006 Sveitarstjórnarfundur í morgun. Dagskrá fundarins má nálgast hér.

25.04.2006 Engin jörð eða jarðarpartur til sölu hjá Sveitarfélaginu. Á fundi Stjórnar Eignasjóðs í dag var tekið fyrir fyrirspurnarbréf frá Sísi Steindórsdóttur um jarðir eða jarðarparta í eigu sveitarfélagsins sem hugsanlega væru til sölu. Í bókun stjórnar Eignarsjóðs segir:”Engin ákvörðun hefur verið tekin um frekari sölu á jörðum eða jarðarpörtum í eigu sveitarfélagsins.” Þá vitum við það, þetta vafðist minna fyrir Stjórn eignasjóðs en þegar að Ársæll sveitarstjóri vildi kaupa jörð.

21.04.2006 Flokkaflakk. Magnús Stefánsson alþingismaður skrifar um flokkaflakk á heimasíðu sína. “Það er gömul saga og ný að margt getur gerst í pólitíkinni. Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með flokkaflakki ýmissa einstaklinga að undanförnu. Nú síðast ákvað minn ágæti vinur og félagi Gísli S Einarsson að yfirgefa Samfylkinguna og gefa kost á sér sem bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins á Akranesi. Þetta kom mörgum á óvart og margir sem átta sig ekki á þessum tíðindum, enda hefur Gísli lengi starfað innan Alþýðuflokksins og síðar Samfylkingar, bæði á vettvangi sveitarstjórnarmála og Alþingis. Þetta kom mér mjög á óvart enda hef ég þekkt pólitískar skoðanir Gísla um langan tíma og hefði átt von á því að ef hann á annað borð yfirgæfi Samfylkinguna þá lægi leið hans í aðrar áttir en til Sjálfstæðisflokksins. Svona geta hlutirnir snúist og það verður fróðlegt að fylgjast með vegferð Gísla á nýjum slóðum í pólitíkinni. Að sjálfsögðu óska ég mínum góða vini alls hins besta, en er jafnframt þess fullviss að Sjálfstæðisflokkur muni ekki ná hreinum meirihluta í bæjarstjórn Akraness í vor og þar með muni Gísli ekki setjast í stól bæjarstjóra þar. “ Greinin í heild.

20.04.2006 Gleðilegt sumar. Framsóknarfélag Skagafjarðar óskar landsmönnum öllum gleðilegs sumars.

19.04.2006 Fyrsti apríl er ekki í dag. Gísli Sveinbjörn Einarsson varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi er genginn úr Samfylkingunni og er óflokksbundið bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins skv. fréttum RÚV, sem Gísli S. telur að eigi góða möguleika á að ná hreinum meirihluta á Akranesi í fyrsta skipti. Þetta hljóta að teljast allnokkur tíðindi en Gísli féll sem kunnugt er í síðustu Alþingiskosningum, þegar að Jóhann Ársælsson og Anna Kristín Gunnarsdóttir voru tekin framyfir hann á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi.

18.04.2006 Heldur meirihlutinn áfram eftir kosningar? Í Dymbilvikunni birtu Vinstri-grænir framboðslista sinn og hafa því allir flokkar í sveitarstjórn Skagafjarðar birt lista sína. Á lista VG situr á toppnum Bjarni Jónsson sveitarstjórnarfulltrúi VG. Ársæl Guðmundsson sveitarstjóra er hins vegar hvergi að sjá á listanum, ekki einu sinni í heiðurssætinu.

Hjá Sjálfstæðisflokknum leiðir Bjarni Egilsson á Hvalnesi en hann var einn af arkitektunum að núverandi meirihluta og ritaði m.a. nafn sitt á meirihlutasamning VG og Sjálfstæðisflokksins ásamt oddvita VG Bjarna Jónssyni. Þriðji Bjarninn, Maronsson, er hins vegar hvergi að sjá á lista Sjálfstæðisflokksins, en þar er Gísli Gunnarssson í heiðurssætinu.

Það að Bjarnarnir, Egilsson og Jónsson, hafi náð forystu í sínum flokkum hlýtur að vekja upp þá spurningu hvort að vilji sé innan Sjálfstæðisflokksins og Vinstri-grænna að endurnýja meirihlutasamstarfið eftir kosningar fái þeir til þess fylgi.

12.04.2006 Lækkun leikskólagjalda. Á síðasta fundi Fræðslu- og menningarnefndar flutti undirritaður tillögu um lækkun leikskólagjalda um 20%. Gert var ráð fyrir að lækkunin myndi taka gildi 1. maí n.k. Tillagan fékk ekki hljómgrunn hjá meirihlutanum í nefndinni og var í raun hafnað með tillögu formanns nefndarinnar Gísla Árnasonar VG þar sem hann lagði til að tillögunni yrði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar sem verður gerð í haust á nýju kjörtímbili. Þessi tillaga formannsins var síðan staðfest af sveitarstjórn síðastliðinn fimmtudag.

Með tillögunni fylgdi greinargerð og áætlun um kostnaðaráhrif þessara breytinga. Vistunargjöld í leikskólum í Skagafirði eru áætluð 40,5 milljónir kr. á árinu 2006. Lækkun um 20% mun kosta sveitarfélagið um 5,3 milljónir kr. á árinu 2006, en 8 milljónir á ársgrundvelli. Líklegt er að þessi breyting hafi minni áhrif þar sem þegar hafa verið samþykktar breytingar á afsláttum leikskólagjalda sem leiða til lækkunar tekna vegna leikskólagjalda í kringum 1,5 milljónir kr. á ársgrundvelli. Til samanburðar eru heildartekjur sveitarfélagsins áætlaðar 2.086 milljónir á þessu ári.

Sveitarfélagið Skagafjörður er í samkeppni við önnur sveitarfélög í landinu og reyndar einnig við önnur lönd. Sérstaklega eru sveitarfélög í samkeppni um unga fólkið sem er að velja sér búsetu. Undanfarin ár hefur hallað verulega á sveitarfélagið Skagafjörð en á árabilinu 1991-2005 fækkaði íbúum 20 ára og yngri um 20% í Sveitarfélaginu Skagafirði og á aldrinum 21-40 ára um 16,9%. Á sama tíma varð heildar íbúafækkun í sveitarfélaginu hins vegar 5,5%.

Undanfarna mánuði hafa flest stærstu sveitarfélög landsins ýmist verið að lækka gjaldskrá sína eða samþykkja stefnumörkun þar að lútandi, nú síðast hefur Kópavogsbær, næst stærsta sveitarfélag landsins, samþykkt að lækka sína gjaldskrá um 30%.

Ljóst er að sveitarfélagið Skagafjörður ræður ekki ferðinni í þessum efnum og til að Skagafjörður sé samkeppnishæfur búsetukostur í samkeppni við önnur sveitarfélög er nauðsynlegt að aðlaga vistunargjöld í leikskólum Skagafjarðar að því sem gerist annars staðar. Með tillögunni um lækkun var lagt til að vistunargjöld á leikskólum í Skagafirði verði nálægt því sem gerist hjá Akureyrarbæ. Sem dæmi um þann mismun sem nú er fyrir hendi er að fullt vistunargjald á leikskólum Akureyrarbæjar fyrir 8,5 tíma vistun með mat er 23.392 kr. á meðan þau eru 28.549 kr. í Sveitarfélaginu Skagfirði. Með lækkun vistunargjalds um 20% yrði leikskólagjald 24.032 kr. í Sveitarfélaginu Skagafirði.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna hefur ekki skilning á þessari þörf. Sigurður Árnason fulltrúi Framsóknarflokksins í Fræðslu- og menningarnefnd.

11.04.2006 Fundur í Framsóknarhúsinu í kvöld – Framtíðaráform Kjötafurðastöðvar KS. Ágúst Viðar Andrésson fer yfir stöðu mála og kynnir framtíðaráform hjá Kjötafurðastöð KS í kvöld þriðjudagskvöld kl.20:30 í Framsóknarhúsinu Suðurgötu 3. Allir velkomnir.

10.04.2006 Sveitarfélögin í landinu verða 79. Um helgina var samþykkt sameining Þórshafnarhrepps og Skeggjastaðahrepps og þar með er ljóst að gengið verður til kosninga í 79 sveitarfélögum á landinu þann 27. maí n.k. Í upphafi kjörtímabilsins voru sveitarfélögin í landinu 105 og hefur því fækkað um 26.

07.04.2006 Gott dæmi um vinnubrögð meirihlutans. Á sveitarstjórnarfundi í gær var m.a. tekin fyrir sala sveitarfélagsins á hluta af landi Ásgarðs í Viðvíkursveit sem áður hafði verið samþykkt með atkvæðum meirihlutans í Stjórn eignasjóði. Við afgreiðsluna í sveitarstjórn í gær lagði Ársæll Guðmundsson fram breytingartillögu við afgreiðslu eignasjóðs sem fól í sér forkaupsrétt sveitarfélagsins. Ljóst var að meirihlutinn hafði ekkert rætt þetta mál og lauk málinu með því að tillaga Ársæls var felld með einu akvæði hans sjálfs, gegn 2 atkvæðum Sjálfstæðisflokks, Bjarna Jónssonar VG og Helga Thorarensen Skagafjarðarlista. Katrín María hjá Sjálfstæðisflokki sat hjá. Fulltrúar Framsóknarflokksins tóku ekki þátt í þessum skrípaleik.

06.04.2006 Ályktun vegna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. “Stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar og sveitarstjórnarfulltrúar flokksins lýsa fullum stuðningi við framkomið stjórnarfrumvarp iðnaðarráðherra um Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Sérstaklega er fagnað þeirri ákvörðun um að höfuðstöðvar stofnunarinnar verði á Sauðárkróki. Þær nýju áherslur sem birtast í frumvarpinu sýna vilja til að efla atvinnuþróun á landsbyggðinni og að þekking eigi að standa undir sköpun nýrra starfa á landinu öllu.

Skorað er á alþingismenn að samþykkja frumvarpið sem fyrst og láta ekki stefnuleysi þingflokks Sjálfstæðisflokksins standa í vegi fyrir afgreiðslu þess. Ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn þarf að gera upp við sig hvort hann styðji opinberan stuðning við atvinnuþróun í landinu eða ekki. “ Stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar og sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknarflokksins í sveitarfélaginu Skagafirði.

06.04.2006 Sveitarstjórnarfundur í dag. Sveitarstjórnarfundur hefur verið boðaður í dag kl. 16:15 í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut.

05.04.2006 B-listar í Hafnarfirði, Sandgerði og Ölfusi. Í Hafnarfirði leiðir Sigurður Eyþórsson framkvæmdastjóri flokksins listann, í Sandgerði Haraldur Hinriksson bæjarfulltrúi og í Ölfusi Páll Stefánsson dýralæknir. Tenglar á listana eru hér – B-listi í Hafnarfirði, B-listi í Ölfusi og B-listi í Sandgerði.

04.04.2006 B-listar í Grindavík og í Fjarðabyggð. Hallgrímur Bogason leiðir lista Framsóknarflokksins í Grindavík en listinn var ákveðinn í lokuðu prófkjöri, en listinn í heild er sem hér segir. Þá er einnig kominn fram B-listi í sameinuðu sveitarfélagi í Fjarðabyggð og nágrennis. Tengill á hann er hér.

03.04.2006 Tillaga að aðalskipulagi fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð. Allt frá árinu 2001 hefur verið unnið að gerð aðalskipulags fyrir sveitarfélagið Skagafjörð, reyndar er hægt að segja að þessi vinna hafi verið komin af stað fyrir sameiningu sveitarfélaga með vinnu að svæðisskipulagi fyrir Skagafjörð. Nú liggur fyrir þriðja tillaga fyrir tímabilið 2005-2017 og er það vonum seinna.

Þrátt fyrir það er nú orðið ljóst að núverandi sveitarstjórn mun ekki afgreiða aðalskipulagið en meirihlutinn hefur ekki nýtt tímann sérstaklega vel þessi fjögur ár sem hann hefur haft til að klára málið. Þeir sem vilja kynna sér tillöguna geta smellt á þennan tengil á vef sveitarfélagsins.